Morgunblaðið - 09.02.2010, Síða 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2010
RUT Magnússon söngkona lést í
Reykjavík 7. febrúar sl., 74 ára að
aldri.
Rut (f. Ruth Little) fæddist í Car-
lisle í Englandi 31. júlí 1935 og ólst
þar upp. Hún fluttist til London árið
1954 og hóf nám í læknisfræði en
sótti söngtíma jafnframt. Ári seinna
náði söngurinn yfirhöndinni og hún
brautskráðist með kennara- og ein-
söngvarapróf frá Guildhall School of
Music and Drama árið 1959. Eftir
glæstan söngferil í Bretlandi fluttist
hún til Íslands árið 1966 og hóf þátt-
töku í tónlistarlífinu hér.
Hún hélt fyrstu tónleika sína á Ís-
landi á vegum Tónlistarfélagsins ár-
ið 1963, tók þátt í frumflutningi
margra af stórverkum tónbók-
menntanna hér á landi. Hún frum-
flutti einnig fjölda nýrra verka eftir
íslensk tónskáld. Á óperusviðinu
birtist hún í hlutverki Carmen eftir
Bizet, í Þrymskviðu eftir Jón Ás-
geirsson og í Silkitrommunni eftir
Atla Heimi Sveinsson.
Frá upphafi sinnti Rut söng-
kennslu m.a. í Söngskólanum og
lengst af í Tónlistarskólanum í
Reykjavík eða þar til hún lét af
störfum árið 2003. Rut sinnti mörg-
um öðrum störfum á tónlistarsvið-
inu. Hún tók þátt í stofnun Samtaka
um byggingu tónlistarhúss 1983 og
stýrði starfseminni til 1993.
Rut var sæmd riddarakrossi hinn-
ar íslensku Fálkaorðu árið 1992.
Eftirlifandi eiginmaður Rutar er
Jósef Magnússon flautuleikari og
eignuðust þau tvo syni.
Andlát
Rut Little
Magnússon
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„OKKUR vantar norðanáttina til að
klára hausana upp úr sjó. Við feng-
um hana um jólin en þá voru allir í
fríi,“ segir Helgi B. Gunnarsson, yf-
irverkstjóri hjá Suðurverki við gerð
Landeyjahafnar.
Vinna við að byggja upp hausa á
garðendana er háð veðri og sjólagi.
Hefur sá verkþáttur tafist. Þegar
búið er að ganga frá garðhausunum
er efsta lagi brimvarnagarðanna ek-
ið út, byrjað yst og unnið í land.
„Það hefur verið nóg að gera og
fínasta tíð til að vinna í vetur, að
öðru leyti,“ segir Helgi. Hann bind-
ur vonir við að lag verði til að ljúka
hausunum í næstu viku.
Byrjað er að reka niður bryggju-
staura ferjubryggjunnar, mikla stál-
stólpa. Steinsteyptur hafnarkantur
kemur ofan á þá og síðan verður
grjóti raðað undir. Þá er verið að
ganga frá púðanum undir farþega-
afgreiðslu en verktakinn byrjar á
húsinu í vikunni. Höfnin verður tek-
in í notkun 1. júlí.
Ljósmynd/Hrafnhildur Inga
Bryggjustaurar Starfsmenn Suðurverks eru byrjaðir að reka niður staurana sem verða undirstöður steinsteypts hafnarkants fyrir Vestmannaeyjaferjuna.
Norðanátt
tefur
garðhausa
Byrjað að reka nið-
ur bryggjustaura
Landssamband
íslenskra útvegsmanna
Morgunverðarfundur á Grand Hótel
fimmtudaginn 11. febrúar kl. 8:00-9:30
Úttekt Deloitte sýnir að verði aflaheimildir teknar af sjávarútvegsfyrirtækjunum á 20
árum leiðir það til gjaldþrots þeirra. Boðuð fyrningarleið stjórnvalda elur á óvissu og
ógnar atvinnu og afkomu starfsfólks í sjávarútvegi, svo og þeirra þúsunda annarra sem
byggja afkomu sína á þjónustu við atvinnugreinina.
Dagskrá:
Sjávarútvegsfyrirtækin lifa fyrningarleiðina ekki af
Þorvarður Gunnarsson, endurskoðandi og framkvæmdastjóri Deloitte
Áhrif fyrningarleiðar á sjávarútvegsfyrirtækin
Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood hf,. Sauðárkróki
Fyrningarleið – Þjóðhagsleg áhrif
Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands
Fundarstjóri er Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Fyrningarleið
í sjávarútvegi?