Morgunblaðið - 14.01.2010, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.01.2010, Blaðsíða 32
32 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010 ✝ Sveinfríður Jó-hannsdóttir fædd- ist 16. maí 1948 á Hall- dórsstöðum í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði. Hún lést á fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 7. jan- úar sl. Foreldrar hennar voru Jóhann Frímann Sigurðsson, f. 28. september 1907, d. 6. janúar 1992, og Anna Sigurveig Sig- tryggsdóttir, f. 30. maí 1924, d. 11. des- ember 2001. Sveinfríður var einka- barn þeirra. Hinn 21. ágúst 1966 giftist Svein- fríður Hermanni Jónssyni, f. 26. febrúar 1940. Foreldrar hans voru Jón Tryggvason, f. 22. júlí 1895, d. 12. desember 1984, og Kristín Jóns- dóttir, f. 16. mars 1908, d. 29. mars 2008. Börn Sveinfríðar og Her- manns eru: 1) Kristín Sigurveig, f. 4. júlí 1967, maki Sæmundur Sig- tryggsson og þau eiga tvo syni, Dav- íð og Hermann. 2) Sigurður Jóhann, f. 13. febrúar 1969, maki Jóhanna Jóhannesdóttir og á hún sex börn. 3) Ólafur Tryggvi, f. 29. apríl 1970, maki Ester Lára Magnúsdóttir og þau eiga þrjú börn, Magn- ús Artúr, Ríkharð og Sveinfríði Hönnu. 4) Guðrún Fjóla, f. 19. október 1971, maki Carsten Tarnow, þau eiga fjögur börn, Sveindísi Björk, Einar Birgi, Isabellu Agnetu og Karoline Amalie. Sveinfríður gekk í Barnaskóla Akureyr- ar og lauk svo námi frá Gagnfræðaskól- anum. Að því loknu fór hún í Hús- mæðraskólann á Laugalandi og var þar við nám veturinn 1965-66. Eftir að hún lauk námi flutti hún í Möðru- velli í Eyjafjarðarsveit. Þar stund- uðu hún og Hermann félagsbúskap ásamt systkinum Hermanns og fjöl- skyldum þeirra. Lengst af bjuggu þó Sveinfríður og Hermann á Barká í Hörgárdal eða frá 1986-2007 er þau fluttu til Akureyrar. Útför Sveinfríðar fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, fimmtudaginn 14. janúar, og hefst athöfnin kl. 13.30. Meira: mbl.is/minningar Hugar okkar voru strax hjá þér Sveinka er við fréttum af veikindum þínum. Við systkinin minnumst góðra stunda hjá þér og frænda í sveitinni er við fengum að dveljast í sitt hvoru lagi sumarparta tvo. Þar upplifðum við nýja hluti svo sem að gefa hænunum, smakka sil- ung og borða steikt hakk þar sem þú lagðir næmni þína í. Enda líka allt sem þú komst að í matargerð var ein- staklega gott hjá þér. Gaman var að prufa sérstæða hluti eins og gamla vínilplötuspilarann sem ég, Dýrleif, fékk síðan að hlusta á hjá þér, annað hvort gömul lög eða ævintýrasögur. Ekkert var „sjálf- sagðara“ en að leyfa mér, Hermanni, að sparka bolta á ganginum og spila tölvuspil án þess að fá nokkurt tiltal. Okkur fannst stemningin í fjósinu sérstök að því leytinu til að sígarettu- reykurinn kryddaði upp loftið og líka að heyra útvarpstóna í þessu um- hverfi. Það voru mikil rólegheit á fjóstíma. Einnig var heldur ekkert mál að sendast af stað og ná í kýrnar. Teljum við að það hafi verið for- réttindi að fá að koma og kynnast sveitabænum ykkar og fá að njóta nærveru þinnar með þínu blíða brosi og kærleika, þú tókst alltaf vel á móti okkur. Þökkum við kærlega fyrir það. Blessuð sé minning þín. Dýrleif Þórunn Jóhannsdóttir og Hermann Helgi Jóhannsson. Elsku Sveinka, ég er ekki enn búin að átta mig á að þú hafir verið alvar- lega veik, hvað þá að allt sé búið. Mér finnst sem ég hafi alltaf þekkt þig, ég flutti í Möðruvelli 3 ára gömul og stuttu seinna