Morgunblaðið - 14.01.2010, Blaðsíða 40
„ÞAÐ má eiginlega segja að ástandið komi inn í okkar dag-
lega líf með þessum umslögum,“ segir Jón Páll Eyjólfsson,
einn af höfundum leikritsins Góðir Íslendingar. „Það kemur
meiri gluggapóstur inn á heimili og innihald hans er
kannski þungbærara en áður hefur verið. Þannig varð
umslagamaðurinn til á veggspjaldinu okkar, einhver
sem er að drukkna í skuldum.“
Umslögin verða notuð í leikmyndina. „Ætli þetta
komi ekki til með að vera um 150-200 þúsund umslög.“
-Hvernig gengur svo söfnunin?
„Við fengum töluverðan fjölda af umslögum sem
höfðu verið ranglega pöntuð af fyrirtækjum. Svo hefur
starfsfólk leikhússins verið ötult við að láta okkur fá um-
slög. Ekki má gleyma söfnuninni hérna í anddyri Borg-
arleikhússins, hver sem er getur komið og losað sig við
gluggaumslögin. Því miður heldur gluggapóstur
áfram að streyma inn á öll heimili, þannig að við fáum
öruggulega þann fjölda sem okkur vantar.“
En mega ógreiddir reikningar fylgja með?
„Já, en við ábyrgjumst ekki að þeir verði greiddir.“
-Hvert verður hlutskipti umslaganna eftir sýninguna?
„Ég held að það sé ljóst að við getum ekki ekið þessu á
haugana, þetta fer líklegast í endur-vinnsluna, það verð-
ur þá eitthvað jákvætt sem kemur út úr þessu umslaga-
flóði. Úr þessu verður kannski hægt að prenta eitt helg-
arblað Morgunblaðsins.“ kristrun@mbl.is
Ástandið berst með gluggapósti
Gluggagægir Jón Páll Eyjólfsson var nærfellt
drukknaður í umslagagnóttinni.
40 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010
Sjónvarpsmaðurinn Sölvi
Tryggvason hefur fengið sig full-
saddan af beiðnum frambjóðenda í
sveitarstjórnarkosningum um
stuðning á Facebook.
Sölvi birtir yfirlýsingu vegna
þessa á Pressunni. Þar segir m.a:
„Hvaða endaleysa er þetta eig-
inlega? Sumir frambjóðendur
senda sjálfir í eigin persónu beiðni
um stuðning og jafnvel aftur og aft-
ur ef maður ýtir á nei-takkann. Síð-
an eru þeir með her stuðnings-
manna, þannig að maður fær
kannski 10 sinnum beiðni um stuðn-
ing við sama frambjóðandann. Ef
mér yrði nú á að rekast óvart á
rangan hnapp væri ég allt í einu
merktur. Ég get alveg eins sagt
ykkur það strax sem eruð á leiðinni
í framboð í vor. Þið fáið ekki minn
stuðning jafnvel þó að ég heilsi ykk-
ur úti á götu. Alveg sama hvað þið
sendið margar beiðnir á Facebook.
Leitið annað takk!“
Biður um frið fyrir
frambjóðendum
Fólk
Hróarskelduhátíðin hefur til-
kynnt að Sólstafir muni spila á há-
tíðinni í sumar og er þetta fyrsta ís-
lenska hljómsveitin hefur verið
tilkynnt um í ár. Hátíðin fer fram
daganna 1. til 4. júlí. Þetta verður
annasamt sumar hjá Sólstöfum sem
hafa bókað sig á sjö tónlistarhátíðir
til að fylgja eftir síðustu plötu sinni,
Köld. Meðal annars mun sveitin
leika á stærstu þungarokkshátíð
heims, Wacken í Þýskalandi.
Þá hefur Köld birst víða á listum
yfir bestu plötur ársins 2009 en
stærsta rokktímarit Finnlands, In-
ferno, valdi hana bestu erlendu
plötu ársins.
Sólstafir spila á
Hróarskeldu
UM miðjan marsmánuð fer Reykja-
vík Fashion Festival fram í fyrsta
skipti. Að hátíðinni standa ein-
staklingar sem tengjast fatahönnun
eða tónlistarlífi með einum eða öðr-
um hætti, auk hönnuða sem eru nú
þegar með vörur í framleiðslu og
sölu, og er annt um að hlúð sé vel að
atvinnugreininni til frambúðar.
Þau fyrirtæki sem koma að
skipulagningu viðburðarins eru E-
Label, Nikita, Birna, Thelma De-
sign, Mundi Design og Faxaflói,
sem eru Eldar Ástþórsson og
Steinþór Helgi Arnsteinsson, en
þeir munu sjá um tónlistar-
viðburði tengda hátíðinni.
Efla hönnun og
auka samstarf
„Þetta verður lítil tískuhelgi sem
fer fram í miðbæ Reykjavíkur og í
boði verða tónlistarviðburðir, ís-
lenskir og vonandi erlendir, í
bland,“ segir Ingibjörg Finn-
bogadóttir, fatahönnuður og einn
stofnandi RFF. „Okkar markmið
er að efla fatahönnun, auka sam-
starf milli fatahönnuða og hjálpa
þeim að komast út fyrir landstein-
ana. Við vitum ekki enn hversu
stór viðburðurinn verður í ár en
stefnan er að fá til landsins fjölda
erlendra fjölmiðlamanna og fleira
áhrifafólk og koma íslenskri tísku
á kortið,“ segir Ingibjörg og bætir
við að dagskráin muni saman-
standa af spennandi og athygl-
isverðum tískusýningum auk fjöl-
breytilegra tónlistarviðburða.
