Morgunblaðið - 20.01.2010, Síða 21

Morgunblaðið - 20.01.2010, Síða 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2010 ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, RÓSA MARÍA SIGURGEIRSDÓTTIR, Bakka, Melasveit, lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 13. janúar. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju í Saurbæ, laugardaginn 23. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Gjafa- og minningarsjóð Sjúkrahúss Akraness. Fanney Valdís Guðbjörnsdóttir,Stefán Jónas Þorsteinsson, Jóhann Þórðarson, Sigrún Birna Svavarsdóttir, Sigvaldi Geir Þórðarson, Valdís Ragnheiður Jakobsdóttir, Sigurður Björn Þórðarson, Ásta María Einarsdóttir, Sigurgeir Þórðarson, Sigríður Kristjánsdóttir, Sigríður Þórdís Reynisdóttir, Rafn Elfar Svanbergsson og ömmubörn. ✝ Ástkær sambýlismaður minn og bróðir okkar, HJÖRLEIFUR BJARKI GUÐMUNDSSON vélfræðingur frá Karlsá, Rauðalæk 14, andaðist á heimili sínu sunnudaginn 10. janúar. Útför verður frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. janúar kl. 15.00. Nanna Kristín Guðmundsdóttir og systkini. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA BERGÞÓRA SIGURJÓNSDÓTTIR, Túngötu 13, Sandgerði, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 14. janúar. Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði föstudaginn 22. janúar kl. 14.00. Bestu þakkir til starfsfólks á B-2 taugalækningadeild fyrir mjög góða umönnun. Sigursveinn Guðmann Bjarnason, Erla Sigurbjörg Sigursveinsdóttir, Gunnar Guðbjörnsson, Guðlaugur Vignir Sigursveinsson, Rannveig Grétarsdóttir, Þóra Kristín Sigursveinsdóttir, Heimir Morthens, Jón Bjarni Sigursveinsson, Júlía Stefánsdóttir, Heimir Sigursveinsson, Aldís Búadóttir, Inga Sigursveinsdóttir, Eiríkur Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR JÓNSSON, Lómasölum 12, Kópavogi, lést á Landspítalanum Hringbraut sunnudaginn 17. janúar. Útförin fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 27. janúar kl. 13.00. Björg Sigríður Kristjánsdóttir, Kristján Grétar Ólafsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Guðrún Björg Ólafsdóttir, Guðmundur Jón Kristjánsson, Helgi Jón Ólafsson, Erna Ósk Guðnadóttir og afabörnin. ✝ Davíð Stefánssonlandfræðingur og kennari fæddist í Stykkishólmi 20. júlí 1926 og lést á sjúkrahúsi í Dram- men í Noregi 10. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Stefán Lýður Jónsson, f. 10. mars 1893, d. 9. des. 1969, skólastjóri í Stykk- ishólmi og síðar námsstjóri og fyrri kona hans Guðrún Þórðardóttir, f. 2. ágúst 1900, d. 12. apríl 1997. Alsystir Davíðs er Bjarghildur, prófarkalesari og blaðamaður, f. 28. maí 1920. Eig- inmaður hennar er Jón Kárason, aðalbókari Pósts og síma. Hálfsystkini Davíðs, samfeðra, eru Sólveig, gift Snorra Loftssyni, búsett í Lúxemborg og Einar Páll, kvæntur Guðfinnu Ingólfsdóttur og búa þau í Gautaborg. Móðir þeirra, seinni eiginkona Stefáns, var Lovísa Þorvaldsdóttir, f. 6. mars 1913, d. 29. ágúst 2000. Eiginkona Davíðs er Inger Jo- hanne, f. 7. nóv. 1930 í Osló, barnahjúkrunarfræðingur. For- eldrar hennar voru Sigvald Jonas- sen, heildsali í Osló, og kona hans Ingrid Johanne, bæði látin. Börn Inger og Davíðs eru: 1) Grethe Sjöfn, f. 21. júlí 1953, fé- lagsráðgjafi. 2) Eva Dröfn, f. 28. júní 1956, flugfreyja. 3) Steinar, f. 8. nóv. 1966, hagfræðingur. Davíð varð stúd- ent frá MR 1946 og fór til Noregs 1948 og stundaði þar nám við stærðfræði- og raunvísindadeild Há- skólans í Osló til ársins 1954. Þá fór hann til Íslands og kenndi við gagnfræðaskólann á Selfossi til 1956 og við Flensborgarskóla til 1959. Þá fór hann á ný til Noregs og lauk embættisprófi í landafræði og náttúrufræði við Oslóarháskóla. Að loknu prófi hóf hann kennslu við framhaldsskóla í Suður- Noregi, fyrst í Jessheim og síðar í Svelvik, nálægt Drammen, til 1973. Það ár gerðist hann starfs- maður skrifstofu Norrænu ráð- herranefndarinnar í Osló er sam- einuð var menningarmálaskrifstofu ráð- herranna í Kaupmannahöfn 1986 og vann Davíð þar áfram til 1993 er hann fór á eftirlaun. Útför Davíðs fer fram frá Konnerud nye kirke í Drammen í dag, 20. janúar. Davíð