Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.11.1987, Síða 8

Skólablaðið - 01.11.1987, Síða 8
2. SÆTI í SMÁSAGNASAMKEPPNI ESÓP LÉT ÞESS EKKI GETIÐ . . . í þorpinu hafði fólkið sífelldar áhyggjur af hjörðinni, — enda kannski von, þar sem hún gegndi sama hlutverki þá og peningar nú. Það er að segja: Ær og lömb voru vinsælasti gjaldmiðillinn, og enginn var sá verslunar- eða iðnaðarmað- ur, sem ekki átti nokkur lömb til að geta skipt, ef viðskiptin voru stór- felld. En það, sem einkum var óhentugt við þennan lifandi gjaldmiðil, var sú árátta hans að hrökkva upp af, þegar síst skyldi, og valda með því eiganda sínum stórfelldu eignatjóni. Helsta dánar- orsök fénaðarins í þessu tilviki var þó sú að úlfarnir voru óvenjuþurft- arfrekir á þessum slóðum. Af þess- um úlfum stöfuðu aðaláhyggjur þorpsbúa. Og þvílíkar voru áhyggj- ur þeirra að stundum kom þeim ekki dúr á auga margar nætur í röð. Allir yrðu þeir að vera viðbúnir að verja hjörðina, ef boð kæmu frá hjarðmanninum um að úlfarnir væru að gera árás, Svo rammt kvað að þessu að fólkið var hætt að safn- ast saman á þorpskránni til að fá sér í staupinu, því að kæmi til bar- daga við úlfana, var betra að vera allsgáður. Þeir sem fjárflestir voru, tóku að vantreysta hver öðrum og grunuðu hver annan um að sofa við hjarðgæsluna. Þannig var ástandið þegar þú komst til þorpsins. Kráreigandinn var löngu flosnaður upp, bakarmn þjáðist af uppköstum og svima og presturinn komst aldrei lengra með sunnudagsmessuna en: „. . Gef oss í dag vort daglegt þrauð. . því að þá varð öllum hugsað til hjarðarinn- ar og hlupu út til að gá hvort hún væri óhult. Einhverra hluta vegna fékk fólkið strax mikið álit á þér, og þar sem enginn treysti öðrum leng- ur til að gæta hjarðarinnar, var þér falinn sá starfi. Þér varð fljótt ljóst, hvernig ástatt var í þorpinu, og sást að við svo búið mátti ekki standa. Þú ákvaðst að gabba fólkið nokkrum sinnum til að gera það sljótt fyrir hættunni og fá það til að slaka á-. í fyrsta skipti, sem þú hrópaðir til fólksins: „Úlfur! úlfur!", kom það þjótandi með hey- kvíslar, hrífur og önnur tól til að drepa úlfinn. Þegar það uppgötv- aði að þetta var ekki satt með úlf- mn, varð það mjög fegið. En kvíði þess var samur og áður og þú sást að betur mátti ef duga skyldi. Þess vegna ákvaðstu að gera þetta aftur og aftur þangað til fólkið hefði tekið sönsum. Að lokum náðirðu settu marki. Þorpsbúar voru orðnir heil- brigðar sálir í hraustum líkömum og sögðu úlfa- og sauðfjárbrandara sér til skemmtunar daginn út og inn. Kráin var opnuð að nýju, bak- arinn hætti að kasta upp og staulast með veggjum, og presturinn gat nú ótruflaður lokið við faðirvorið og jafnvel rakið söguna um fjárhirðana á Betlehemsvöllum, án þess að nokkur gerðist ókyrr í sæti. Menn höfðu með öðrum orðum læknast af ótta sínum og hugsýki. En jafnvel bestu lækningaaðferð- um fylgja aukaverkanir: Dag nokk- urn gerðist það sem þig hafði aldrei grunað: Það kom úlfur. Þú reyndir að kalla á hjálp, en þegar þorpsbúar heyrðu í þér, héldu þeir að þú værir að grínast. Þeir hlógu með sjálfum sér að uppátækjum þínum og glöddust um leið yfir þeirri breytingu sem á þeim sjálf- um hafði orðið. En þar kom þó að lokum að þeim urðu ljós afdrif þín og hjarðarinnar. Þá hlógu þeir ekki framar. Fullir harms og reiði sömdu þeir um þig meinfýsin ævintýr sem lifðu mann fram af manni og hvert barn kannast við enn í dag, Hróðmar Dofri Hermannsson My londscape is q hand uuith no lines. — Sylvia Plath

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.