Kynning á Reykjavík Fashion
Festival fer fram í Hafnarhúsinu í
kvöld kl. 20. Þar mun Rúnar Óm-
arsson halda fyrirlestur um mark-
aðssetningu á fatahönnun erlendis
og í beinu framhaldi verður kynn-
ing á RFF. ingveldur@mbl.is
Frumkvöðlar Hópurinn sem stendur að Reykjavík Fashion Festival.
Tískuhátíð um helgi í mars
Reykjavík Fashion Festival fer fram 19. og 20. mars
Tískusýningar og tónlistarviðburðir í bland í miðbænum
www.rff.is
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
BENNI Hemm Hemm er búsettur
úti í Edinborg og hefur sjaldan haft
það betra að eigin sögn. Um mán-
aðamótin mars/apríl er væntanleg
stuttskífa frá honum, fimm laga
plata sem kemur út á geisladisk og
tíu tommu vínyl. Platan kallast Re-
taliate og verður gefin út á Íslandi, í
Evrópu, Japan og Bandaríkjunum.
Í kringum útgáfuna verður lagt í yf-
irgripsmikið tónleikaferðalag um
Evrópu, með viðkomu á Íslandi.
Að meika sens
„Já, ég er nokkuð ánægður með
þessa plötu,“ segir Benni, þar sem
hann talar frá heimili sínu í miðbæ
Edinborgar. Blaðamaður hafði verið
að mæra titillagið en í því kveður
við nokkuð nýjan tón, jafnvel til-
finningaþrunginn. Jafnframt er
sungið á ensku.
„Það hefur aldrei „meikað sens“
fyrir mér að syngja á ensku fyrr en
núna. Hér talar maður náttúrlega
ensku allan daginn. Ef maður er að
semja enska texta, og er ekki sleip-
ur í málinu, verða textarnir um eitt-
hvað sem maður hefur vald á frekar
en að það sé eitthvað hjartans mál.
Þeir verða venjulegast eitthvað
rugl. Tilfinningavella. Núna fyrst
finnst mér ég geta skrifað um það
sem ég vil á ensku.“
Platan var tekin upp í stofunni
hjá Benna og sá hann um að leika á
nánast öll hljóðfæri sjálfur, auk
þess að syngja.
„En svo eru þarna smá blásara-
og kontrabassapartar sem eru spil-
aðir af fólki sem er með mér í
hljómsveitinni minni hérna.“
Kimi, útgefandi Benna, er svo í
samstarfi við Morr Music í Þýska-
landi upp á að koma plötunni út
sem víðast.
„Annars er ég alveg hættur að
skipta mér af vinnunni í kringum
þetta útgáfustúss,“ segir Benni.
„Eitt af mörgu sem breyttist við að
flytja hingað út er að ég ákvað að
einbeita mér að því að vera tónlist-
armaður. Það er gaman að standa í
útgáfumálum, ef maður hefur
brennandi áhuga á þeim og hann
hafði ég þegar ég var að byrja í
þessu og þá kom ég að öllum þátt-
um útgáfunnar sjálfur. Svo dofnaði
sá áhugi bara með tímanum.“
Tónlistarleg frelsun
Benni segir að það sé tiltölulega
stutt síðan hann fór að pæla í plöt-
unni. Vinna hafi byrjað í kjölfar tón-
listarlegrar frelsunar sem hann
varð fyrir eftir að hafa lesið sjálfs-
ævisögu Marks E. Smith, leiðtoga
The Fall.
„Hann talar m.a. um það að hann
hafi verið að vinna í einhverri öm-
urlegri vinnu í upphafi ferils. Þá
hafi hann komist að því að hann
gæti skrifað um allt, og það hefur
hann nýtt sér í gegnum tíðina. Þessi
bók hafði mikil áhrif á mig og eftir
þetta fór ég í gegnum mjög gott
tímabil, þar sem ég samdi lög sem
voru einhvern veginn í laginu, og
fjölluðu um eitthvað, stundum var
fjallað um tvo mismunandi hluti í
sama laginu.“
Benni segist hafa nýtt tækifærið
þegar hann flutti af landinu og
breytt til á ýmsa lund.
„ …og eiginlega á allan hátt. Ég
breytti til hvað hljómsveitina varðar
t.d. og tónlistin hefur breyst. Ég er
t.a.m. búinn að semja lög fyrir heila
plötu á íslensku og hún verður tekin
upp í sumar. Lögin eru öðruvísi en
þau sem ég hef verið að semja, og
sama gildir um þessa stuttskífu.
Mér hafði t.d. aldrei dottið í hug að
spila á allt sjálfur og lögin eru lág-
stemmdari, ekki eins mikið af dýna-
mískum bombum inni á milli.“
Benni segir að þannig hafi fjöl-
margt opnast fyrir honum í Ed-
inborg, og þá ekki bara á listasvið-
inu. Tónleikaferðalagið hefst svo 24.
mars í Dublin og lýkur í Hamborg
18. apríl. Benni heldur tónleika hér
á landi á Akureyri 1. apríl og í
Reykjavík 3. apríl.
Benni svarar í sömu mynt
Frjáls Benedikt Hermann Hermannsson, Benni Hemm Hemm, býr í Edinborg og lætur vel af dvölinni þar.
Benni Hemm Hemm gefur út nýja plötu og fer í Evróputúr Tónlistin, og
maðurinn sjálfur, hefur tekið stakkaskiptum Önnur plata til tekin upp í sumar
Titillag plötunnar, „Retaliate“, má
nú þegar heyra á öldum ljósvak-
ans sem og víðsvegar um vefinn,
þar á meðal á http://kim-
irecords.tumblr.com og www.mys-
pace.com/bennihemmhemm.
Morgunblaðið/Heiddi