móðurbróðir okkar fæddist og ólst upp í Stykkishólmi og naut þess frelsis í æsku sem íslensk þorp bjóða upp á fyrir börn. Hans nánustu æskuvinir voru þeir Eyjólfur Konráð Jónsson, síðar ritstjóri Morgun- blaðsins og alþingismaður, og Jón Júlíusson, lengi kennari við MR og starfsmannastjóri Loftleiða. Davíð varð stúdent frá MR og fór síðan til náms í náttúrulandafræði við Háskólann í Osló. Á námsárum sínum kynntist hann og giftist glæsi- legri norskri stúlku, Inger Jonassen, sem lifir mann sinn. Á sumrin vann hann hjá Hval hf., fyrst nokkur sum- ur á hvalbátunum og síðari árin á skrifstofu fyrirtækisins í Hvalfirði. Naut hann þar sérstaks velvilja og vináttu Lofts Bjarnasonar, forstjóra Hvals, og fjölskyldu hans, sem Davíð var alltaf sérstaklega hlýtt til. Í augum okkar bræðranna var alltaf einhver spennandi ævintýra- ljómi í tengslum við þennan fjarlæga frænda, sem stundaði háskólanám í útlöndum, var hvalveiðimaður og varð kennari í framhaldsskólum á Selfossi, Flensborgarskóla og síðar í Noregi. Eftir að hann fór að vinna fyrir Norrænu ráðerranefndina, snemma á 8. áratugnum, í Osló og síðar í Kaupmannahöfn, fór Íslandsferðum hans að fjölga. Varla leið svo árið að hann kæmi ekki til Íslands vegna starfsins og síðari árin á eigin vegum og notaði Davíð þá alltaf tækifærið til að heilsa upp á fjölskyldu og vini. Þá gisti hann oftast hjá systur sinni Bjarghildi, móður okkar bræðranna. Davíð fylgdist vel með hvernig fjölskyldan á Íslandi óx og dafnaði. Davíð impraði oft á þeirri hugmynd að það þyrfti að halda fjölskyldumót á Íslandi og loks varð honum að ósk sinni sumarið 2007, er fjölmennt þriggja daga ættarmót afkomenda Stefáns föður hans var haldið á Snorrastöðum í Hnappadal, þaðan sem Stefán var ættaður og Davíð var í sveit þegar hann var strákur. Mótið endaði með hópferð til Stykkishólms, þar sem æskuslóðir Davíðs og Bjarg- hildar systur hans voru kannaðar. Greinilegt var að Davíð kunni vel að meta það að hitta þennan fjölda ætt- ingja, og ekki síst að rifja upp kunn- ingsskap við æskuslóðirnar. Með Davíð komu frá Noregi þrír afkom- enda hans; dætur hans Gréta og Eva, ásamt syni Evu, Kristjáni, sem nú stundar verkfræðinám í Þrándheimi. Eftir ættarmótið fór heilsu hans hnignandi og átti hann ekki aftur- kvæmt til Íslands. Davíð fylgdist vel með hvað var að gerast á Íslandi og fékk sendar úr- klippur úr íslenskum blöðum frá vin- um sínum. Þá las hann mikið af ís- lenskum bókum. Hann fylgdist af miklum áhuga í sjónvarpinu með árangri íslensku fótboltastrákanna, bæði á Norðurlöndunum og í Bret- landi. Á Bretlandi fylgdist hann einnig með Norðmönnum í fótbolt- anum og var uppáhaldsleikmaður hans Morten Gamst Pedersen hjá Blackburn. Davíð var hæglátur og mjög kurt- eis maður, sem ávann sér traust hvar sem hann kom. Við systursynir hans sendum okkar innilegustu samúðar- kveðjur til Inger og barnanna þriggja, Grétu, Evu og Steinars, og barnabarnanna. Birgir, Gylfi og Kári Jónssynir. Þegar Davíð kom fyrst til Oslóar haustið 1948 var þar fátt erlendra námsmanna, mestmegnis Íslending- ar, enda landið enn að ná sér eftir hörmungar stríðsins. Lítið sem ekk- ert hafði verið um húsnæðisbygging- ar á stríðsárunum og því mikil vand- ræði að koma námsfólki fyrir í borginni, utanbæjarfólki sem er- lendu. Þýskar herbúðir stóðu yfir- gefnar víðsvegar um alla borg – svip- að og kamparnir í Reykjavík – og þessa þýsku bragga, sem voru úr timbri, fékk félagsstofnun stúdenta í Osló til afnota fyrir námsfólk. Við komuna fékk Davíð inni í einum slík- um stúdentabragga í nokkra vetur ásamt öðrum íslenskum stúdentum. Þeir komust þó síðar í nýjar vistar- verur sem Guðrún Brunborg kom upp af miklum dugnaði og velvild við íslenska stúdenta og var Davíð einn í þeirra hópi. Mörg vorin fór hann heim til Ís- lands og hafði vísa vinnu við hvalstöð- ina í Hvalfirði sem reyndist honum góð búbót. Um 1950 stofnuðu íslenskir stúd- entar í Osló Félag íslenskra stúdenta í Noregi (skammstafað FÍSN) og mun Davíð hafa verið fyrsti formaður þess. Er Davíð fór á eftirlaun 1993 fékk hann heilablóðfall skömmu síðar og var bati hægur en þrátt fyrir það kom