Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.11.1987, Side 25

Skólablaðið - 01.11.1987, Side 25
Johann Matthíasson: Utlestur á stjömukorti Birgis Ármannssonar. Það er spurning hvort það þurfi nokkurt stjörnukort til að lýsa Birgi Ármannssyni, Hvort sem menn þekkja hann persónulega eða af afspurn, vita menn að hann er ekki aðeins höfuð 68, árgangsins í M.R., heldur er enginn líklegri til að verða helsti stjórnmálamaður okkar og foringi, þó að fleiri árgangar séu inni í dæmmu, í þessum línum verður samt gerð tilraun til að dýpka hugtakið „Birgi Ármanns- son'1. Þessi grein kann að virðast heldur mikið lof um einn mann, en ókostirnir koma meira inn á einkalíf Birgis og verða ekki raktir hér, heldur er kortið skoðað að mestu í stjórnmálalegum skilningi. í grundvallareðli er Birgir tví- buri, ffjálslyndur íhaldsmaður: létt- lyndur og hress, félagslyndur og hugmyndaríkur, og hefur gaman af hugmyndalegum samskiptum og vangaveltum. Hann er mjög fjöl- hæfur og hefur mikla þörf til að vinna að mörgum málum í einu. Þrátt fyrir hressileika og málgefni bendir Tungl í steingeit í sterkri af- stöðu við Satúrnus í 6. húsi til hlé- drægni, mikillar ábyrgðarkenndar og skipulagningar. Þessu fylgir emnig rosaleg metnaðargirni og ákveðni jafnframt vinnu- og sam- viskusemi, er getur leitt til of mikill- ar stífni og kaldranaleika. Þessi staða er í mótsögn við tvíburann sem getur valdið spennu milli íhaldssemi og frjálslyndis. Tunglið er í 3. húsi sem ásamt mörgum plánetum í Tvíbura bendir til áhuga á fjölmiðlun og hvers konar tjá- skiptum. Peningana eða lífið. Sólin ásamt Merkúri, Venus og Mars er í 8. húsi, og leiðir í ljós, að Birgir er að mörgu leyti dularfyllri og óráðnari náungi en almennt ger- ist um tvíbura. Hann hefur væntan- lega feikilegan áhuga á hinu dulda, öllum leyndardómum og öllu sem almenningur skilgreinir „tabú". Peningar eru sterklega tengdir honum, þá penmgar annarra, í sambandi við banka, tryggingar o. s. frv. Sem stjórnmálamaður kemur hann til með að vinna mikið á bak við tjöldin og beita sálfræði- legu innsæi. Slaufan. Birgir er rísandi Vog og hefur Sól í samstöðu við Venus. Það sýnir, að hann er mjög fagurfræðilega sinnaður, hefur næmt auga fyrir fegurð, formi og litasamsetningu. Hann leggur mikla áherslu fram- komu sína, snyrtileika, kurteisi og sjarma sem á eftir að nýtast honum á framabraut sinni. Góðir tilheyrendur. Birgir hefur Merkúr (hugsun og máltjáningu) í BCrabba í afstöðu við rísanda. Sú afstaða gerir að hann á mjög gott með að tjá sig. Krabbinn ásamt Tungli í 3. húsi gerir að hann spilar á strengi tilfinninganna í ræðumennsku og nær til fólks á þann hátt. Þannig á hann gott með að sannfæra áheyrendur af öllum huga með emlægum talanda um gildi hugmynda smna. Sú hin skínandi sól. Miðhiminn (starf út á við) í Ljóm gefur til kynna að hvað sem Birgir mun gera, verður það ætíð eitthvað þar sem hann getur látið sól sína skína og látið bera virðingu fyrir sér. Júpíter í 10. húsi segir jafnframt að hann vill vera þekktur fýrir kraft sinn, sjarma og stjórnunarhæfileika og hvert tækifæri er notað til að vera í sviðsljósinu. Allir menn sækj- ast á emhvern hátt eftir fullnægj- andi lífi. Birgir gerir það í gegnum starfsframa sinn, stöðu og viður- kenningu. Birgir ætlai sér að verða bestur og honum mun ekki líða vel nema í áhrifastöðum í þjóðfélaginu. Þessi staða ásamt sterkum Plútó er vandmeðfarm og getur leitt til ver- aldargræðgi. Byltingin lifi. Birgir hefur Sól í sterkri afstöðu við Úranus og Plútó í 11, húsi. Plútó eykur enn á sálfræðihæfileika og duld Birgis og gefur honum einnig mikmn kraft til að sjá hlutina í réttu ljósi, sjá í gegnum fals og pretti og hæfileika til að reyta arfann úr per- sónuleikanum. Það getur einnig leitt til sífelldrar óánægju og full- komnunarþarfar úr hófi. Úranus gerir að Birgrr er óhræddur við að fara ótroðnar slóðir, er byltingar- kenndur og rafmagnaður og fædd- ur foringi. Ásamt Tungli í Steingeit gefur þessi Úranus til kynna að Birgir er fæddur sjálfstæðismaður. Þessar plánetur í 11. húsi (þjóðfé- lagið) gefa til kynna að Birgir á eftir að koma eins og sprengja inn í kerfið (verst að hann er mannleg- ur). Það er kannski of sterkt til orða tekið, en sem stjórnmálamaður á hann vafalítið eftir að umturna og bylta, sínum flokki sem öðrum og þar með þjóðfélaginu í þeim skiln- ingi. Hann á mjög líklega eftir að brjóta upp hið gamla staðnaða, reyta arfann, boða nýjungar og byltmgu, en samt á smn hógværa, dularfulla, og íhaldssama hátt. Fyrst læt ég vera að slá grasið. — Bragi ÓlaFsson 25

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.