Morgunblaðið - 14.01.2010, Blaðsíða 37
Dagbók 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010
Sudoku
Frumstig
3 2
8
1 6
5 9 8 2 6
6 5 9
2 8 3 7
2 8
2 1
6 7 5 3
7 9 1 3 5
1 9
6 9 4 7
2 4 9
2 5 4 7
3
9 2 1 7
3 4 6
4 7 5 9
5 2 3
8 2 7
7 2 6
3 9
5 7
8 3 7
6 4 5
6 8
7 4 3 2 9 8 5 1 6
5 9 8 1 6 7 4 3 2
1 2 6 5 4 3 7 8 9
3 1 4 6 2 5 9 7 8
8 6 2 7 1 9 3 4 5
9 5 7 8 3 4 6 2 1
4 8 5 9 7 2 1 6 3
2 3 1 4 5 6 8 9 7
6 7 9 3 8 1 2 5 4
4 3 8 1 7 9 2 5 6
6 9 5 2 4 8 7 1 3
7 1 2 3 6 5 4 9 8
1 5 9 7 8 2 6 3 4
2 7 4 6 9 3 1 8 5
3 8 6 4 5 1 9 7 2
5 4 3 9 2 7 8 6 1
9 2 1 8 3 6 5 4 7
8 6 7 5 1 4 3 2 9
2 6 4 7 8 3 9 5 1
5 9 3 6 2 1 8 7 4
7 1 8 4 5 9 3 6 2
4 2 1 5 9 6 7 8 3
3 7 9 2 1 8 5 4 6
6 8 5 3 4 7 2 1 9
9 3 6 1 7 5 4 2 8
1 5 2 8 3 4 6 9 7
8 4 7 9 6 2 1 3 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 14. janúar,
14. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Reglur þínar eru dásam-
legar, þess vegna heldur sál mín þær.
Útskýring orðs þíns upplýsir, gjörir fá-
vísa vitra. (Sl. 119, 129-130.)
ÁÍslandi er brennivínið orðið svodýrt að maður hefur ekki leng-
ur efni á að kaupa sér skó, sagði
Þórður Guðjohnsen í einhverri dýr-
tíðinni þegar hann stóð við barinn á
Naustinu og varð fleygt. Þessi orð
eiga vel við nú og komu upp í huga
Víkverja þegar hann rakst á grein í
Der Spiegel um verðstríð í Þýska-
landi. Þar ganga þær verslanir, sem
bjóða lægsta verðið (Víkverji kann
ekki að meta orðið lágvöruverðs-
verslun og hefur aldrei áttað sig á
hvers konar vörur lágvörur eru), svo
langt í að þrýsta niður verðinu á bjór
að hann er jafnvel ódýrari en blávatn.
Tekið er dæmi um bjórkassa á 3,77
evrur (680 krónur). Í kassanum eru
20 hálfslítraflöskur, sem kosta tæp
19 sent (34 krónur) hver. Einn lítri
kostar þá 38 sent (68 krónur). Ætla
mætti að hér hlyti að vera um tómt
bjórsull að ræða, enda virðist úti-
lokað að það svari kostnaði að fram-
leiða bjór fyrir þetta verð. Talsmenn
verslananna segjast hins vegar ekki
selja bjórinn undir kostnaðarverði,
enda væri það ólöglegt.
x x x
Bjórdrykkja hefur farið minnk-andi í Þýskalandi (þrátt fyrir
það að verðið sé lágt, en það er best
að talsmenn forvarnargildis hás
áfengisverðs láti það ekki halda fyrir
sér vöku) undanfarið. Árið 1990
drakk hver Þjóðverji 142,7 lítra af
bjór, en nú er það komið niður í 111,1
lítra. Brugghúsum hefur hins vegar
ekki fækkað og þau þurfa að koma
framleiðslunni út. Þau reyna því að
selja merkjabjórinn dýrara verði, en
láta síðan hluta framleiðslunnar til
tilboðsverslana á mun lægra verði.
Samkvæmt því niðurgreiða brugg-
ararnir ódýra bjórinn.
x x x
Samdrátturinn í neyslunni virðisteinnig hafa áhrif á gæði fram-
leiðslunnar. Mikið hefur verið gert úr
þýsku hreinlætislögunum, sem eigi
að tryggja Þjóðverjum afbragðsbjór.
