SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Síða 25
18. apríl 2010 25
miðum gerð að fullu rafræn og því ekki lengur hægt að
skila inn auðum kennitölum eða kennitölum sem eru
ekki til á hlutafjármiðum“.
Þegar farið var að flytja upplýsingar um kennitölu-
lausa hlutafjáreigendur úr gamla gagnakerfinu yfir í nýja
launamiðakerfið hjá ríkisskattstjóra varð að einkenna
gögnin með kennitölu sem stóðst vartöluprófun, en það
hafði ekki þurft í eldra kerfinu. Þá var gripið til þess ráðs
að nota kennitölu gervimanns í útlöndum fyrir þau gögn
sem ekki áttu kennitölu. Það mun vera skýringin á
skyndilegum umsvifum svokallaðra Gervimanna í við-
skiptalífinu.
Eftir stendur að Gervimenn í viðskiptalífinu eru
kennitölulausir hlutafjáreigendur, sem skráðir eru er-
lendis og hefur verið gert að skila tilbúnu einkenni, svo-
nefndri gervikennitölu, en þá er einnig skráð nafn við-
komandi, heimilisfang erlendis o.s.frv. Þannig eru
margir þeirra auðkenndir og hefði verið hægt að vinsa
þá út af listanum, sem rannsóknarnefnd Alþingis birtir,
en þetta á þó ekki við um alla á listanum. Sumir leynast
undir huliðshjálmi, eins og síðar greinir. Einn viðmæl-
enda bendir á, að betra hefði verið að fá nákvæmari lista
og notast við skilgreininguna „óþekktir aðilar“. Það
hefði ekki verið eins villandi og Gervimenn í útlöndum
með stórum staf og kennitölum.
Undir huliðshjálmi
„En það er alveg rétt sem nefndin segir, að auðvitað er
þarna verulegt vandamál hjá yfirvöldum, að eiga við að-
ila sem eru skráðir erlendis,“ segir Skúli Eggert. „Eitt er
að halda utan um upplýsingarnar, en oft er stærra
vandamál að verða sér úti um þær. Þá er huliðshjálmur
yfir eignarhaldinu og ekki vitað um hvern ræðir, eins og
kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
Í alltof mörgum tilfellum er rökstuddur grunur um að
verið sé að leyna þessum upplýsingum vísvitandi. Það
getur til dæmis verið út af samkeppnissjónarmiðum, að-
stæðum á fjármálamarkaði eða til að fela eitthvað fyrir
kröfuhöfum. Sú skýring er raunar knýjandi núna, þegar
fyrirtæki eiga í vandræðum. Og að lokum er þetta gert til
að leyna hagnaði og komast hjá skattgreiðslum.“
Hann segist ekki sjá í fljótu bragði, hvernig leysa megi
Gervimannsvandamálið. „Ég hef ekki lausnina á því. Ef
menn eru staðráðnir í því að heimila án takmarkana það
að útlendingar eigi í félögum hér á landi, þá er það bara
pólitísk ákvörðun.“
– Felst það ekki í frjálsum fjármagnsflutningum á
Evrópska efnahagssvæðinu?
„Það var pólitísk ákvörðun að fara þangað inn. Og þá
er spurning hvernig upplýsingagjöf er háttað til skatt-
yfirvalda. Það er ekkert vandamál þegar eiga þarf við
ríki sem við höfum gert tvísköttunarsamninga við.
Vandamálin felast fyrst og fremst í því, þegar átt er við
fyrirtæki sem skráð eru á aflandssvæðum. Þar er sífellt
vandamál að fá upplýsingar um raunverulega eigendur.
Oft eru það gervieigendur, en við viljum upplýsingar um
þá sem eiga raunverulega fyrirtækin. Ein áhrifin sem
þetta hefur er að erfitt er að takmarka krosseignatengsl.
Þessu er vel lýst í 9. bindi skýrslunnar og í raun sláandi
að sjá hversu alvarlegt ástandið er. Rannsóknarnefndin
hefur til dæmis bent á að til séu félög, sem enginn virðist
eiga nema þau sjálf.“
– Og bankarnir tóku þátt í þessu?
„Já, það verður ekki annað séð,“ segir Skúli. „Allir
stóru bankarnir ráku fjármálamiðstöð í Lúxemborg.
