Morgunblaðið - 20.01.2010, Blaðsíða 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2010
✝ Þórdís M. Þorleifs-dóttir fæddist í Ár-
holti í Haukadal í
Dýrafirði 1. desember
1926. Þórdís var síðast
til heimilis í Torfufelli
27 í Reykjavík en lést á
hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ þriðjudag-
inn 12. janúar sl.
Foreldrar hennar
voru Þorleifur Júlíus
Eggertsson, f. 31.7.
1898, d. 10.1. 1983, frá
Árholti í Haukadal í
Dýrafirði, farkennari
við skólana í Haukadal og Keldudal,
og Jóhanna Bjarney Guðjónsdóttir, f.
25.9. 1900, d. 9.8. 1989, frá Arnarnúpi
í Keldudal í Dýrafirði. Systkini Þór-
dísar eru Jón Snorri, f. 1929, og Guð-
munda Markúsína, f. 1938. Unnusti
Þórdísar, Skafti Stefánsson, f. 25.3.
1921, lést af slysförum á Þingvalla-
vatni hinn 3.6. 1946.
Þórdís giftist Haraldi Ágústi Jó-
hannssyni, f. 11.8. 1921, þann 1.12.
1950. Haraldur lést 8.1. 1971. For-
eldrar Haraldar voru Kristjana
Þorgerður, f. 12.5. 1955, maki Krist-
inn Benonýsson, f. 7.4. 1947. Börn
þeirra eru Benoný, f. 2.10. 1977,
Kristjana, f. 20.11. 1987. 3) Benedikt
Sigfús, f. 13.9. 1958, maki Kristjana
Helga Jóhannsdóttir, f. 14.6. 1964.
Börn þeirra eru Þorgerður, f. 26.8.
1995, Þórhildur f. 4.9. 1999. Sonur
Benedikts frá fyrri sambúð er Björn
Rúnar, f. 28.3. 1981. Dóttir Kristjönu
er Jóhanna Helga Viðarsdóttir, f.
12.3. 1983, sambýlismaður hennar
Kristján Hafsteinsson, f. 1.8. 1980 og
eiga þau eina dóttur. 4) Skapti Jó-
hann f. 7.12. 1960, maki Kristbjörg H.
Sigtryggsdóttir, f. 28.5. 1962. Synir
þeirra eru Fjölnir, f. 26.9. 1998, Hall-
dór, f. 28.1. 2000.
Fyrri maki Halldóra A. Ragn-
arsdóttir og eiga þau þrjá syni: Jó-
hann Fjalar, f. 2.7. 1983, sambýlis-
kona Guðlaug Helgadóttir, f. 22.12.
1984, þau eiga eina dóttur. Jens Fjal-
ar, f. 11.9. 1985, Patrik Fjalar, f. 1.8.
1989. Alls eru barnabörnin 18 og
barnabarnabörnin orðin átta.
Þórdís vann ýmis störf um ævina,
meðal annars í ritfangaverslun Ísa-
foldar en lengst af á rannsóknardeild
Borgarspítalans í Fossvogi. Hún var
félagi í Alþjóða Sam-Frímúrararegl-
unni og meðan heilsan leyfði söng
hún með kór eldriborgara í Gerðu-
bergi. Útför Þórdísar fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 20. janúar,
og hefst athöfnin kl. 13.
Benediktsdóttir kenn-
ari og Jóhann Jó-
hannsson hús-
gagnasmiður. Barn
Þórdísar og Skafta, er
Sjöfn f. 23.8. 1946,
maki Bjorn Arild
Skaug, f. 23.5. 1946.
Dætur þeirra eru
Linda Elisabeth, f. 9.1.
1971, maki Ragnar
Magnús Einarsson, f.
1.8. 1972, þau eiga
fjögur börn. Þórdís
Anna, f. 4.11. 1975,
maki Jo Inge Mandt, f.
11.9. 1975, þau eiga eina dóttur.
Börn Þórdísar og Haraldar eru: 1)
Kristín Guðbjörg f. 12.11. 1953, maki
Sigurður Ö. Magnússon, f. 14.9. 1952,
synir þeirra eru Haraldur Ágúst, f.
23.6. 1974, sambýliskona Auður
Brynjólfsdóttir, f. 16.9. 1976, þau eiga
einn son. Magnús, f. 25.5. 1981, sam-
býliskona hans er Jóhanna Dögg Ol-
geirsdóttir, f. 8.8. 1982, Magnús á
einn son. Einar Þór f. 29.12. 1984,
sambýliskona hans er Þrúður Maren
Einarsdóttir, f. 16.7. 1986. 2) Jóhanna
Elsku mamma mín, það er svo
óraunverulegt að sitja hér og skrifa til
þín nokkur fátækleg kveðjuorð. Ég
hélt að þú yrðir eilíf, einhvern veginn
kom aldrei neitt annað til greina, en
allt tekur enda, það veit ég nú, en
minningarnar um þig munu lifa og
verða ljós í mínu lífi og þær mun ég
geyma í hjarta mínu sem fjársjóð.
