SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Blaðsíða 34
34 18. apríl 2010
É
g er nú bara venjuleg stelpa sem hefur gaman
af að leika sér með vinunum. En hlutverkið er
sannarlega andstyggilegt! segir bandaríska
leikkonan Chloë Moretz hinum megin á síma-
línunni. „Hafa verður í huga að þetta er tilbúin persóna;
það er ekki Chloë sem fólk sér í myndinni. Þetta er eins
langt frá raunveruleikanum og hugsast getur. Ef ég not-
aði orðbragð eins og persónan í myndinni er ég hrædd
um foreldrar mínir lokuðu mig inni,“ segir hún og hlær.
Ekki þarf einu sinni að nefna starfann; þá yrði hún lokuð
inni af öðrum yfirvöldum.
Kvikmyndin sem um ræðir heitir Kick-Ass og er has-
armynd en þó í léttum dúr; þar segir frá venjulegu fólki
sem ákveður að bregða sér í hlutverk ofurhetja, þrátt
fyrir að skorta til þess líkamsburði en allt er hægt í bíó,
ekki síst þegar fyrirmyndirnar eru úr heimi teikni-
myndasagna eins og í þessu tilfelli.
Hin unga Moretz fer með hlutverk ellefu ára leigu-
morðingja og hefur verið þjálfuð af föður sínum (Nicolas
Cage) til þess að berjast við ákveðna fauta og blótsyrðin
eru þannig að orðljótustu menn fram að þessu komast
vart með tær þar sem hún hefur hæla.
Myndin var frumsýnd í Bretlandi fyrr á árinu en sam-
tímis á Íslandi og í Bandaríkjunum á föstudag.
Leikstjórinn Matthew Vaughn bauð öllum stóru kvik-
myndaverunum í Hollywood að gera myndina á sínum
tíma en engu þeirra leist á; m.a. var að því fundið að 11
ára stúlka notaði jafn grófan munnsöfnuð og raun ber
vitni, að ekki sé minnst á ofbeldið. Vaughn gaf sig ekki
og fjármagnaði myndina með öðrum hætti.
Eftir að glefsur úr myndinni voru sýndar við gríðar-
lega góðar viðtökur á Comic Con-hátíðinni í San Fran-
cisco í fyrrasumar vaknaði áhugi þeirra stóru á ný og
Vaughn greip til þess ráðs að bjóða fulltrúum þeirra allra
á sýningu myndarinnar í Los Angeles í nóvember. Þar
var einnig stór hópur almennra borgara. Viðbrögð í
salnum þóttu með ólíkindum; fagnaðarlátum ætlaði
ekki að linna. Eftir að hinn almenni borgari hvarf á braut
kom Vaughn á óvart og hóf uppboð fyrir kvikmynda-
verin. Þá reyndist áhuginn mikill á því að dreifa mynd-
inni!
Moretz hefur þegar leikið í fjölda kvikmynda, nóg er
að gera, því á árinu eru frumsýndar hvorki fleiri né færri
en þrjár þar sem hún fer með hlutverk.
Er þetta ekki dálítið mikil vinna fyrir 12 ára stúlku,
spyr blaðamaður. Símtalið átti sér stað fyrr í vetur.
„Ég er orðin 13,“ er svarið. „Átti afmæli í fyrradag og
ætla að halda upp á það í kvöld. Þá koma nokkrar vin-
konur mínar í heimsókn.“
Sko; bara venjuleg stelpa.
Hún er fædd nærri Atlanta í Georgíuríki en leikkonan
unga segir fjölskylduna hafa flust til Los Angeles vegna
starfa föður síns þegar hún var barnung.
Leiklistarferillinn hófst þegar hún var aðeins fimm
ára. Hvernig kom það til?
„Bróðir minn var þá í leiklistarskóla og þetta byrjaði
eiginlega þegar hann var heima að æfa sig. Þá gekk ég
um gólf með honum og þuldi rullurnar. Hafði mjög
gaman af og á endanum var ég farin að leika á móti hon- Moretz í hlutverki sínu í Kick-Ass, búin að fella nokkra óþokka sem oftar.
Yrði lokuð inni bara
fyrir orðbragðið
Ellefu ára leigumorðingjar eru
ekki á hverju strjái, guði sé lof,
en einn slíkur hefur verið á
vappi í kvikmyndahúsum víða
um heim undanfarið og er nú
kominn til Íslands.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Chloë Moretz segist bara venjulega 13 ára stelpa. Pabbi og mamma lesa handritin yfir, segir hún.