varst þú komin þangað til Hermanns. Einnig finnst mér að strengurinn sem myndaðist á milli okkar þegar ég var barn alltaf hafa verið til staðar, enda áttum við báðar heima á Möðruvöllum þar til ég var að verða 16 ára. Undanfarna daga hafa margar góðar minningar komið upp í hugann, margar frá árunum á Möðruvöllum, en ekki síður minning- arnar sem ég á frá því að ég var orðin fullorðin og kom í heimsókn til ykkar Hermanns á Barká með börnin mín og seinna með barnabörnin. Það var alltaf svo gaman að koma og vel tekið á móti okkur. Góð er minningin um síðastu heimsóknina á Barká. Við María komum þangað síðasta vorið sem þið bjugguð þar, með frænkurn- ar litlu, Silju Björk og Taníu Sól. Þið Hermann gáfuð ykkur góðan tíma með okkur við að skoða lömbin, kálf- ana og fleira. María og Kristbjörg eiga góðar og skemmtilegar minning- ar frá því að þær fengu að dvelja hjá ykkur í nokkur sumur, um það bil viku í senn, og fyrir það eru þær þakklátar. Eftir að þið fluttuð í Holta- teiginn var stundum litið við, en nú finnst mér það hafa verið alltof sjald- an. Eftir situr minning um góða og hlýja konu. Elsku Sveinka, takk fyrir allt, megir þú hvíla í Guðs friði. Elsku Hermann, Kristín, Siggi, Óli, Fjóla og fjölskyldur, megi góður Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg en minningarnar ylja. Kristín (Kittý) og fjölskylda. Sveinfríður Jóhannsdóttir ✝ Jón KornelíusJónsson úr- smíðameistari fædd- ist á Brekku í Gils- firði 8. apríl 1915. Hann lést á Landspít- alanunum í Fossvogi þann 6. janúar síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Elín Guðrún Magnúsdóttir hús- móðir og bóndi f. 1881, d. 1960 og Jón Theodór Jónsson bóndi, skrautritari og kennari f. 1880, d. 1960. Systkini Kornelíusar eru: Guðrún f. 29.9. 1902, d. 21.6. 1984, Margrét Theodóra f. 13.5. 1907, d. 13.8. 1967, Kristín Soffía f. 14.11. 1909, d. 3.12. 2000, Eggert Theodór f. 15.11. 1912, d. 28.9. 1992, Ragn- heiður f. 12.10. 1917, Kristrún Soffía f. 23.12. 1918 og Anna Guð- rún f. 30.9. 1921. Eiginkona Kornelíusar er Sigríð- ur Pétursdóttir f. 10.11. 1929. Þau giftust 26.7. 1947. Foreldrar Sigríð- ar voru Guðrún Þorbjarnardóttir húsmóðir f. 17.9. 1903, d. 22.5.1931 aldur f. 1979 maki Rebekka Ólafs- dóttir, eiga þau 2 syni. Kornelíus hóf nám í úrsmíði hjá Árna B. Björnssyni árið 1934. Meistari hans var Sigurður Ísólfs- son. Kornelíus öðlaðist meist- araréttindi árið 1942. Að námi loknu stofnaði hann vinnustofu og verslun að Hverfisgötu 64 ásamt Eggerti Hannah og Magnúsi F. Ás- mundssyni. Síðar rak hann versl- anir á ýmsum stöðum, mest þrjár samtímis, lengst af var hann á Skólavörðustíg 8 og Bankastræti 6 sem er enn starfandi. Kornelíus var heiðursfélagi í Úrsmíðafélgi Ís- lands og var lengi í prófnefnd fé- lagsins, ásamt fleiri nefnd- arstörfum. Kornelíus hafði mörg áhugamál. Ungur lærði hann á mandólín. Hann spilaði með Man- dólínhljómsveit Reykjavíkur og einnig MAJ-tríóinu ásamt þeim Marsý og Tage Ammendrup. Korn- elíus hafði mikinn áhuga á búskap og árið 1960 byggði hann fjárhús í Lónakoti og hóf þar fjárbúskap sem hann stundaði fram á tíræðisaldur. Hann ræktaði sérstakan fjárstofn sem var að upplagi ferhyrndur og morarnhöfðóttur. Útför Kornelíusar fer fram frá Áskirkju í dag, fimmtudaginn 14. janúar og hefst athöfnin kl. 13. og Pétur Pétursson bifreiðastjóri f. 10.3.1895, d. 14.7.1986. Börn Korn- elíusar og Sigríðar eru 1) Birgir Davíð f. 18.12. 