Takk elsku besta mamma mín fyrir
allt sem þú varst mér, þú varst hetjan
mín.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þinn sonur,
Benedikt.
Þegar ég sest niður til að minnast
móður minnar koma margar minn-
ingar upp í hugann.
Þær minningar ætla ég að eiga fyr-
ir mig og varðveita en ég þakka fyrir
að hafa átt yndislega mömmu sem
hafði stóran faðm, sem gott var að
leita til.
Ég bið guð að geyma góða móður
mína og ömmu drengjanna minna.
Ég vil að lokum færa hjúkrunar-
fólki á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
bestu þakkir fyrir allt það góða, er
það veitti móður minni.
Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna
og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð.
Þú vaktir yfir velferð barna þinna,
þú vildir rækta þeirra ættarjörð.
Frá æsku varstu gædd þeim góða
anda,
sem gefur þjóðum ást til sinna landa,
og eykur þeirra afl og trú,
en það er eðli mjúkra móðurhanda
að miðla gjöfum eins og þú.
Ég flyt þér, móðir, þakkir þús-
undfaldar,
og þjóðin öll má heyra kvæðið mitt.
Er Íslands bestu mæður verða taldar,
þá mun þar hljóma fagurt nafnið þitt.
Blessuð sé öll þín barátta og vinna,
blessað sé hús þitt, garður feðra
minna,
sem geymir lengi gömul spor.
Haf hjartans þakkir, blessun barna
þinna,
– og bráðum kemur eilíft vor.
(Davíð Stefánsson)
Skapti J. Haraldsson.
Dísa, tengdamóðir mín og vinkona,
hafði fallega og látlausa framkomu.
Hún var hógvær og hlédræg, naut sín
best í faðmi fjölskyldu og ástvina.
Hún var alltaf vel tilhöfð, smekkleg
en látlaus. Ég tengdi Dísu alltaf við
kvæði Davíðs Stefánssonar „Konan
sem kyndir ofninn minn“ en Dísa var
ávallt reiðubúin að rétta hjálparhönd
en krafðist einskis í staðinn. Hún var
vinnusöm, kappkostaði að gera allt
vel sem henni var trúað fyrir og gat
ekki unnt sér hvíldar fyrr en hún var
búin að vinna verkin sín. Hún var með
sitt á hreinu, reikningar voru borg-
aðir fyrir gjalddaga. Hún lagði ríka
áherslu á það við börnin sín að þau
ættu að þakka fyrir að hafa vinnu, búa
við öruggt húsaskjól og fara vel með.
Hér talaði kona með reynslu.
Lífið hafði ekki alltaf farið mildum
höndum um Dísu. Þegar hún var
gengin sjö mánuði á leið að fyrsta
barni sínu drukknaði unnusti hennar,
Skafti, í Þingvallavatni. Hvílíkur
harmur! Seinni maður hennar gekk
frumburði hennar í föðurstað. Har-
aldur fékk hjartaáfall þegar yngsta
barnið, skírt í höfuðið á Skafta heitn-
um, var þriggja vikna gamalt. Hann
varð í kjölfarið mikill sjúklingur. Við
tóku mjög erfiðir tímar hjá fjölskyld-
unni. Næstu tíu ár voru lituð skugga
veikinda og sorgar.
Haraldur naut mikillar velvildar
hjá vinnuveitanda sínum Samvinnu-
tryggingum og gat um tíma unnið
heima við. En það var þröngt í búi svo
Dísa fór að vinna utan heimilis. Á
þessum tíma var ekki hægt að treysta
á neinn nema sjálfan sig. Dísa vann
um tíma á tveimur eða þremur stöð-
um til að sjá sér og sínum farborða.
Hún vann við skúringar meðan Har-
aldur gat unnið, síðan fór hún að
vinna á rannsóknardeild Borgarspít-
ala allan daginn og skúraði líka með
þeirri vinnu. Fjölskyldan lagðist á
eitt, dæturnar hjálpuðu til við heim-
ilið, umönnun föður síns og við skúr-
ingarnar. Dísa var aðeins 45 ára þeg-
ar hún varð ekkja í annað sinn. Dísa
gafst ekki upp og sýndi áfram mikinn
dugnað. Mikið var hún stolt þegar
langþráðu takmarki var náð árið
1985; búin að kaupa sér íbúð. Dísa
vann á Borgarspítalanum þar til hún
varð sjötug. Eftir að hún hætti að
vinna naut hún þess að hlusta á vind-
inn gnauða og að þurfa ekki að fara út
í myrkrið og kuldann í bítið á morgn-
ana. Þessi hógværa kona var sjálfri
sér nóg. Hún vildi ekki að aðrir hefðu
áhyggjur af sér eða fyrir sér væri
haft. Hún var létt á fæti, kvik í hreyf-
ingum og fór daglega í langa göngu-
túra. Hún söng með kór eldri borgara
og var félagi í Samfrímúrarareglunni.
