Morgunblaðið - 14.01.2010, Síða 15

Morgunblaðið - 14.01.2010, Síða 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010 ELLEFU einstaklingar gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ, sem fram fer laugardaginn 30. janúar nk. Í framboði eru fimm karlar og sex konur. Þau eru: Anna Sigríður Guðnadóttir upplýsingastjóri, 2. sæti, Baldur Ingi Ólafs- son hópstjóri, 3. sæti, Gerður Pálsdóttir, sérkennslustjóri og þroskaþjálfi, 5. sæti, Gunnlaugur B. Ólafsson framhaldsskólakennari, 1.- 3. sæti, Hanna Bjartmars Arnardóttir, bæjarfulltrúi og grunnskólakennari, 2. sæti, Jónas Rafnar Ingason viðskiptafræðingur, 3.- 6. sæti, Jónas Sigurðsson bæj- arfulltrúi, 1. sæti, Lísa Sigríður Greipsson grunnskólakennari, 2.- 5 . sæti, Sigrún Pálsdóttir verkefnisstjóri, 1.- 3. sæti, Valdimar Leó Friðriksson framkvæmdastjóri, 1. sæti, og Þóra Bjarney Guðmundsdóttir bílstjóri, sem sækist eftir 2. sæti. Ellefu í framboði hjá Samfylkingunni FORSETI bæj- arstjórnar Ak- ureyrar, Sigrún Björk Jak- obsdóttir, gefur kost á sér í 1. sæti á lista Sjálfstæð- isflokksins í próf- kjöri flokksins í bænum sem fram fer þann 13. febrúar nk. Sigrún Björk vill 1. sæti á Akureyri HAFSTEINN Karlsson, bæj- arfulltrúi í Kópa- vogi, hefur ákveð- ið að bjóða sig fram í 2. sæti á lista Samfylking- arinnar í Kópavogi í prófkjöri flokksins sem fram fer þann 30. janúar nk. Hafsteinn vill 2. sæti í Kópavogi ELÍN Margrét Hallgrímsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins fyrir bæj- arstjórnarkosn- ingarnar Akureyri, sem haldið verður þann 13. febrúar nk. Elín Margrét stefnir á 2. sæti á Akureyri PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fer fram 30. janúar næstkomandi. Framboðsfrestur er runninn út og bárust kjörnefnd 13 lögmæt framboð. Haraldur Ólason, sem verið hefur leiðtogi sjálfstæð- ismanna á tímabilinu, gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Eftirtaldir hafa gefið kost á sér: Elín Sigríður Óladóttir, Geir Jóns- son, Helga Ingólfsdóttir, Helga Ragnheiður Stefánsdóttir, Jóhanna Fríða Dalkvist, Kristinn Andersen, María Kristín Gylfadóttir, Ólafur Ingi Tómasson, Rósa Guðbjartsdóttir, Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, Skarphéðinn Orri Björnsson, Valdimar Svavarsson og Þóroddur Steinn Skaptason. Þrettán bjóða sig fram í Hafnarfirði HERMANN Jón Tómasson, bæj- arstjóri á Ak- ureyri, gefur kost á sér í fyrsta sæti í prófkjöri Samfylk- ingarinnar á Ak- ureyri fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Próf- kjörið fer fram þann 30. janúar nk. Hermann Jón vill 1. sæti á Akureyri JÓN Ingi Cæs- arsson, dreifing- arstjóri og vara- bæjarfulltrúi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-5. sæti í próf- kjöri Samfylking- arinnar á Akureyri, sem fram fer þann 30. janúar nk. Jón Ingi vill 3.-5. sæti á Akureyri GUNNAR Axel Axelsson, við- skiptafræðingur og formaður Sam- fylkingarinnar í Hafnarfirði, gefur kost á sér í 2.-3. sæti í prófkjöri flokksins í bænum, sem haldið verð- ur dagana 28.-30. janúar nk. Gunnar Axel stefn- ir á 2.