Der Spiegel segir að þetta sé ein
mesta kynningargoðsögnin í ný-
lenduvörubransanum. Nú bruggi að-
eins örfáir framleiðendur í anda gam-
alla hefða. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 sjávarbakkar,
8 fuglar, 9 kvendýr, 10
gljúfur, 11 kvenguð, 13
vesælar, 15 ýldir, 18 dul-
in gremja, 21 eldstæði,
22 hneisa, 23 matarbiti,
24 mikill þjófur.
Lóðrétt | 2 ímugustur, 3
greiða, 4 hrópa, 5 tóm-
um, 6 klettur, 7 ósoðinn,
12 gælunafn, 14 kyrr, 15
úrræði, 16 fisks, 17 lof-
um, 18 sigruð, 19 nátt-
uðu, 20 sleit.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rimar, 4 seldu, 7 maður, 8 liðug, 9 tám, 11
arra, 13 ánar, 14 nefið, 15 senn, 17 illt, 20 brá, 22 gunga,
23 lokar, 24 reiða, 25 Agnar.
Lóðrétt: 1 rimpa, 2 móður, 3 rýrt, 4 sálm, 5 liðin, 6 ugg-
ur, 10 álfar, 12 ann, 13 áði, 15 sægur, 16 nenni, 18 lúkan,
19 tærar, 20 bana, 21 álka.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp á rússneska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Moskvu. Artyom Timofeev (2651)
hafði hvítt gegn kollega sínum í stór-
meistarastétt, Denis Khismatullin
(2643). 49. b4!! stórbrotin hróksfórn.
Í framhaldinu fær hvítur fjögur sam-
stæð frípeð sem svartur ræður ekki
við þótt hann hafi tvo hróka gegn
einum riddara. 49…bxa5 50. bxa5
Ha8 51. a6 e4 52. fxe4 Kd7 53. Rf5
He8 54. c6+ Kd8 55. Rd6! He7 56.
Kc5 f5 57. exf5 He2 58. Rb7+ Ke8
59. d6 Hxg2 60. d7+ Ke7 61. f6+
Kxf6 62. c7 og svartur gafst upp.
Sigurvegari mótsins varð Alexander
Grischuk (2736) en hann fékk 6 1/2
vinning af níu mögulegum en Peter
Svidler (2754) varð annar með 6
vinninga.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Gangur sögunnar.
Norður
♠73
♥ÁKG9
♦ÁD
♣DG1094
Vestur Austur
♠ÁD862 ♠G54
♥87542 ♥D10
♦9 ♦G107542
♣52 ♣K6
Suður
♠K109
♥63
♦K863
♣Á873
Suður spilar 3G.
Sagt er, að erfitt sé að spá, einkum
um framtíðina. Um það má deila. Oft er
framtíðin rökrétt framhald hins liðna og
ætti því að vera fyrirsjáanleg ef reglan
að baki er þekkt. Það er til dæmis auð-
velt að spá fyrir um örlög þessa samn-
ings. Útspilið er spaði upp á gosa og
kóng.
Framtíðin sýnist mörkuð: Sagnhafi
mun fara inn í borð á ♥Á og svína fyrir
♣K. Svíningin heppnast og þar eð ♥D10
falla undir tvo efstu fær sagnhafi alla
slagina þrettán. Mjög fyrirsjáanleg og
óspennandi saga. Eða hvað?
Ekki endilega. Með einum ósvífnum
leik getur austur breytt gangi sögunnar
– ef hann lætur ♥D falla undir ásinn í
öðrum slag! Þá mun sagnhafi hætta við
laufsvíninguna og reyna við fjóra hjarta-
slagi með „sannaðri“ svíningu fyrir ♥10.
Hrútur Ferðalög eru þínar ær og kýr og
þú skalt bara láta það eftir þér að skipu-
leggja draumaferðina. Þú veist ekki í
hvorn fótinn þú átt að stíga í ástamál-
unum
(20. apríl - 20. maí)
Naut Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Vinur á erfitt, vertu til staðar fyrir hann.
Þú setur einhverjum afarkosti, því miður
er ekki annað í stöðunni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ekki er gott að átta sig á því
hvar landið liggur í samskiptum við yf-
irboðara núna. Hver er sinnar gæfu smið-
ur, og það á við þig sem alla aðra. Fólk er
þér einfaldlega ekki sammála.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur verið miðdepill slúðurs
áður og kippir þér ekki upp við það. Þú
kemur skriði á verkefni sem hefur setið á
hakanum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Gættu þess að láta ímyndunaraflið
ekki hlaupa með þig í gönur og temdu þér
meiri tillitssemi í samskiptum við aðra.