Dísa dekraði við börnin mín, um-
vafði þau ást og umhyggju. Hún sá
eftir að hafa ekki haft tök á að sinna
eldri barnabörnunum sem skyldi.
Hún kom ekki heim til mín án þess að
taka til hendinni. Ef ég var ekki
heima þegar hana bar að garði vissi
ég alltaf að hún hafði litið inn. Það var
búið að fara mjúkum höndum yfir allt
heimilið. Ég var öfundsverð af
tengdamóður minni sem vildi ávallt
allt fyrir mig og mína gera. Lífshlaupi
Dísu er nú lokið en eftir lifir minn-
ingin um merkilega konu, sannkall-
aða hvunndagshetju. Ég kveð kæra
tengdamóður mína og vinkonu með
virðingu og þökk, lífið er sannarlega
tómlegra án hennar.
Kristbjörg Hrund.
Ég man hana fyrst á björtu vori
þegar hún og faðir minn bundust
trúnaðar- og ástarböndum. Hún
glæsileg kornung stúlka. Hann frá-
skilinn með eldri drenginn á framfæri
sínu. Frá fyrsta degi bundumst við
þeim böndum, sem aldrei hafa rofnað
síðan. Ég aðeins fimm ára stubbur,
Þórdís M.
Þorleifsdóttir
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minn-
ingargrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út. Greinar, sem berast eftir að út-
för hefur farið fram, eftir tiltekinn
skilafrests eða ef útförin hefur verið
gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum,
www.mbl.is/minningar. Æviágrip
með þeim greinum verður birt í
blaðinu og vísað í greinar á vefnum.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Engin lengd-
armörk eru á greinum sem birtast á
vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15
línur. Ekki er unnt að tengja við-
hengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar
mega einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi að-
eins fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í minningargrein-
unum.
Minningargreinar
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐJÓN ÁRNI GUÐMUNDSSON
húsasmíðameistari,
Máshólum 2,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 21. janúar kl. 13.00.
Jarðsett verður í Hvalsneskirkjugarði.
Guðlaug Kristófersdóttir,
Birgit Guðjónsdóttir, Christian Alexander Klempert,
Guðrún Jónína Guðjónsdóttir,
Kristinn Helgi Guðjónsson, Jóna Svava Sigurðardóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, sonur,
bróðir og afi,
JÓHANN PÉTUR HALLDÓRSSON
vélvirki,
Núpalind 2,
Kópavogi,
lést fimmtudaginn 14. janúar.
Útför fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn
22. janúar kl. 13.00.
Ingileif Hafdís Björnsdóttir,
Halldór Guðjón Jóhannsson, Sigurlín Jóna Baldursdóttir,
Davíð Freyr Jóhannsson, Pálína Þorgilsdóttir,
Ingvi Karl Jóhannsson, Þórdís Ólöf Viðarsdóttir,
Jóhann Ingi Jóhannsson, Sólveig Lára Kjærnested,
Sigríður Júlíusdóttir,
systkini og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
RÖGNVALDUR ÁRNASON,
áður til heimilis
Einilundi 2,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn
22. janúar kl. 13.30.
Lína Þorkelsdóttir,
Þorkell Ingi Rögnvaldsson,
Una Sigurlína Rögnvaldsdóttir, Óskar Smári Haraldsson,
Heiðar Rögnvaldsson,
Heimir Rögnvaldsson, Guðrún Björg Steinþórsdóttir,
afa- og langafabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÞÓRA KRISTJÁNSDÓTTIR SANDHOLT,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn
14. janúar, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju
þriðjudaginn 26. janúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er vinsam-
legast bent á að láta Ljósið, endurhæfingar- og
stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda njóta þess.
Erla R. Sandholt, Tómas Sigurðsson,
Sverrir Sandholt, Sigríður B. Sigurðardóttir,
Stefán H. Sandholt, Olga B. Magnúsdóttir,
Jón Eiríksson
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær bróðir okkar, móðurbróðir og frændi,
EGGERT KRISTMUNDSSON
bóndi,
Efri-Brunnastöðum,
Vatnsleysuströnd,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 21. janúar kl. 13.00.
Elín Kristmundsdóttir,
Anna Scheving Kristmundsdóttir,
Hallgrímur Kristmundsson,
Gísli Scheving Kristmundsson,
Skarphéðinn Scheving Einarsson,
Hannesína Scheving Skarphéðinsd., Guðmundur Steingrímsson,
Svanur Már Skarphéðinsson, Brynja Hafsteinsdóttir,
Kristmundur Skarphéðinsson, Ingunn Lúðvíksdóttir,
Elín Kristín Skarphéðinsdóttir.