-3. sæti ÁSLAUG María Friðriksdóttir, for- maður Hvatar og varaborg- arfulltrúi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4. sæti á lista sjálfstæð- ismanna í Reykjavík í prófkjöri flokksins þann 23. janúar nk. Áslaug María vill 4. sæti í Reykjavík MARGRÉT Gauja Magnúsdóttir, kennari og bæj- arfulltrúi í Hafn- arfirði, gefur kost á sér 2. sæti á lista Samfylking- arinnar í bænum í prófkjöri sem fram fer þann 30. janúar nk. Margrét Gauja stefnir á 2. sæti LÍF Magneudóttir, vefstjóri, þýðandi og menntaður grunnskólakenn- ari, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Vinstri grænna í Reykjavík, sem fram fer þann 6. febrúar nk. Líf Magneudóttir sækist eftir 2. sæti PÁLL Hilmarsson, bæjarfulltrúi og forseti bæj- arstjórnar, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1. sæti í prófkjöri sjálf- stæðismanna í Garðabæ sem haldið verður þann 6. febrúar næstkomandi. Páll Hilmarsson vill 1. sæti í Garðabæ SIGMUNDUR Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokksins, sagði á hádegisfundi með flokksfélögum sínum á Hótel Borg í gær að það hlyti að vera algjört frumskilyrði að ná sameiginlegri niðurstöðu í deilunni um Icesave. Ríkisstjórnin og stjórnarþingmenn hefðu ekki komið hreint fram og búið til spuna um að stjórn- arandstæðan þyrði ekki í þjóðaratkvæðagreiðslu. Stjórn- arliðar hefðu að fyrra bragði boðið stjórnarandstöðunni að setjast til samráðs, daginn sem forseti Íslands synjaði lögunum um Icesave, en þar hefði hugur ekki fylgt máli. „Það hlýtur að vera frumskilyrði að ríkisstjórn lands- ins sé tilbúin til að verja hagsmuni þess út á við og þiggja þá aðstoð sem býðst. Við leggjum mikla áherslu á að ef samráð á að vera áfram, þá verður ríkisstjórnin að lýsa því yfir að núverandi samningsmarkmið séu ekki nógu góð fyrir Íslendinga eða að við mættum gera betur,“ sagði Sigmundur Davíð. Hann sagði framsóknarmenn margsinnis hafa varað við því sem gæti gerst varðandi Icesave og því miður hefði flestallt ræst. Á þá hefði ekki verið hlustað. Snýst ekki um líf ríkisstjórnarinnar Hann sagði framsóknarmenn hafa staðið við þær yfir- lýsingar að þeir vildu ekki nota niðurstöðuna í Icesave- málinu til að knýja á um að ríkisstjórnin færi frá. „Ég veit að það mæltist vel fyrir í ákveðnum hópi hjá Vinstri grænum því það var alltaf notað á þau að hjá stjórnar- andstöðunni snerist þetta bara um að koma höggi á rík- isstjórnina. Það var mikilvægt fyrir þau að geta vísað í það að a.m.k. Framsóknarflokkurinn ætlaði ekki að nota þetta í þeim tilgangi, og við það höfum við staðið,“ sagði Sigmundur og benti á að samdægurs og forsetinn synjaði lögunum staðfestingar hefði hann ítrekað verið spurður hvort þessi niðurstaða þýddi ekki að ríkisstjórnin þyrfti að fara frá. „Ég taldi svo ekki vera og rifjaði upp að við hefðum heitið stjórninni stuðningi við að leysa úr málinu ef þetta félli svona eins og það gerði. Við munum áfram ítreka og benda á að auðvitað eigi þjóðaratkvæða- greiðslan ekki að snúast um líf stjórnarinnar,“ sagði Sig- mundur Davíð ennfremur á fundinum. Sigmundur Davíð sagði algjörlega nauðsynlegt að ef ákveðið yrði að fara í nýjar viðræður við Breta og Hol- lendinga, þá yrði skipuð ný samninganefnd fyrir hönd Ís- lendinga. Það hefði verið stórfurðulegt, eftir að Alþingi samþykkti fyrirvarana í haust, að