1947, d. 10.11. 2005. 2) Haraldur Jón gullsmiður f. 25.8. 1950, maki Íris Æg- isdóttir f. 21.11. 1953. Þeirra börn eru Sirrý Hrönn f. 1971, maki Ásgrímur Helgi Ein- arsson, eiga þau 3 syni. Birgir Grétar f. 1972, maki Hafrún Huld Þorvalds- dóttir, eiga þau tvö börn. 3) Korn- elía Guðrún kennari f. 14.1. 1952, maki Gísli Árni Atlason f. 7.2. 1950. Þeirra börn eru Jón Kornelíus f. 1975, Kolbrún Ýr f. 1977, maki Guðni Eiríksson og á hún 3 börn, Eygló Rós f. 1978 og á hún eina dóttur. Óskar Sindri f. 1984. 4) Pét- ur Gunnar úrsmiður f. 29.3. 1953, maki Gunnhildur Sigurðardóttir f. 21.10. 1956. Þeirra börn eru Sig- urður Rúnar f. 1977, maki Jennifer Pétursson, eiga þau 2 dætur. Har- Tengdafaðir minn hefur kvatt þennan heim, tæplega 95 ára gamall. Hann var með stórt hjarta og mikið umburðarlyndi. Ég kynntist honum fyrir 40 árum og frá fyrsta degi var eins og hann ætti í mér hvert bein. Aldrei nokkurn tíma sagði hann styggðaryrði eða talaði illa um nokk- urn mann. Hann elskaði hana tengdamömmu út af lífinu og einu áhyggjur hans hin seinni ár voru sennilega hvað yrði um hana þegar hann færi. Ég bjó í kjallarabúðinni hjá þeim í átta ár og allan þann tíma og fram til dagsins í dag var ekkert það til sem hann hefði ekki gert fyrir mig og mína fjölskyldu. Við vorum heldur ekkert einsdæmi þar um því allir sem hann þekkti nutu góðs af, hvort heldur var andlega eða fjárhagslega. Við fórum í mörg ferðalög saman innanlands og utan. Síðast fórum við utan árið 2006 til Spánar, þar sem hann naut sín aldeilis vel í sólinni og sundlauginni eins og unglamb. Ófáir eru þeir sunnudagar sem við höfum farið í bíltúra innanbæjar og utan. Oft kíktum við í heimsóknir þar sem barnabörn hans voru, þar áttu þau hauk í horni, þar sem hann naut þess að leika við þau og fylgjast með þeim vaxa og dafna. Það kom fyrir að ég hafði öðrum hnöppum að hneppa og fór ekki með á sunnudögum, það fannst honum ómögulegt og marg- spurði hvort þau ættu ekki bara að sækja mig. Tengdapabbi minn var einstaklega trúaður maður, hann hafði gaman af að skrifa bænir, fallegar vísur og dagbók skrifaði hann nær daglega. Þá eru til margar blaðsíður af ferða- sögunum úr ferðalögum okkar og nú síðast þegar við fórum Snæfellsnesið síðastliðið sumar og gistum á Búðum þar sem við áttum yndislega helgi. Tengdapabbi minn var líka mjög félagslyndur maður, hann var ein- staklega góður og skemmtilegur dansherra og ófáa snúninga tókum við saman, nú síðast þann 19. desem- ber síðastliðinn, í brúðkaupi sonar- sonar hans. Elsku tengdapabbi, mig langar að þakka þér fyrir ferðalagið okkar saman hér á jörðinni, alla gleðina og alla væntumþykjuna sem þú sýndir okkur alla tíð. Við munum gera allt það sem við getum til að Siggu þinni líði sem best. Þín tengdadóttir, Íris. Eitt er það sem maður lærði snemma af honum afa nafna og þá sérstaklega í fjárhúsunum við sauð- burð, en það var að allir geta dáið. Manni þótti ekki sanngjarnt, að sum litlu lömbin fengu ekki einu sinni tækifæri á að fara út í sumarblíðuna og hlaupa um og leika sér. Því ætti það ekki að koma manni í opna skjöldu að það kom að því að elsku afi minn og nafni skyldi yfirgefa þessa jarðvist. En maður vildi ekki trúa því að sá dagur kæmi og að enn væru margar stundir eftir með hon- um, enda keyrði hann í vinnuna að- eins nokkrum vikum áður en hann lést, þeyttist um dansgólf