Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.11.1987, Síða 21

Skólablaðið - 01.11.1987, Síða 21
ÍÞaka Hann situr og læst vera að lesa en látbragð það hver maður sér því stundarlangt stendur hans hugur til stúlku er móti honum er. Hún er bláeygð með ljósa lokka og lærir svo fróðleiksfús en í bjartsýni bræðir hann með sér að bjóða henni á öldurhús. Skrýtið hve veraldarviskan verður marklaus og grá er ljóshærða stúlkan laumast að líta hann snöggvast á. Úr töskunni tekur hann poka og telur að sjái ekki neinn. Úr flöskunni, sem þar er falin, fær hann sér sopa einn. Þá glaðnar hans ásjónu yfir og upp setur gáfnasvip. Fyrir vonanna vindum velkist hans sálarskip. Þá ljúkast upp lestrarsalsdymar, læðist piltur einn inn, og stúlkan með sópranrödd segir: Sæll vertu, unnusti minn Sá er kvenlegur kaupmannssonur er krónumar halar inn af mammonsástinni montinn og mun meiri sjarmur en hinn. Svo læðast þau léttstíg í burtu og loka á eftir sér en hann situr eftir að sumbli og semur heilt harmkvæðakver. Hálftíma seinna er hann hálfur, hugsar í þoku og reyk og sýnist sem safnins vörður syngi við píanóleik. (Söngtexti safnvarðarins) Ef til vill einhvem tímann, ef algebru lærir þú nú verður stúlkan með sturluðu augun stærðfræðiprófessors frú. Kristján Þórður Hrafnsson 21

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.