sömu samningamenn hefðu verið sendir til að ná niðurstöðu að nýju. Formaður Framsóknarflokksins sagðist hafa verið í góðu sambandi við systurflokka sína á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu. Síðast í gær hefði hann átt símafund með forsætisráðherra Finnlands. Miklu skipti að fá stuðning að utan, þar sem umræðan færi fram um Ice- save í mörgum löndum Evrópu. bjb@mbl.is Skilyrði að ná sameig- inlegri niðurstöðu Sigmundur Davíð, formaður Framsóknarflokksins, segir ríkisstjórnina verða að þiggja þá aðstoð sem býðst Sigmundur Davíð kom með eftirfarandi dæmisögu af sporðdrekanum og græna froskinum, er hann fjallaði um viðhorf og framkomu ríkisstjórnarinnar gagnvart stjórnarandstöðunni. „Sporðdrekinn hitti froskinn græna við árbakkann og bað hann að synda með sig yfir á hinn bakkann. Froskinum leist ekki al- veg á þetta því að hann vissi að sporðdrekar væru hættuleg dýr. Það stóð ekki á svörum hjá sporðdrek- anum sem sagði: „Þú hlýtur að sjá það, ef ég sting þig þá drukknum við báðir.“ Froskurinn féllst á þetta, setti sporðdrekann upp á bak og synti yfir ána. En á miðri leið stingur sporðdrekinn hann. Þeir eru þá báðir að drukkna og froskurinn spyr: „Hvers vegna? Nú drukknum við báðir.“ Þá svaraði sporð- drekinn: „Ég bara réð ekki við mig, þetta er eðli mitt.““ Sporðdrekinn og froskurinn Morgunblaðið/Heiddi Framsókn Sigmundur Davíð og Vigdís Hauksdóttir funduðu með flokksmönnum sínum á Hótel Borg í hádeginu í gær. KOSIÐ verður til sveitarstjórna hér á landi í maí næstkomandi. Morgunblaðið mun þangað til reglulega birta fréttir sem tengjast framboðum, prófkjörum, kosningafundum o.fl. Kosningar árið 2010 ÞRÁTT fyrir kreppuna eru sem bet- ur fer einhverjir sem enn treysta sér til að ráðast í framkvæmdir. Á Arn- arnesi í Garðabæ eru einmitt nokkuð umfangsmiklar framkvæmdir í vændum, en þar stendur til að rífa gamalt íbúðarhús og byggja annað stærra á lóðinni. Húsið stendur að Mávanesi 17 og er í eigu þeirra hjóna Árna Hauks- sonar og Ingu Lindar Karlsdóttur. Þau festu kaup á húsinu síðastliðið vor en þar hefur enginn búið í mörg ár að sögn Árna. „Húsið sem þarna stendur er ónýtt, það er að hruni komið og meira að segja byrjað að hrynja úr því loftið. Það er búið að vera kalt í nokkur ár og fyrri eigandi ætlaði að rífa það og byggja nýtt. Þannig að það hefur ekki staðið til lengi að lappa upp á það.“ Byggingarfulltrúi Garðabæjar hefur þegar veitt leyfi til niðurrifs á húsinu, sem er byggt árið 1966 og er því tæplega 50 ára gamall. Veitt hef- ur verið leyfi til byggingar á 759 fm einbýlishúsi þess í stað og gerir Árni ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í vor. „Var ekki verið að hvetja fólk til framkvæmda? Ég held að þetta sé ágætis tími til að ráðast í svona verk,“ segir Árni. Telja má víst að verktakar sem nú sitja með auðar hendur taki verkefninu fagnandi. Framkvæmdagleðin ekki dauð úr öllum æðum Rífa einbýlishús á Arnarnesi fyrir annað stærra Morgunblaðið/Árni Sæberg Mávanes 17 Húsið sem er 356 fm hefur lengi staðið tómt enda er farið að sjá á því. Eigendur stefna að því að byggja stærra hús fyrir fjölskylduna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.