í brúð- kaupi, spilaði á mandólín og lék við barnabarnabörnin eins og unglamb. Afa kallaði ég alltaf afa nafna enda alnafnar, en eitthvað festist það við hann hjá fleirum en mér enda kalla systkini mín hann afa nafna einnig. Alla tíð sem púki og fram ung- lingsárin var maður fastagestur með afa í fjárhúsin að gefa kindunum og sinna þeim verkum er tilheyra bú- skap. Átti maður ógleymanlegar stundir með afa þar í Lónakotinu og eins Hvassahrauni. Marga virka daga og flesta laugardaga upp úr há- degi rölti maður með poka fullan af illa lyktandi fötum niður Skóla- vörðustíginn í búðina hans afa að Skólavörðustíg 8. Gestakomur voru tíðar í búðina og oft á tíðum var kaffistofan þar full af köllum, sötr- andi kaffi og reykjandi vindla og miklar umræður í gangi. Að lokum týndust þeir út einn af öðrum og þá var hægt að fara að loka búðinni og halda á Kleifarveginn, enda beið veislumatur að hætti ömmu Siggu á borðum þar. Við snæddum og svo var farið í kjallarann og við dress- uðum okkur upp í oft illa lyktandi rollufötin, Landroverinn ræstur og brunað í Lónakotið. Fljótlega lærði maður að keyra í þessum ferðum og var afi búinn að kenna manni að keyra bíl óstuddur um 9 ára aldur. Enda var oftast skipst á sætum þegar komið var af steyptri Reykjanesbrautinni og inn á einkaveginn. Þetta þótti litlum púka ekki amalegt, enda vissi maður ekki um neinn á sínum aldri sem fengi að snerta á bíl. Reykjanesið er erfitt yfirferðar og í smalamennskum og eftirleitum var ótrúlegt að sjá hvað hann var í góðu formi og fram að 75 ára aldri hlupum við hlið við hlið á eftir rollunum stökkvandi yfir sprungur og steina í hrauninu, þó 60 ár séu á milli okkar. Síðustu 3 árin hefur maður haft þau forréttindi að búa undir sama þaki og afi og amma, það verður skrítið að heyra ekki mandólínspil reglulega, mæta afa ekki í göngutúr er maður kemur heim úr vinnunni eða sitja og spjalla um veiðiferðir og annað skemmtilegt. Alla tíð fann maður mikla ást og umhyggju frá afa og alltaf var hann að hugsa um aðra en sjálfan sig. Ef bíllinn minn var einhverra hluta ekki hreyfður á virkum degi var hann strax farinn að hafa áhyggjur hvort eitthvað væri að. Ég vona að mér hafi tekist að láta í ljós í gegnum tíðina hvað mér þykir vænt um þig elsku afi minn, því ekki er maður of duglegur að láta tilfinn- ingar sínar í ljós við þá sem manni þykir vænst um. Jón Kornelíus Gíslason. Meira: mbl.is/minningar Elsku afi, við trúðum alltaf að þú yrðir að minnsta kosti 100 ára, en greinilegt er að enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Það var einkum þrennt sem hélt afa svona ernum; amma, búðin og kindurnar. Afi mætti í búðina fram á síðasta dag, aðeins örfáar vikur eru síðan hann keyrði um götur borgarinnar og það eru ekki mörg ár síðan afi var hlaup- andi í hrauninu á eftir kindunum. Afi var vanur að fara á nánast hverjum degi suður í Lónakot og hugsa um kindurnar sínar. Mikil tilhlökkun var alltaf á haustin hjá fjölskyldun- um þegar átti að fara að smala og var þá afi ávallt fremstur í flokki á mosagróna Land Rovernum, skipu- lagði atburði og passaði að allt gengi vel. Amma var honum mjög hjart- fólgin og var hún hans stoð og stytta í gegnum lífið. Eiginlega getur mað- ur varla hugsað um afa án þess að amma skjóti upp kollinum. Þau hugsuðu vel hvort um annað og höld- um við að þau hafi varla verið að- skilin einn einasta dag. Mamma og