Morgunblaðið - 14.01.2010, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.01.2010, Blaðsíða 39
Menning 39FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010 Þarna var allt í einu málverk uppi á vegg og það er mjög óvenjulegt af þessari kynslóð... 44 » EVRÓPURÁÐIÐ hefur nú í annað sinn stofnað til stutt- myndasamkeppni í tengslum við frumkvöðlastarf, „The European Entrepreneurship Video Awards 2010“. Stuttmyndunum er ætlað að snúast um hvað það er að vera frumkvöðull og athafnamaður, eða athafnakona, og er keppn- in haldin á vegum aðalskrif- stofa framkvæmdastjórn- arinnar á sviði fyrirtækja og iðnaðar. Áhugasamir þátttakendur geta skráð sig til 9. apríl á heimasíðunni www.ec.europa.eu/eeva2010. Keppt er í þremur flokkum og veitt peninga- verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki. Kvikmyndagerð Stuttmyndir um frumkvöðlastarf Áskorun fyrir kvik- myndagerðarfólk. FYRSTI fyrirlestur Hönn- unarmiðstöðvar Íslands og Listasafns Reykjavíkur á þessu ári verður haldinn í kvöld, fimmtudagskvöld, í Hafnarhús- inu og hefst klukkan 20.00. Rúnar Ómarsson, fram- kvæmdastjóri og einn af stofn- endum fatahönnunarfyrirtæk- isins Nikita, mun segja sögu fyrirtækisins, sem stofnað var í ársbyrjun 2000. Rúnar hefur 10 ára reynslu í markaðssetningu á íslenskri hönnun á alþjóðavettvangi, en jafnframt ákveðnar skoðanir á markaðssókn íslenskra fyrirtækja á erlendri grundu. Vörur Nikita eru fáanlegar í um 1.500 verslunum í 30 löndum. Hönnun Rúnar Ómarsson segir sögu Nikita Rúnar Ómarsson LETURHÖNNUÐURINN Eben Sorkin heldur fyrirlestur á vegum Opna listaháskólans á hádeginu á morgun, föstudag, í stofu 113 í Skipholti 1. Fyrir- lesturinn hefst klukkan 12.05 og nefnist „Leturhönnun: Skýrleiki, sjónleiki, læsileiki“. Skýrleiki og læsileiki eru tveir aðalþættir við hönnun let- urs en þeim er oft ruglað sam- an. Fyrirlesturinn tekur mið af þessum tveimur þáttum bæði frá menningarlegum, sjónrænum og jafnvægissjónarmiðum. Sorkin útskrifaðist nýlega með sæmd með MA í leturhönnun í Reading í Bretlandi. Áður hafði hann búið í Alaska og unnið sem hönnuður. Hönnun Skýrleiki og læsi- leiki leturs Eben Sorkin Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is ÉG hef unnið hér við safnið af og til í sjö ár og þekki vel til; þetta er því eins og að sýna heima hjá sér,“ segir myndlist- armaðurinn Joris Rademaker og hlær. Yfirlitssýning á verkum hans verður opnuð í Listasafninu á Akureyri á laugardag en þar í bæ hefur Joris, sem er hollenskur að uppruna, búið síðastliðin 18 ár. Hann hefur rekið gallerí á Akureyri og var bæjarlistamaður fyrir þremur árum. „Þá dvaldi ég reyndar í níu mánuði í Amsterdam,“ segir hann. „Ég bjó uppi á fjórðu hæð og horfði oft yfir borgina. Það vantaði alltaf eitthvað. Augun voru að leita. Svo kom í ljós að þau söknuðu fjallanna,“ segir Akureyringunni Jor- is, sem er orðinn vanur því að hafa Vaðlaheiði, Hlíðarfjall og Kerlingu fyrir augunum. Notar líkamann sem grunn Elstu verkin eru frá árinu 1992, gerð ári eftir að Joris flutti til Íslands. „Ég hef aldrei kunnað að búa til stök verk þegar ég er að mála, þetta verða alltaf seríur,“ segir hann. „Þegar ég hinsvegar vinn í skúlptúr, í þrívídd, þá er ekk- ert mál að gera stök verk. Ég sýni hér mest seríur og þemu sem ég hef verið að rannsaka. Það hefur oft tekið mig nokkur ár að ljúka hverri seríu, en ég hugsa líka um seríuna sem eitt verk.