Þig langar að setjast í helgan stein.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Af mörgum ólíkum ástæðum sérðu
nú gildi þess að taka frá tíma til að horfa á
hafið. Gefðu þér góðan tíma til að sinna
félagslífinu líka.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú gætir laðast sterklega að ein-
hverjum í dag, ástríður gera vart við sig í
samböndum. Láttu þér samt ekki detta í
hug að þetta haldist óbreytt um alla eilífð.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Vinur sýnir þér mikinn skiln-
ing í dag. Er hugsanlegt að óskirnar ræt-
ist frekar ef manni er sama? Þú ætlar og
þráir, en leyfir hlutunum að hafa sinn
gang.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú hefur gert of miklar kröfur
til þín og annarra. Eyddu ekki tíma í und-
anbrögð, heldur gakktu hreint til verks og
kipptu öllu í liðinn aftur.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert farin/n að sjá gildi góðr-
ar vináttu, engu eigum við að taka sem
sjálfsögðum hlut. Hugsaðu þinn gang og
leyfðu tímanum að vinna með þér.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér verða fengin ný verkefni og
þótt þér lítist hreint ekki á þau við fyrstu
sýn skaltu hefjast handa ótrauð/ur. Þakk-
aðu fyrir það sem þú átt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Eitthvað verður til þess að róta
upp í gömlum tilfinningum svo þú þarft að
koma þér í jafnvægi aftur. Þú verður að
sætta þig við ákvörðun annarra, meiri-
hlutinn ræður.
Stjörnuspá
Þetta gerðist …
14. janúar 1923
Ofsaveður var á útsunnan. Ör-
firiseyjargarðurinn í Reykja-
vík hrundi á 150 metra löngu
svæði (gert var við hann um
sumarið). Brimbrjótur á Hell-
issandi hrundi einnig í veðr-
inu. Tjón varð á bátum og ell-
efu manns fórust.
14. janúar 1976
Ólafur Jóhann Sigurðsson
hlaut bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs, fyrstur Ís-
lendinga. Þau voru afhent 1.
mars.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Heiðurshjónin Björk Axelsdóttir
og Jón Sveinn Pálsson eiga fimmtíu
ára brúðkaupsafmæli í dag, 14. jan-
úar. Þau verða að heiman á gull-
brúðkaupsdaginn.
Gullbrúðkaup
Ásgeir J. Þor-
valdsson er
fimmtugur í dag,
14. janúar. Í til-
efni þess býður
hann ættingjum
og vinum til
léttra veitinga
laugardaginn
16. janúar á
heimili sínu í Hálsaseli 20 milli kl.
16 og 19.
50 ára
EKKI reiknar Sæmundur Sigmundsson, sérleyf-
ishafi í Borgarnesi, með miklum hátíðahöldum í
dag á 75 ára afmælinu. Segist vera á móti öllu til-
standi og hafi aldrei haldið upp á afmælið sitt. Hann
þakkar fyrir heilsuna og árin sem hann hefur feng-
ið, en segist efast um að slegið verði í tertu.
„Þetta er bara venjulegur virkur dagur og ég
reikna með að verða við skólaakstur í Borgarfirð-
inum og keyri krakkana í skólann eins og venju-
lega,“ segir Sæmundur. Hann settist fyrst undir
stýri fyrir tæpum 60 árum, þá 16 ára réttindalaus
strákur í vegavinnu. Akstur og rekstur Hópferða-
og sérleyfisbíla Sæmundar hefur verið ævistarf hans. Fyrsta sérleyfið
fékk fyrirtækið 1958 og sérleyfunum fjölgaði jafnt og þétt með kaupum
á fyrirtækjum og bílum. Fyrir fimm árum lauk þessum þætti því sér-
leyfin voru boðin út og Sæmundur ákvað að taka ekki þátt í því, fannst
öðrum þræði að verið væri að setja ævistarf hans á uppboð. Hann er enn
með 25 bíla í rekstri, mest í skólaakstri og því sem til fellur.
„Nei, nei ég er ekki með króníska bíladellu,“ segir Sæmundur. „Nú
orðið hef ég mest gaman af gömlum bílum og traktorum. Ég hef komið
mér upp smásafni þar sem ég er með tvo traktora og fjóra gamla bíla,
þar á meðal rútu frá 1947, sem er enn gangfær. Jú víst á ég líka tvö mót-
orhjól, en þau eru nú bara leikföng.“ aij@mbl.is
Sæmundur Sigmundsson sérleyfishafi 75 ára
Venjulegur virkur dagur
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is