Einn var þó áberandi stærstur og starfrækti fé-
lagaþjónustu, þar sem stofnuð voru félög og flutt í
skattaparadísir eða aflandsfélög. Ég á ekki svörin, en ég
velti því upp hvers vegna menn voru að þessu. Flestir
viðskiptavina voru Íslendingar. Við létum greina eign-
arhaldið í Lúxemborg, fengum mann til að fara í gegnum
alla hlutafélagaskrána þar í landi, og hann skilaði okkur
ítarlegri skýrslu, þar sem raktar voru vísbendingar um
íslensk félög. Þá var horft til nafnsins, hvort hlutafé væri
í íslenskum krónum, hvort heimilið væri skráð þar sem
við vissum að Íslendingar hefðu aðsetur eða lögmenn
þeirra. Það leiddi í ljós misfellur í upplýsingagjöf til
skattayfirvalda.“
Átta kynslóðir eigenda
Þar kom meðal annars í ljós að verulega vantaði upp á,
að hægt væri að þekkja alla eigendur, þannig að full-
nægjandi gæti talist. „Greiningin leiddi í ljós, að það
þurfti oft að fara aftur um átta kynslóðir eigenda til að
finna endanlegan eiganda og í eitt skipti voru kynslóð-
irnar níu.“
– Ekki var gefið upp nafn á félögunum í þeirri grein-
ingu, þegar hún birtist í Tíund, nema að hluta.
„Ástæðan er sú að byggt er á upplýsingum af fram-
tölum og ekki má birta þær, en hægt er að birta nöfn
upprunalegra eigenda, því það eru opinber gögn.“
Hann segir marga hafa tengst fjármálastarfsemi í Lúx-
emborg og farið þaðan til aflandssvæðis. „Auðvitað er
grunur um það, að í sumum tilfellum hafi menn verið að
þvo söluhagnað eða tekjur eða að leyna skattayfirvöld
upplýsingum. Í sumum tilvikum kann starfsemin að
hafa verið réttmæt, en ég dreg mjög í efa að þannig hafi
það verið í hvívetna. Ég tek þó fram, að í sjálfu sér er þó
ekkert ólöglegt við að eiga hlutafé í erlendu félagi.“
Gervimaðurinn Ken í kunnuglegu hlutverki með Barbie sinni. En hvernig skyldi tilveran vera hjá Gervimanni í útlöndum?
Heimild: Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis, sem sækir upplýsingarnar til Ríkisskattstjóra.
Kennitölur gervimanna erlendis
Kennitala Nafn
010130-2989 Gervimaður Ameríka
010130-2559 Gervimaður Svíþjóð
010130-3019 Gervimaður Afríka
010130-2719 Gervimaður Evrópa
010130-7789 Gervimaður útlönd
010130-2399 Gervimaður Færeyjar
010130-2129 Gervimaður Noregur
010130-2209 Gervimaður Finnland
010130-2479 Gervimaður Danmörk
010130-4929 Gervimaður Bretland
010130-4339 Gervimaður Eyjaálfa
010130-5069 Gervimaður Bandaríkin
010130-3369 Gervimaður Asía
010130-2639 Gervimaður Grænland
Morgunblaðið/Ernir
„Mér finnst skýrslan mjög merkilegt
verk,“ segir Skúli Eggert Þórðarson,
ríkisskattstjóri. „Það hefur greinilega
verið lögð mikil vinna og alúð í það.
Ég ætla ekkert að tjá mig um efn-
islegt innihald, en þarna er gríðarlegt
magn upplýsinga á einum stað. Og
fyrir skattayfirvöld er margt mjög
áhugavert. Við erum komin með fólk í
það að fara yfir þessa skýrslu lið fyrir
lið.“ Hann segir mikilvægt að í skýrsl-
unni megi finna upplýsingar frá bönk-
unum, til viðbótar við þær upplýs-
ingar sem skattayfirvöld hafa. „Það
hefur þurft að ganga mjög langt til að
fá upplýsingar úr bankakerfinu,
standa í málarekstri og þess háttar.
En nú förum við yfir þessar upplýs-
ingar og ef við höfum ekki fengið þær
áður, þá gæti það verið grunnur að
frekari vinnu.“
Margt
áhugavert