“ Joris segir að áður en hann flutti til Íslands hafi hann unnið að einskonar skynvillumálverkum. „Þegar ég kom til Íslands var umhverfið allt annað en ég átti að venjast. Hér var þetta myrkur, sem lýstist upp þegar snjóaði en þegar hlánaði um nótt varð allt aftur svart,“ segir Joris – og verkin breyttust. Þá fór hann að blása svartri málningu á pappír í verkum „sem litu út eins og abstrakt express- jónismi en voru líkamlegri. Ég er alltaf að nota líkamann sem grunn.“ Um tíma gerði Joris verk þar sem hann felldi tannstöngla í hundraðatali í fundna hluti, eins og kolla og kassa. Árið 2000 fór hann að mála með spagettílengjum, sem hann mótaði mjúkar línur með og spreyjaði yfir. Síð- ustu tvö árin hefur hann notað kartöflur, sem hann sker form úr, við gerð verkanna. „Það er gaman að stilla þessum verkum upp saman. Ég sé nú betur hvað þetta er allt tengt,“ segir Joris. Saknaði eyfirskra fjalla  Yfirlitssýning á verkum Joris Rademakers opnuð í Listasafninu á Akureyri  „Ég hef aldrei kunnað að búa til stök verk þegar ég er að mála“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Er þetta skakkt? Joris Rademaker hengir upp yfirlitssýningu sína í Listasafninu á Akureyri. Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is KRISTINN G. Jóhannsson listmálari á Ak- ureyri hefur fengist við það undanfarin ár að festa á striga brekkurnar fögru sem bærinn er svo kunnur fyrir. Vopnaður pensli og olíu- málningu situr hann dagana langa en grípur stöku sinnum til vatnslitanna í hvíldarskyni. Með þeim pensli töfrar hann fram sömu slóðir. Fyrir dyrum stendum sýning, sú þriðja í brekku-röð Kristins. Flautað verður til leiks í JV Galleríi í Listagilinu kl. 15 á laugardaginn. Nú er veturinn kominn í myndirnar. „Það er við hæfi,“ segir listamaðurinn. „Ég er enn genginn í brekkur. Sýndi árið 2006, í Ketilhúsinu, sumrið í brekkunum upp af Fjörunni og hét Málverk um Búðargil og brekkurnar. Hér, hjá Jónasi Viðari, sýndi ég ykkur fyrir ári Haustbrekkur, höfgan gróður að syngja sitt síðasta með trega, flúri og fag- urgala.“ Segja má að efni sýningarinnar nú eigi vel við; kannski í Kristni leynist veðurspámaður! „Nú hefur snjóað yfir allt það litskrúð,“ seg- ir hann í beinu framhaldi lýsingar á haust- brekkusýningunni, „en brekkurnar eru þarna enn og húsin undir rótum þeirra og enn er ég að fást við litbrigðin, sem verða af samspili þess sem er og uppspunans sem þarf við gerð málverks. Bragur um brekkur Fólk fær að fylgjast með hvernig fram vind- ur bragnum um brekkurnar í Innbænum og þessa sýningu, sem er í beinu framhaldi af hinum fyrrnefndu, kalla ég Vetrarbrekkur til aðgreiningar. Held hér áfram samtali við nán- asta umhverfi mitt og nálgast það í endur- tekinni leit að einhverju sem nefna mætti per- sónulega túlkun, hvort á einstaka stað auðnist mér að hitta á einhvers konar klaufaskap eða tiktúrur sem nægi til að úr verði sjálfstæð sýn og dugi til málverks. Það kann þó að vera bor- in von … Þekki fólk ekki brekkurnar er það til merkis um að mér hafi mistekist með öllu!