Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.11.1987, Side 4

Skólablaðið - 01.11.1987, Side 4
SAMKEPPNI Ritnefnd Skólablaðsins efndi til samkeppni hérna um daginn, þátttaka var dræm en með að hóta öllu illu tókst að kreista efni út úr nokkrum. Dómnefndin var skipuð eftirtöldum: Pétri Gunnarssyni, Nínu Björk Árnadóttur, Braga Ólafssyni og Olgu Guðrúnu Árnadóttur. Mún kom saman á kafflhúsi hér í borg 28. okt. Niðurstaða nefndarinnar var eftirfarandi: Smásögur í smásagnasamkeppninni voru 1. verðlaun ekki veitt, en Hróðmar Dofri Hermannsson fékk 2. verðlaun fyrir smásögu sína „Esop lét þess ekki getið . ..." 3. verðlaun fékk Baldur A. Kristinsson fyrir smásögu sína ,Af sólu". Einnig hlaut Sindri Freysson sérstaka viðurkenningu fyrir „Gestgjafann góða". „Djöfulli vel skrifuð, fjárinn hafl það", eins og Pétur Gunnarsson orðaði það. í ljóðsamkeppninni hlaut Baldur A. Kristinsson 1. verðlaun fyrir ljóð sitt „Kyrrstaða". Melkorka Thekla Ólafsdóttir hlaut önnur verðlaun fyrir ljóðið „Máfur að leik í vindi" og síðan hlaut Baldur A. Kristinsson 3. verðlaun fyrir „Eins konar dögun". Sérstakar viðurkenningar voru veittar Urði N. Njarðvík fyrir línurnar: „Ofurhægt missir sumarið andlit sitt í jörðina", í ljóðinu „Haust" og Baldri A. Kristinssyni fyrir ljóðið „Bið" sem að mati dómnefndar var „ansi lunkið" og „smellið". f forsíðusamkeppnina barst ekkert efni, svo að ritnefnd hélt sér bara ódrukkinni fyrir verðlaunaféð. ég kalla nú ekki allt ömmu mína. €n þetta er sko amma mínl — Bcildur R. Kristinsson

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.