Morgunblaðið - 20.01.2010, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2010
Stöndum saman!
Nánari upplýsingar á xd.is
Fundaröð Sjálfstæðisflokksins 20. janúar til
4. febrúar. Þingmenn flokksins ræða
stjórnmálin í víðu samhengi.
→REYKJAVÍK
Golfskálanum í Grafarholti - 26. janúar kl. 20.30
Guðlaugur Þór Þórðarsson
Gerðubergi - 26. janúar kl. 20.30
Pétur H. Blöndal
Neskirkju - 28. janúar kl. 20.30
Illugi Gunnarsson & Ólöf Nordal
→SUÐVESTURKJÖRDÆMI
Hafnarfjörður, Félagsheimili sjálfstfél. - 20. janúar kl. 12.00
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins
Seltjarnarnes, Félagsheimili sjálfstfél. - 21. janúar kl. 12.00
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins
Garðabær, Félagsheimili sjálfstfél. - 27. janúar kl. 12.00
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins
Mosfellsbær, Félagsheimili sjálfstfél. 28. janúar kl. 20.00
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Kópavogur, Félagsheimili sjálfstfél. - 30. janúar kl. 10.00
Jón Gunnarsson
→SUÐURKJÖRDÆMI
Hella, Árhúsum - 20. janúar kl. 17.00
Ragnheiður E. Árnadóttir
Þorlákshöfn, Ráðhúskaffi - 20. janúar kl. 20.30
Ragnheiður E. Árnadóttir
Vestmannaeyjar, Félagsh. sjálfstfél. - 20. janúar kl. 20.00
Unnur Brá Konráðsdóttir & Guðlaugur Þ. Þórðarson
Reykjanesbær, Félagsheimili sjálfstfél. - 21. janúar kl. 20.00
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisfl. & Ragnheiður E. Árnadóttir
Vík í Mýrdal, Ströndinni í Víkurskála - 22. janúar kl. 12.00
Árni Johnsen
Hveragerði, Félagsh. sjálfstfél. - 23. janúar kl. 10.30
Unnur Brá Konráðsdóttir & Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Selfoss, Riverside Hótel Selfossi - 26. janúar kl. 20.30
Þorgerður K. Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisfl. & Árni Johnsen
Kirkjubæjarklaustur, Hótel Laka - Efri Vík - 26. janúar kl. 12.00
Unnur Brá Konráðsdóttir & Tryggvi Þór Herbertsson
Höfn í Hornafirði, Kaffi Horninu - 26. janúar kl. 20.00
Unnur Brá Konráðsdóttir & Tryggvi Þór Herbertsson
Grindavík, Hópsnesi - 27. janúar kl. 20.00
Árni Johnsen & Jón Gunnarsson
Bláskógabyggð, Félagsh. Aratungu -30. janúar kl. 20.00
Unnur Brá Konráðsdóttir
→NORÐVESTURKJÖRDÆMI
Hvammstangi, Kaffi Sírópi - 20. janúar kl. 20.30
Einar K. Guðfinnsson
Blönduós, Félagsheimili sjálfstfél. - 21. janúar kl. 20.30
Ásbjörn Óttarsson & Einar K. Guðfinnsson
Grundarfjörður, Kaffistofunni Djúpakletti - 25. janúar kl. 20.30
Ásbjörn Óttarsson & Árni Johnsen
Ísafjörður, Hótel Ísafirði - 25. janúar kl. 20.30
Ásbjörn Óttarsson
Stykkishólmur, Narfeyrarstofu - 27. janúar kl. 20.30
Ásbjörn Óttarsson & Einar K. Guðfinnsson
Akranes, Gamla kaupfélaginu - 28. janúar kl. 20.30
Ásbjörn Óttarsson & Jón Gunnarsson
Borgarnes, Hótel Hamri - 28. janúar kl. 20.30
Einar K. Guðfinnsson & Guðlaugur Þór Þórðarson
Ólafsvík, Hótel Klifi - 4. febrúar kl. 20.30
Ásbjörn Óttarsson & Illugi Gunnarsson
→NORÐAUSTURKJÖRDÆMI
Siglufjörður, Allanum - 20. janúar kl. 17.00
Kristján Þór Júlíusson & Illugi Gunnarsson
Neskaupstaður, Egilsbúð - 20. janúar kl. 20.00
Tryggvi Þór Herbertsson & Ólöf Nordal
Ólafsfjörður, Hótel Brimnesi - 21. janúar kl. 20.00
Tryggvi Þór Herbertsson & Ólöf Nordal
Húsavík, veitingastaðnum Sölku - 21. janúar kl. 20.00
Kristján Þór Júlíusson & Illugi Gunnarsson
Dalvík, Við höfnina - 22. janúar kl. 12.00
Tryggvi Þór Herbertsson & Jón Gunnarsson
Seyðisfjörður, Hótel Öldunni - 23. janúar kl. 12.00
Tryggvi Þór Herbertsson & Pétur H. Blöndal
Akureyri, Hótel KEA - 23. janúar kl. 13.30
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisfl. & Kristján Þ. Júlíusson
Vopnafjörður, Félagsheimilinu Miklagarði - 27. janúar kl. 12.00
Kristján Þór Júlíusson & Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Egilsstaðir, Hótel Héraði - 27. janúar kl. 20.00
Kristján Þór Júlíusson & Ragnheiður Ríkharðsdóttir
SAMFÉLAGSSJÓÐUR Alcoa í
Bandaríkjunum hefur ákveðið að
styrkja björgunarsveitir á Austur-
landi um 100.000 Bandaríkjadali
næstu tvö árin, eða sem nemur um
12,5 milljónum króna. Styrkurinn
verður stofnframlag í mennt-
unarsjóð björgunarsveitarmanna á
Austurlandi.
