Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.11.1987, Blaðsíða 24

Skólablaðið - 01.11.1987, Blaðsíða 24
MTOD. Tveir strákar hata hvor annan. Þeir eiga heima í sama stigagangi í stórri blokk. Þeir hafa búiö þar frá fæðingu. Þeir búa hvor á móti öðrum og þeir hafa alist upp saman frá barnæsku. Þeir hafa verið keppinautar frá barnæsku. Fyrst kepptu foreldra þeirra. Hvor er fyrri að tala, hvor er fyrri að ganga, hvor dafnar betur, öskrar hærra, þegir meira? Hvor er betri í þessu og hvor er betri í hinu? Þannig byrjaði það. Um leið og þeir höfðu vit til héldu þeir leiknum áfram. Hvor er fljótari upp stigann, hvor þorir að halla sér lengra fram af svölunum, hvor er fínni í fermingarveisl- um og seinna hvor er ófínni og dónalegri 1 fermingar- veislum? Og af því voru sagðar endalausar grobbsögur. Foreldrarnir brostu og töluðu um í kaffiboðum hvað drengjunum kæmi vel saman og hvað þeir væru góðir vinir. Þeir voru löngu hættir að gorta af strákunum eða bera þá saman, í þeirra augum voru þeir núna sem ein heild. Og það voru þeir líka, — alltaf saman, óaðskiljanlegir, — og í raun góðir vinir. Því þeir gátu talað um allt hvor við anna, sagt allt hvor við annan. og þeir höfðu frá nægu að segja. Hvern einasta dag frá morgni til kvölds höfðu þeir hvor annan undir smásjánni, og ef annar sýndi á sér veika hlið eða bara punkt, þá rakkaði hinn hann umsvifalaust niður. Þeir nefnilega hötuðu hvor annan. Og áfram hélt lífið, aldur færðist yfir og áhugamál breyttust. Nú var keppt um að vera góður í skóla, síðan slæmur í skóla, slagsmálafjölda og stelpur. Þeir fóru báðir í framhaldsnám og þá tók við barátta um tekjur, bíla, námsárangur aftur, kvenhylli áfram og forystu innan hópsins. Báðir vildu vera skemmtilegir, frumlegir og áberandi, Og þeir hötuðu hvor annan. Og enn eldast menn. Nú skilja leiðir. Strákarnir fara hvor í sinn háskólann sinn í hvort landið. Þeir ljúka báðir námi — sinn hvoru —, halda til úti nokkur ár, — annar þrjú, hinn fimm, — og stofna þar fjölskyldur. Þeir koma heim með sínum fjölskyldum, stofna einbýlishúsaheimili og gerast venjulegir, vel stæðir ungir miðstéttarkarlmenn. Báðir týndu frumleik- anum á leiðinni í þá stöðu. Svo einn góðan veðurdag hittast þeir úti á götu. Það er rúmlega kvöldmatur og þeir eru á rjátli um regnblaut stræti bæjarins í leit að friði eða ævintýrum. Þeir faðm- ast og ákveða að fá sér í glas saman og þeir setjast inn á dimma knæpu í undirgangi. Hún er sóðaleg og það eru fáir þar inni. Þeir eru búnir að gleyma að þeir hata hvor annan. Þeir rifja upp gamlar minningar, þeir fara yfir æviferil sinn frá byrjun til þessarar stundar og þeir fara að skála hvor fyrir öðrum. Og þeir hata hvor annan. Skál, fyrir konum okkar! Skál, fyrir börnum okkar! Skál, fyrir okkur! Skál, fyrir að hittast aftur! Og þeir horfa djúpt hvor í annars augu og segja: Skál fyrir að hittast oft aftur. Og glösin skella saman svo fast að þau brotna og þeir skera hendurnar hvor á öðrum og glerbrotin spýtast í andlitin á þeim og skera þau líka. Og blóðið rennur. „Úlfur" Kennslubœkur og ritföng. Lítið inn á nœsta götuhorni. SÖGUBÚÐIN Laufásvegi 2, S. 27144 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.