“ Kristinn er rúmlega sjötugur en hefur nóg að gera. „Ég héldi líklega ekki geðheilsunni nema hafa eitthvað fyrir stafni.“ Hann tekur daginn snemma. „Ég er mætt- ur hingað í vinnustofuna klukkan átta á morgnana, stundum fyrr, og sit við. Bless- unarlega hef ég svo það verkefni eftir hádegi að aðstoða dótturdætur mínar aðeins við heimanámið.“ Ekki ónýtt að hafa gamlan skólastjóra sér til aðstoðar. „Ég er staddur í 9 sinnum töfl- unni.“ Vetur í brekkunum Kristinn G. Jóhannsson á Akureyri flytur þriðja braginn um brekkurnar í höfuðstað Norðurlands Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þriðji bragurinn „Brekkurnar eru þarna enn og húsin undir rótum þeirra,“ segir Kristinn G. TILKYNNT var í gær að spænsk- íslenska listamannatvíeykið Libia Castro og Ólafur Ólafsson hefði ver- ið valið til að sýna fyrir Íslands hönd á Feneyjatvíæringnum á næsta ári. Libia Castro og Ólafur kynntust í Hollandi árið 1997 og hafa síðan unnið saman að listsköpun og sýnt víða. Samstarfsverkefni þeirra hafa vakið athygli víða um lönd en þau hlutu á síðasta ári þriðju verðlaun virtra hollenskra myndlistar- verðlauna, Prix de Roma. Þau Ólaf- ur og Castro eru búsett í Berlín og Rotterdam. Ólafur segir að þau Libia hafi vit- að af þessari niðurstöðu um tíma en þau væru ekki búin að ákveða hvað þau hygðust gera á tvíæringnum. Í nálægð við samfélagið „Við munum halda áfram eins og við höfum verið að vinna,“ segir hann. „Hvort við förum út í að vinna í Feneyjum, hér eða allt annars stað- ar verður að koma í ljós.“ Þau Libia vinna í ýmsa miðla og þjóna miðlarnir iðulega efninu. „Okkar vinnubrögð mótast mikið af samræðum. Við höfum unnið ým- ist saman eða hvort í sínu lagi, í mis- munandi miðla, þar sem stóra sam- hengið er sameiginlegt. Við viljum gjarnan vinna í nálægð við sam- félagið og mismunandi heima þess.“ Þegar Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra tilkynnti valið á listamönnunum í gær sagði hún að á þessum niðurskurðartímum hefði komið upp sú umræða að taka ekki þátt í tvíæringnum. „Niðurstaðan varð sú að það væri mikilvægt að ekki yrði rof á þessari þátttöku,“ sagði Katrín. efi@mbl.is Ólafur og Libia valin Fulltrúar Íslands í Feneyjum 2011 Til Feneyja Libia Castro og Ólafur verða fulltrúar Íslands á næsta ári. Yfirlitssýning á verkum hollenska mynd- listarmannsins Joris Rademakers verður opnuð í Listasafninu á Akureyri á laug- ardaginn klukkan 15.00. Joris hefur verið búsettur á Akureyri í nær tvo áratugi og hefur verið þar bæj- arlistamaður. Myndlist hans spannar ólík- ar stefnur og rýfur skörð í múra sem eitt sinn stóðu fyrir kynslóðabil andstæðra fylkinga listamanna. Hann vinnur með hugsanaflæði, tvívítt og þrívítt, og styðst við fundna hluti og látlausan efnivið. Í list- inni byggir hann á formrænni einföldun og hugar að möguleikum skynjunarinnar. Í tilefni af sýningunni hefur Listasafnið á Akureyri gefið út 90 blaðsíðna bók með ítarlegri umfjöllun um feril og list Joris, eftir Úlfhildi Dagsdóttur bókmenntafræð- ing og Hannes Sigurðsson, forstöðumann Listasafnsins. Spannar ólíkar stefnur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.