Á Austurlandi starfa tæplega 600
sjálfboðaliðar í 12 björgunar-
sveitum og þar af eru um 350 á út-
kallslista. „Það er gott að búa í sam-
félagi þar sem fjöldi sjálfboðaliða
er tilbúinn til leitar- og hjálpar-
starfa dag og nótt, oftast við afar
erfið skilyrði,“ sagði Hafsteinn
Viktorsson þegar hann afhenti
styrkinn fyrir hönd Alcoa.
Guðjón Már Jónsson veitti
styrknum viðtöku fyrir hönd björg-
unarsveitanna. „Styrkurinn hjálpar
okkur meðal annars að uppfylla
það metnaðarfulla markmið Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar að all-
ir á útkallslistum björgunarsveit-
anna ljúki umfangsmiklu
grunnnámi björgunarsveitarfólks.“
Alcoa styrkir björg-
unarsveitir eystra
Styrkveitingin Björgunarsveitarmenn og fulltrúar Alcoa fjölmenntu þegar Alcoa veitti hinn myndarlega styrk.
HERMANN Björnsson, fram-
kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs
Arion banka, segir að yfir 600 manns
hafi nýtt sér úr-
ræði sem bankinn
bjóði viðskipta-
vinum sem eigi í
greiðsluerfið-
leikum.
Lilja Móses-
dóttir alþing-
ismaður gagn-
rýndi í gær banka
sem bjóða upp á
afskriftir lána
sem eru umfram
110% af eign. Hún segir þetta nýtast
takmörkuðum hópi tekjuhárra ein-
staklinga. Hermann segir að þarna
gæti misskilnings. „Þar sem höf-
uðstóll innlendra íbúðarlána er
lækkaður niður í 110% af markaðs-
virði fasteignar er fyrst og fremst
um að ræða svo kölluð námslokalán
sem boðin voru fólki sem var að
koma úr háskólanámi. Þessi lán voru
að hámarki 25 milljónir króna og
mér finnst óvarlegt að stilla þessu
upp þannig að um stóreignafólk sé
að ræða.“
Greiðsluvilji virkjaður
Hermann sagði að með því að
koma til móts við þennan hóp væri
verið að virkja greiðsluviljann. „Það
er ekki rétt að við höfum verið að
lána langt umfram verðmæti eigna.
Það sem hefur gerst er að verðmæti
eigna hefur lækkað og lánin hækk-
að.“ Hann sagði að á síðasta ári hefði
verið farið af stað með opinber úr-
ræði og síðan hefðu bankarnir gert
með sér samkomulag um sérstaka
skuldaaðlögun. „Síðan hvöttu ráða-
menn og ekki síður samfélagið bank-
ana til að gera enn betur, þ.e.a.s. að
koma enn frekar til móts við við-
skiptavini. Við lítum svo á að við
séum að gera það með þeim fjöl-
breyttu lausnum sem bankinn býður
viðskiptavinum sínum.“
Hermann sagði að það sem hent-
aði einum hentaði ekki endilega öll-
um. Alltaf væri hægt að finna dæmi
um mál sem menn gætu sagt að
væru kannski ekki að öllu leyti í
samræmi við markmið aðgerðanna.
„Verkefni okkar er að reyna að stilla
upp almennum og einföldum leiðum
sem standa öllum viðskiptavinum
bankans til boða.“ egol@mbl.is
110% lánin
voru náms-
lokalán
Hermann
Björnsson
NOKKRIR jarðskjálftar upp á ríf-
lega 3 stig á Richter mældust
skammt norður af Grímsey í fyrri-
nótt og fram eftir degi í gær. Stærsti
skjálftinn var upp á 3,4 stig á Richt-
ers-kvarða. Skjálftann fundu eyjar-
skeggjar en hrinur af þessu tagi eru
algengar við Grímsey. Telur Veð-
urstofan ekki tilefni til að hafa
áhyggjur af þessari virkni. Eldgos
geti orðið neðansjávar án þess að
mannfólkið verði vart við það.
Skjálftar við
Grímsey