pabbi voru dugleg að taka ömmu og afa með þegar eitthvað stóð til og því eigum við margar minningar frá ótal ferðum í gegnum árin. Ferðin til Lanzarote 2006 er í fersku minni, þar sem afi var eins og unglingarnir stingandi sér út í laugina frá bakk- anum. Sérstaklega er minnisstæð ferðin sem við fórum á Kárahnjúka 2004. Það var ógleymanleg ferð þar sem við gistum í Atlavík í brjáluðu veðri og afi hljóp út um allt eins og hann væri tvítugur. Auk allra ferða- laganna sem við fórum í saman, þá eru margar fleiri minningar sem við búum að; allar heimsóknirnar til þín í búðina á Skóló og síðar niðri í Bankastræti. Alltaf var gaman að koma í heimsókn inn á Kleifó og var þá ávallt lagt á veisluborð og oftar en ekki bar fjármál og þjóðfélags- umræða á góma og sitt sýndist nú hverjum í þeim málum. Hins vegar minnumst við þess ekki að hafa heyrt afa hallmæla nokkrum, heldur sá hann alltaf jákvæðar hliðar hvers einstaklings. Að lokum má ekki gleyma að minnast á fjölda mandól- íntónleika sem þar fóru fram, öllum viðstöddum til yndisauka. Elsku afi, þrátt fyrir að síðustu dagar þínir hafi verið erfiðir munum við ávallt minnast góðu stundanna. Lífsstíll þinn og heilsuhreysti er okkur öllum góð fyrirmynd. Minn- ingarnar eru eins og áður sagði óteljandi og þær munum við alltaf eiga og varðveita í hjörtum okkar. Elsku amma, pabbi, Konný, Pési og fjölskyldur, guð veiti ykkur styrk til að takast á við þessa miklu sorg. Afi var stórmenni og við skulum minnast hans sem slíks. Sirrý, Birgir (Biggi) og fjölskyldur. Minning um einstakan mann. Hugsið ykkur lífsglaðan, hjálp- saman, jákvæðan og hörkuduglegan mann. Þessi orð eru lýsandi fyrir hann afa okkar. Afi var einstakt góð- menni og hér koma nokkrar minn- ingar okkar um hann. Afi ólst fyrst upp í torfbæ og hefur því lifað tímana tvenna. Í honum hefur alltaf búið ótrúlegur kraftur og hann virtist aldrei geta setið að- gerðarlaus. Okkar sterkustu minn- ingar utan heimilis afa og ömmu eru hans helstu vettvangar, skartgripa- verslanirnar og sveitin með fjárhús- unum. Við systkinin bjuggum alla okkar barnæsku á Skólavörðustígn- um og því litum við oft inn í verslun afa við þá götu. Það var virkilega gaman að spjalla við hann og fá að kíkja á alla fallegu munina. Afi var mikill náttúruunnandi. Hann naut umhverfisins, sólarinnar, dýranna og að fara í berjamó. Við fórum stundum með afa í fjárhúsin til að aðstoða enda þótti okkur það ekki síðra ævintýri en í versluninni. Að fá að raka, bera hey á garðana, spjalla við hrúta, ær og lömb og í raun kanna allt sem hægt var. Í þessum ferðum þurftu stelpurnar að telja afa trú um að stelpur gætu al- veg jafn mikið og strákar því hann vildi hlífa okkur stelpunum við hinu minnsta handtaki. Með árunum fengum við þó að sanna okkur fyrir afa og koma honum á óvart með dugnaðinum. Í sveitinni var einnig lagður metnaður í að kenna okkur að keyra og ef við náðum ekki niður á petalana þá sá afi um þann þátt en við stýrðum. Trúin á getu okkar var Jón Kornelíus Jónsson HINSTA KVEÐJA Fáir munu þeir sem fetað geta sama stíg og tengdafaðir minn, Jón Kornelíus Jónsson. Að bera ævinlega annarra hag fyrir brjósti, tendra ljós þar sem fyrir var myrkur og trúa því besta um samferðamenn sína. Þannig var þessi höfðingi sem nú kveður okkur með langa og farsæla ævi að baki. Með virðingu, Gísli Árni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.