SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Síða 8
8 8. maí 2011
Það er líklega óhætt að segja að allir lykilleikmenn
spænska landsliðsins komi frá tveimur stærstu lið-
um landsins, Real Madrid og Barcelona. Af tuttugu
og þriggja manna hópnum sem Vicente del Bosque
tók með á heimsmeistaramótið í Suður-Afríku síð-
asta sumar voru hvorki fleiri né færri en þrettán leik-
menn frá stórliðunum tveimur. Voru það sömu þrett-
án leikmenn og tóku þátt í hinum fjórum þáttum
risaslagsins á síðustu dögum.
Þar af eiga Börsungar átta leikmenn. Markvörð-
urinn Víctor Valdés var sá eini sem ekkert lék á
mótinu en hinir sjö, þeir Gerard Piqué, Carlos Puyol,
Xavi Hernández, Andrés Iniesta, Sergio Busquets,
Pedro Rodríguez og David Villa gegndu allir stóru
hlutverki í að Spánverjar stóðu uppi sem heims-
meistarar í fyrsta skipti.
Madrídingar áttu fimm fulltrúa í hópnum, þar á
meðal fyrirliða og markvörð landsliðsins Iker Cas-
illas. Auk hans voru þeir Sergio Ramos, Raúl Albiol,
Álvaro Arbeloa og Xabi Alonso á meðal leikmanna
Spánverja á mótinu í Suður-Afríku.
Landsliðið háð stjörnu-
leikmönnum Real
Madrid og Barcelona
Á meðan allt lék í lyndi. Spænsku landsliðsmennirnir
fagna heimsmeistaratitlinum árið 2010.
Reuters
V
ið eigum við vandamál að stríða,“
sagði Vicente del Bosque, landsliðs-
þjálfari Evrópu- og heimsmeistara
Spánverja í knattspyrnu, við
spænska blaðamenn í síðustu viku stuttu eftir
fyrri undanúrslitaleik Real Madrid og Barce-
lona í Meistaradeild Evrópu. Leikurinn var sá
þriðji á örfáum dögum á milli þessara erki-
fjenda á Íberíuskaganum og var hann fjarri því
að vera sú fótboltaveisla sem áhorfendur höfðu
vonast eftir. Þess í stað verður hans minnst sem
einhvers eldfimasta leiks síðari ára þar sem
bæði lið sýndu sínar verstu hliðar. Ítrekað sló í
brýnu á milli leikmanna þegar Madrídingar
reiddust yfir leikrænum tilburðum Katalón-
anna sem á móti æstu sig yfir föstum leik mót-
herjanna. Engu var líkara en að borgarastríð
væri brostið á að nýju á Spáni.
Það er vandamálið sem del Bosque vísaði til.
Spænska landsliðið hefur drottnað yfir al-
þjóðlegri knattspyrnu undanfarin ár og hlýtur
að teljast sigurstranglegt á lokamóti Evr-
ópukeppni landsliða sem fram fer á næsta ári í
Póllandi og Úkraínu. Einn helsti styrkleiki liðs-
ins auk knattspyrnuhæfileikanna hefur verið
sterk liðsheild og góður andi innan hópsins. Nú
óttast menn að þau hjaðningavíg sem leikirnir
fjórir á milli Real og Barça leystust upp í hafi
varanlega skaðað samband spænsku landsliðs-
mannanna þrettán sem koma frá liðunum
tveimur. Viðurnefni landsliðsins er la furia
roja – rauði ofsinn. Hættan er að ofsinn hafi
orðið of mikill í kringum leikina fjóra.
Fyrstu brestirnir komu í raun fram í deild-
arleik liðanna á Nývangi í vetur þegar heima-
menn í Barcelona niðurlægðu gestina 5-0. Á
lokamínútunum reyndi spænski bakvörðurinn
Sergio Ramos að brjóta sókn Leo Messi á bak aft-
ur með því að reyna nánast bókstaflega að brjóta
smávaxna snillinginn í sundur með harkalegri
tæklingu. Í æsingnum sem fylgdi í kjölfarið
hrinti Ramos landsliðsfélaga sínum Carles Puyol
og hnakkreifst við Xavi Hernández, sem hann
stjakaði einnig við, á leið sinni af velli.
