Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.11.1987, Side 55

Skólablaðið - 01.11.1987, Side 55
þar til hún var orðin eins og rauð- glóandi hnöttur á kvöldhimni og himinninn var bleikur og rauður innst en blár yst. ]. andaði að sér kvöldloftinu þar sem hann sat á gosbrunninum og velti því fyrir sér hvað hefði gerst, hvers vegna þeir væru ekki komn- ir. Að lokum, þegar sólin hafði sökkt sér til hálfs ofan í sjóinn úti við sjóndeildarhringinn, heyrðist hóatak og svarti fangavagninn ók inn á torgið. Fanginn, ungur maður, var leiddur út úr vagninum. Hann horfði stíft í augun á ]. þegar hann steig niður á jörðina, og J. horfði á móti vansælu augnaráði, en áttaði sig um síðir á því að maðurinn horfði ekki í augu honum heldur gegnum hann eða ofan í hann og leið líkt og sál sín hefði verið svipt hulstrinu. Peir leiddu hann að staurnum og presturinn kom og gerði krossmark og tautaði eitthvað yfir honum sem J. heyrði ekki. Tveir hermenn bundu hann við staurinn með þykkum reipum, en hann neitaði því að bundið væri fyrir augu sín. J. leit á þetta allt saman með sívaxandi spennu, horfði á hverja hreyfingu hermann- anna og lögreglustjórans líkt og hann væri hræddur við að missa af einhverju. Þessi hegðun kom honum sjálfum á óvart, hann hafði hræðst það að liði yfir sig eða eitthvað því um líkt, en ekkert slíkt gerðist. Hann spurði lögreglustjórann að því hvað mað- urinn hefði gert af sér meðan her- mennirmr stilltu sér upp og hlóðu rifflana. Lögreglustjórinn horfði öldungis dolfallinn framan í J. „Er yður alvara með spurningu yðar?" Fát kom á J. „Já . . . já, auðvitað er mér alvara," sagði hann hryssings- lega. „Já en þér hljótið að vita hvað hann gerði,11 svaraði lögreglustjór- inn og það var ekki örgrannt um að honum fyndist hann vera að tala við barn. „Hann myrti eiginkonu yðar.11 Það var sem jörðinni væri kippt undan J. við þessi orð. „Myrti hann konuna mína?“ stamaði hann. Torg- ið hringsnérist og mmnkaði stöð- ugt. Hann vaknaði við það að ein- hver sló á vanga honum og reyndi að fá hann til að drekka eitthvað. Hann rankaði smám saman við sér og var studdur á fætur af lögreglu- stjóranum. „Drekkið þessa lögg," ráðlagði hann. „Hvað er þetta?" spurði J. loðinni röddu og horfði í áhyggjufullt augnaráð stjórans. „Koníakslögg, hún mun hressa yð- ur“. Hermennirnir höfðu hikað þar til greifinn raknaði úr yfirliðinu, en fanginn virti torgið og húsin fyrir sér í síðasta sinn og nú var hann farinn að gráta. Hljóðlega runnu tár niður kinnar hans en ekkert hljóð kom frá hon- um. J. horfði á hann og augu þeirra mættust, J. leit undan, hann greindi sterkt hatur frá þessum manni. „Hvers vegna drap hann konuna mína?" spurði J. eftir þrúgandi þögn húmsins allt í kring. „Þér vitið það best sjálfur," sagði lögreglu- stjórmn og það gætti lymsku í rödd hans. J. leit undrandi á hann og lög- reglustjórinn horfði á móti líkt og fanginn. Fugl flaug yfir torgið, og J. horfði á eftir honum, hlustaði á söng fugla í fjarska og andaði að sér kvöldloft- inu. „Jæja, eigum við ekki að ljúka þessu af?" spurði stjórinn og J. kink- aði þreytulega kolli. „Jú best að ljúka þessu af," andvarpaði hann. Fanginn var leystur og tveir her- menn komu í átt til J. í fyrstu flaug honum í hug að möguleiki væri á því að flýja, en síðan slappaðist hann niður þegar allar útgönguleið- ir virtust lokaðar, og lét leiða sig að staurnum án mótþróa. Hann reyndi að líta festulega á unga manninn, fangann, en það mistókst. Honum brást kjarkur til þess að ögra hon- um með augnaráði sínu. Presturinn gerði krossmark yfir honum og tuldraði „Faðir vor á himnum veiti þér fyrirgefningu." Eitthvað brast inni í J. en hann leit í krmgum sig, sá síðasta gyllta blik sólar á efstu bunu gosbrunnsins; svo óskýrðist sjón hans af tárum. Smellur í rifflum. „Miðið, - skjót- íð . ." Skothvellirnir svifu milli hús- veggja ört eins og vængjaþytur. Líkami J. hékk líflaus í næstum sundurskotnum reipunum, svo datt hann á blóðuga jörðina. Krampa- kippir fóru um líkamann og það marraði í sandinum undir honum í kvöldkyrrðinni. Enginn hreyfði sig. „Hann var auðblekktur," sagði lögreglustjór- inn og brosti illgirnislega. „Fang- inn“ sem stóð nú við hlið hans, kink- aði kolli samþykkjandi og brosti einnig, Það var engin ástæða til að vera vansæll á svo fögru kvöldi. 19/3/87. Hrafn Lárusson. Til Guðrúnar

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.