Morgunblaðið - 20.01.2010, Side 30

Morgunblaðið - 20.01.2010, Side 30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2010 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is GÍTARLEIKARINN Björn Thoroddsen stóð í fjórða skipti fyrir Gítarveislu Bjössa Thor í nóvember síðastliðnum. Tónleikarnir fóru fram í Salnum og komust færri að en vildu. Vegna gríðarlegrar eftirspurnar hef- ur Björn ákveðið að endurtaka tónleikana og verða tvennir slíkir í boði næstu helgi, dagana 22. og 23. janúar. Fara þeir fram sem fyrr í Salnum. Tónleikarnir frá því í nóvember eru þá komnir út á geislaplötu. Áhrif „Hátíðin var tengd djassgeiranum mikið í upphafi, enda er ég að upplagi djasstónlist- armaður,“ segir Björn. „Svo fór ég að bæta við þetta og víkka þetta út og nú er hátíðin orðin algerlega sjálfstæð. Síðasta ár ákvað ég að taka inn þverskurð af íslenskum gít- arleikurum frá löngu tímabili, án þess þó að þetta eigi að vera einhver vísindalegt úttekt. Þetta eru allt gítarleikarar sem hafa haft áhrif á mig á einn eða annan hátt, bæði þeir sem eru eldri en ég og þeir sem eru yngri.“ Björn segist hafa valið tónlistina sjálfur að miklu leyti, og heyra má lög eins „Albat- ross“, „Apache“ og „Vegir liggja til allra átta“ auk frumsaminna laga. „Tónleikarnir gengu alveg rosalega vel; það var troðfullt og uppselt langt fram í tím- ann. Við vorum því tilneyddir til að setja upp aðra tónleika. Tónleikarnir voru svo „óvart“ teknir upp og stemningin var það góð að ég eyddi jólunum í að klippa þá sam- an og koma þeim út á plötu.“ Gamall gítargarmur Björn lýsir sjálfum sér sem gítarnörd. „Ég er gítarnörd. Algjör. Og mig langaði til að setja fram rödd þessa hljóðfæris með af- gerandi hætti. Svona eins og þegar Shadows og Ventures fóru mikinn. Gítarinn spilar mjög stóra rullu í vestrænni dægurtónlist og það tengjast allir gíturum á einhvern hátt. Ef þú ert ekki sjálfur að spila þá er annaðhvort frændi þinn í hljómsveit eða gamall gítargarmur lúrandi niðri í geymslu.“ „Ég er gítarnörd“ Hugsi Eðvarð Lárusson, Eddi Lár, í fíling. Veislustjórinn Björn Thoroddsen biður meðreiðarsveinana velkomna. Goðsögn Sjálfur Óli Gaukur var mættur til að taka í slaggígjuna. Meistari Jón Páll Bjarnason messar yfir lýðnum. Jón Rafnsson fylgist andaktugur með. TRYGGVI Hübner, Vilhjálmur Guðjónsson, Ólafur Gaukur Þórhallsson, Þorsteinn Magnússon, Björn Thoroddsen, Halldór Bragason, Jón Páll Bjarnason, Sigurgeir Sigmundsson, Sævar Árnason, Gunnar Ringsted, Eðvarð Lárusson, Hjörtur Stein- arsson, Guitar Islancio og Þórður Árnason auk rytmasveitar sem skipuð er Jóhanni Hjörleifssyni og Jóni Rafnssyni. Eftirtaldir gítaristar koma fram á tónleikunum Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Harry Brown kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ The Road kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára Taking Woodstock kl. 8 - 10:30 B.i. 14 ára Alvin and the Chipmunks (enskt tal) kl. 6 LEYFÐ Alvin og Íkornarnir (ísl tal) kl. 6 LEYFÐ Julie and Julia kl. 8 - 10:35 LEYFÐ Did you hear about the Morgans kl. 10 B.i. 7 ára Mamma Gógó kl. 8 LEYFÐ Alvin og Íkornarnir kl. 6 LEYFÐ Avatar kl. 6 - 9 B.i. 10 ára Mamma Gógó kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ Avatar 3D kl. 6 - 9:30 B.i.10 ára Nikulás litli kl. 8 LEYFÐ Edrú kl. 8 LEYFÐ Verndargripurinn kl. 10 LEYFÐ Það var ekki ég, ég sver það! kl. 5:50 LEYFÐ Hjörtun kl. 5:40 B.i.12 ára Góð lögga, vond lögga kl. 10 B.i.12 ára SÝND MEÐENSKU TALI ÍREGNBOGANUM HHH „...hefur sama sjarma til að bera og forverinn“ -S.V., MBL SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI FRÁ HÖFUNDI „NO COUNTRY FOR OLD MEN” KEMUR ÞESSI MAGNAÐA MYND Á EINU AUGNABLIKI BREYTTIST heimurinn að eilífu SÝND Í REGNBOGANUM HHH „Myndin er mann- leg og fyndin“ -S.V., MBL HANN MUN SJÁ UM RÆTTLÆTIÐ ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND Í ANDA GRAN TORINO SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI HHHH -S.V., MBL SÝND Í REGNBOGANUM GOLDEN GLOBE VERÐLAUN BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI HHHH -H.S., MBL HHHH „Frábær fjölskyldumyn - IG, Mbl Vinsælasta myndin íFrakklandi á síðasta ár ENSKUR TEX TI MEÐ ÖLLUM MYNDUM Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með K

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.