Með þeirri hrinu fjögurra leikja sem hófst með
deildarleik á Santiago Bernabéu í Madrid fór hins
vegar allt úr böndunum. Eftir leikinn var mið-
vörður Barcelona, Gerard Piqué sagður hafa
ögrað landsliðsfélögum sínum fyrir utan bún-
ingsklefana með því að Börsungar hefðu svo gott
sem tryggt sér sigur í deildinni með 1-1 jafn-
teflinu. Þá á hann að hafa hrópað: „Litlu Spán-
verjar, næst ætlum við að vinna bikar kóngsins
ykkar.“ Næsti leikur liðanna var úrslitaleikur
spænsku bikarkeppninnar en hún er kennd við
konung landsins. Piqué er hins vegar Katalóni
sem hefur gjarnan hulið sig fána héraðsins þegar
mikið liggur við.
Í úrslitaleiknum sem Madrídingar unnu í
framlengingu rauk blóðþrýstingur Börsunga
upp þegar Álvaro Arbeloa virtist stíga viljandi á
David Villa. Þegar liðin stilltu sér upp í Madríd
fyrir fyrri undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar
í fyrri viku lá við að frysi á milli spænsku lands-
liðsmannanna, svo köldu andaði á milli þeirra.
Arbeloa og Villa horfðust ekki einu sinni í augu
þegar þeir tókust í hendur. Það sem á eftir
fylgdi var báðum liðum og spænskri knatt-
spyrnu til skammar.
Heimamenn í Real notuðu hvert tækifæri til
þess að skilja skóför sín eftir á fótum andstæð-
inga sinna sem endaði með því að Brassinn Pepe
var rekinn út af. Þeir hvítklæddu voru hins veg-
ar viti sínu fjær af bræði yfir látalátum sókn-
armanna Barcelona sem hentu sér í jörðina við
minnsta tilefni og lágu eftir eins og þeir hefðu
verið skotnir á færi. Voru þeir sérstaklega ósátt-
ir við spænsku leikmenn Barça, þá Pedro og
Sergio Busquets sem þóttu hafa unnið sérstakan
leiksigur í tilburðum sínum. Auk allra beinu
átakanna á milli spænsku leikmannanna hlýtur
það andrúmsloft tortryggni og haturs sem ein-
kenndi rimmur liðanna innan og utan vallar
með ásökunum um samsæri, ofbeldi og leik-
araskap að hafa áhrif á samskipti keppinaut-
anna í landsliðinu.
Eftir það sem á undan er gengið er erfitt að sjá
fyrir sér hvernig gróið getur um heilt á milli
leikmanna andstæðra fylkinga í bráð. Lands-
liðið kemur næst saman í byrjun júní fyrir vin-
áttuleik við Bandaríkin en del Bosque er
ómyrkur í máli um skrípaleikinn á milli leik-
manna sinna. „Þeir leikmenn sem standa ekki
undir trausti okkar eða koma með það slæma
andrúmsloft sem er ríkjandi með sér í landsliðið
verða að taka afleiðingum gjörða sinna. Þeir
verða einir ábyrgir fyrir því hvort þeir ávinna
sér eða tapa þeim forréttindum að tilheyra
spænska landsliðinu.“
Allt fer í bál og brand á milli leikmanna Real Madrid og Barcelona í fyrri undanúrslitaleiknum í Meistaradeildinni. Spænsku lands-
liðsmennirnir Raúl Albiol, Gerard Piqué og David Villa eru í miðri þvögunni en Sergio Ramos reynir að halda aftur af Carles Puyol.
Reuters
Rauði
ofsinn
Landslið Spán-
verja í vanda
Vikuspegill
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is
Spánverjar eru efstir í
undanriðli sínum fyrir
lokakeppni Evr-
ópukeppninnar sem
fram fer í Póllandi og
Úkraínu á næsta ári.
Hefur liðið unnið alla
fimm leiki sína en
með því í riðli eru
Tékkar, Skotar, Lithá-
ar og Liechten-
steinbúar. Eru þeir
sex stigum á undan
Tékkum og eiga þrjá
leiki eftir; gegn Liech-
tenstein og Skotum
heima og Tékkum úti.
Eru Spánverjar því
sem næst búnir að
tryggja sér sæti á
lokamótinu.
Á leiðinni
á EM 2012
flugfelag.is
Netið
Þú færð alltaf
hagstæðasta verðið
á www.flugfelag.is