Davíð til Íslands á hverju sumri um árabil og heimsótti þá ættfólk sitt, gamla vini og námsfélaga. Þá endurnýjuðust gömul kynni við þennan rólega, hugþekka og skemmtilega mann, sem mjög gam- an var að ræða við um málefni okkar tíma og flókin vandamál nútímans, en þar var hann vel heima. Hann var mikill blaðalesandi erlendra blaða og þegar hann taldi sig komast í feitt sendi hann mér úrval blaðagreina og svo mjög að ég mátti hafa mig allan við lesturinn! Síðastliðið vor tjáði hann mér að hann treysti sér ekki til Íslandsferð- ar. Hann nefndi ekki við mig að hann væri að fara í aðra ferð en mér fannst ég skilja það á honum. Við Helga sendum ættfólki hans bæði hér heima og í Noregi bestu samúðarkveðjur. Ingvar Hallgrímsson. Um áratuga skeið hefur Ísland tekið þátt í norrænu samstarfi á vett- vangi Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar. Þegar skrif- stofu ráðherranefndarinnar var komið á fót í Osló árið 1973 var Davíð Stefánsson ráðinn til starfa þar og gegndi hann störfum í fjármáladeild allt til ársins 1993, fyrst í Osló og svo síðar í Kaupmannahöfn frá árinu 1986. Á þessum árum var Davíð ekki bara einn af frumherjunum á skrif- stofunni, heldur var hann helsti tengiliður hennar við íslenska emb- ættis- og stjórnmálamenn, sem nutu hjálpar og leiðsagnar hans gegnum völundarhús hins norræna sam- starfs. Ósjaldan kom hann málum í höfn þegar aðrir töldu ekki mögu- leika á því að þau hlytu framgang eða vissu ekki hvernig úr þeim yrði leyst. Sama var upp á teningnum í mörgum undirstofnunum ráðherranefndar- innar. Þegar mikið lá við leituðu menn til Davíðs. Á fyrstu áratugum Norrænu ráðherranefndarinnar var hann þannig einn af lykil- starfsmönnum hennar. Meðan aðrir starfsmenn komu og fóru var Davíð á sínum stað og aðstoðaði fólk eftir bestu getu. Davíð var glöggur á fólk og oft kom það okkur sem störfuðum með honum um árabil að góðum notum að heyra skoðanir hans á mönnum og málefnum. Einhverju sinni sagði hann um mann sem ráðinn var í yf- irmannsstöðu hjá ráðherranefndinni að hann væri áreiðanlega sá besti sem viðkomandi land gæti séð af. Þótt slíkri gráglettni brygði oft fyrir í lífi hans og starfi var Davíð fyrst og fremst heiðarlegur og heilsteyptur maður sem gott var að eiga að og starfa með. Slíks manns er gott að minnast. Hrafn Hallgrímsson, Ingimar Einarsson, Tryggvi Gíslason. Davíð Stefánsson Emmý, Guðjón og gítarinn. Einhvern veginn er erfitt að leysa þessa þrenningu upp. Emmý var ein af Laugalandsmeyjunum fyrir tæplega fimmtíu árum. Nett, kvik og í alla staði ljúf en lífleg. Saumaklúbbur Laugalandsmeyja hefur verið starfandi í hálfa öld og þegar meiri og merkilegri uppá- komur voru hjá klúbbnum, svo sem um vor, sumar og jól, voru mak- arnir með og þá voru þau ómiss- andi Emmý, Guðjón og gítarinn. Emmý var verulega músíkölsk og spilaði á gítar og söng um tíma í Skagfirsku söngsveitinni og Guð- jón söng með Karlakór Reykjavík- ur svo að þarna voru engir viðvan- ingar við sönginn. Við stelpurnar áttum yndislega stund núna í nóv- emberklúbbnum og var þá Emmý kvenna kátust. Það er alltaf erfitt Emmy Margit Þórarinsdóttir ✝ Emmy MargitÞórarinsdóttir fæddist á Akureyri 28. desember 1941. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi 22. desember síð- astliðinn. Emmy Mar- git var jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík 8. janúar sl. að kveðja ástvini og góða vini en hún Emmý skilur eftir sig svo yndislegar minn- ingar sem við munum lengi minnast. Elsku Guðjón, Hallur, Guðbjörg, Þórunn, Melanie og Petrína. Megi Guð gefa ykkur styrk við fráfall Emmýjar en minningin um þessa yndislegu konu mun sefa dýpstu sorgina. Þetta ljóð Úlfs Ragnarssonar er okkar kveðja til þín elsku Emmý: Ég veit ekki hvort þú hefur, huga þinn við það fest. Að fegursta gjöf sem þú gefur er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær, hlýja í handartaki, hjarta sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði, heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði, sakleysi, fegurð og yl. F.h. Laugalandsmeyja 1962, Jóhanna Þorsteinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.