SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Qupperneq 42
42 19. desember 2010
Y
firleitt virðast bræðurnir hitta
beint á mitt markið, True Grit
ætlar ekki að verða und-
antekning. Þó frumsýningin sé
ekki afstaðin eru dómarnir farnir að
hrannast inn og eru á sömu lund; end-
urgerð þessa sögufræga vestra er lofuð í
hástert og gagnrýnendur sjá fyrir sér
a.m.k. slatta Óskarstilnefninga. Þau
verðlaun eru ekkert nýjabrum á ferli
bræðranna sem unnu til þeirra árið 2007
fyrir nútímavestrann No Country for Old
Men. Í það skipti hirtu þeir þrenn af að-
alverðlaununum, fyrir bestu mynd, leik-
stjórn og handrit. 2009 var A Serious
Man tilnefnd fyrir leikstjórn og handrit,
auk þess hafa þeir unnið hér og þar yfir
70 verðlaun til viðbótar
Aðlögun bræðranna á bók Cormacks
McCarthys, No Country for Old Men,
sannaði að vestraformið leikur í höndum
þeirra og kæmi engum á óvart þó þeir
ættu eftir að róa á sömu mið áður en
langt um líður – þó vestrinn sé ekki bein-
línis á hvers manns færi nú um stundir.
Svo sem allir bíófíklar vita voru það
kolsvartar gamanmyndir sem gerðu þá
Joel og Ethan að goðsögn í augum gagn-
rýnenda. Nú virðast mannaveiðar í vest-
urríkjum hafa heltekið þá; fyrst skratta-
kollurinn Chigurh (Javier Bardem) í No
Country for Old Men, nú er röðin komin
að sjálfum „Rooster“ Cogburn, með Jeff
Bridges í hlutverkinu sem færði John
Wayne sín einu Óskarsverðlaun.
Munurinn er samt mikill á myndunum
tveim, hin nýja True Grit er við hæfi allr-
ar fjölskyldunnar, öndvert við No Co-
untry …, sem er aðeins fyrir þá mag-
asterku.
Klassískur vestri
True Grit er klassískur vestri um Mattie
(Hailee Steinfeld), kjarkmikla, 14 ára
stelpu sem heldur ótrauð inn á lendur
indjána, með verði laganna sér til trausts
og halds. Þetta verður mikil svaðilför
enda tilefnið að hafa uppi á morðingja
föður hennar. Nú er spurningin, verður
nýja myndin klassík? Bræðurnir nýta
víðátturnar miklu, viðkvæm hjörtu og
stelpukrakka sem er ósvikið hörkutól. Ef
draga ætti ályktun af því hversu síðla á
árinu True Grit er sýnd, má ætla að dreif-
ingaraðilinn, Paramount, sjái í henni
sóknarfæri fyrir Óskarsverðlaunin í febr-
úar. Ekki aðeins fyrir myndina, heldur
handritið, leikstjórana og leikarana Brid-
ges, Josh Brolin og Matt Damon – og
jafnvel litlu fröken Steinfeld.
Hollywood hefur ekki verið í uppnámi
vegna vestra að undanförnu og þeir
gengið upp og ofan. The Assassination of
Jesse James by the Coward Robert Ford,
fann frekar þunnskipaðan hóp áhorfenda
– þrátt fyrir ótvírætt stjörnuskin Brads
Pitts. 3:10 to Yuma gekk miklu betur, en
þetta eru dýrustu og umtöluðustu vestrar
síðari ára.
Það var ekki eingöngu sakir sögu-
frægrar persónusköpunar Waynes, sem
hinn eineygði löggæslumaður, Cogburn,
sem bræðurnir kusu að endurgera True
Grit, heldur öllu frekar væntumþykja
þeirra á bók Charles Portis sem myndin
er byggð á. Sögumaður bókarinnar er
Mattie, piparmey sem segir endurskoð-
andanum Tom Chaney (Josh Brolin) sögu
sína af leitinni að föðurbananum og
hefndinni, mörgum árum eftir atburðina.
Hún dettur hins vegar inn í mynd bræðr-
anna (líkt og í frummyndinni) sem bráð-
þroska, kornung stúlka, einbeitt og
harðfylgin með eyra fyrir tungumálum
og auga fyrir tölum. Bræðrunum finnst
hún illþolandi þverhaus í bókinni, en
jafnframt einstaklega aðdáunarverð. Þeir
vildu ekki hræra um of í sögu og per-
sónum sem þeim báðum fannst sannfær-
andi. Þeir víkja aldrei frá þeirri staðreynd
í myndinni að Mattie er vart af barnsaldri
en varast að gera hana að einhverri kvik-
myndadúllu. Hún er leikin af nýliðanum
Steinfeld, sem beitir ýmsum brögðum til
að fá þá Cogburn og Texas-varðliðann
Leboeuf (Damon) sér til fulltingis við leit-
ina, þó einkum dálítilli gróðavon.
Mikið mæðir á Bridges
Það hvílir nikið á herðum Bridges, hér
leikur „The Dude“ Lebowski hinn stór-
brotna, óheflaða, drykkfellda en réttsýna
Cogburn, sem er ekki svo ólíkur gam-
alkunnri ímynd „The Dude“ sjálfs – í
hugum þeirra sem muna hinn vörpulega
persónuleika Johns Waynes – sem var
sem hluti af mikilfenglegu umhverfi
Monument Valley.
Mest reynir þó á hina ungu Steinfeld,
sem var valin úr einum 15.000 umsækj-
endum, aðeins 13 ára gömul og óreynd.
Hún er þungamiðjan í sögunni og mynd-
inni og ekki annað að sjá en valið hafi
lukkast með prýði.
En hvað sem þessum magnaða leikhópi
líður er það sagan sjálf sem er að-
alstjarnan að mati Joels og Ethans, sem
hafa fyrir tug mynda sýnt að þeir vita
hvað þarf til að gera kvikmyndir – og það
góðar kvikmyndir.
Óskarsverðlaunahafinn Jeff Bridges og Hailee Steinfeld í nýju útgáfunni af True Grit.
Reuters
Kúlnaregn hittir í mark
Um helgina verður
frumsýnd vestanhafs
endurgerð Coen-bræðra
á True Grit, hinum
klassíska vestra Johns
Waynes og Henrys Hat-
haways.
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
Jeff Bridges og Coen-bræður hressir á forsýningu True Grit í vikunni. Þeir þekkjast býsna vel.
John gamli Wayne í upprunalegu útgáfunni.
Mikið mæðir á hinni ungu Hailee Steinfeld.
Kvikmyndir