SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Blaðsíða 10
10 8. maí 2011 É g hef orðið vör við það að undanförnu að það er af- skaplega stutt í kraumandi reiði og gargandi bræði okkar Íslendinga, þegar við verðum vör við það, að talsmenn nýju bankanna kynda undir þeirri fáránlegu afsökunar- umræðu sem var stöðugt í gangi hér á uppgangstíma hinna föllnu banka. Þar á ég við að þeir sem eru í forsvari fyrir nýju bankana eru strax farnir að gæla við að koma hér á sérstöku hvatakerfi í launa- kerfi bankastarfsmanna. Þeir vilja sem sé á nýjan leik árangurstengja störf banka- starfsmanna, þannig að banka- menn fái sérstaka umbun, þeg- ar þeir landa „góðum dílum“, auka veltu og þess háttar. Þessir „góðu menn“, sem ég held að séu alls ekkert svo góð- ir, leyfa sér nú að nota gamla sönginn um samkeppnishæfni. Það er þvílík ósvífni að leyfa sér að taka sér það orð í munn, þegar um venjulega banka- starfsemi er að ræða, að það er varla orðum á það eyðandi. Slík umræða misbýður okkur Ís- lendingum, sem erum enn að súpa seyðið af bankahruni og munum halda áfram að súpa, ég veit ekki hversu lengi. Landsbankinn nýi hélt aðal- fund sinn fyrir rúmri viku og þá hóf formaður bankaráðs Landsbankans, Gunnar Helgi Hálfdánarson, upp raust sína og sagði að Landsbankinn undirbyggi nú að innleiða hvatakerfi fyrir starfsmenn bankans, líkt og var við lýði í fjármálastofnunum landsins fyrir bankahrun. Í fréttum af aðalfundinum kom fram að tillaga bankaráðs um nýja starfskjarastefnu hefði verið samþykkt á aðalfundinum. Hvatakerfið yrði þó ekki tekið upp fyrr en Fjármálaeftirlitið hefði sett reglur um kauprétti og kaupaukagreiðslur. Bankaráðsformaðurinn sagði hvatakerfið nauðsynlegt til að „tryggja samkeppnisfærni bankans“. Og Gunnar Helgi beit höf- uðið af skömminni með því að segjast hafa skilning á því að inn- leiðing hvatakerfis, líkt og var við lýði í fjármálastofnunum fyrir efnahagshrun, kynni að skjóta fólki skelk í bringu en hann teldi eigi að síður að rétt væri að stefna að því. Hér talar vanhæfur bankaráðsformaður! Fullkomlega vanhæfur og alls ekki í nokkru sambandi við eigendur þess banka sem hann starfar hjá sem stjórnarformaður – íslensku þjóðina. Hann hefur nákvæmlega engan skilning á því að svona áform skjóti fólki skelk í bringu, því fólk er yfirhöfuð alls ekkert skelkað. Það er bara bandbrjálað af reiði, réttlátri reiði og það er mjög skiljanlegt. Ég þekki engan sem er skelkaður yfir þessum áformum, en mjög marga sem eru öskureiðir. Ég hef verið spurð: Halda þessir menn að við Íslendingar séum upp til hópa heilalausir hálfvitar? Halda þeir að þeir komist upp með það, að taka annan snúning á þjóðinni, svona korteri eftir hrun? Halda menn að venjuleg bankastarfsemi sé einhver geimvís- indi? Er það eitthvað sem ber að verðlauna sérstaklega, og þá á þann veg að það kosti okkur sem borgum vextina, að geta lánað út peninga á örlítið meiri vöxtum en innlán bera? Hvað er svona flók- ið við það? Hafa ekki mörg hundruð fyrrverandi bankastarfsmenn tapað atvinnu sinni? Misstu þeir ekki vinnuna við það að banka- kerfið hrundi og það endurreista er svo miklu smærra í sniðum og þarf því mun færri starfsmenn? Eru þeir frá Goldman Sachs, JP Morgan, Deutsche Bank, Sumi Tomo Bank og öðrum fjár- málastofnunum á heimsmælikvarða, að reyna að kaupa til sín ís- lenska bankasnillinga? Um hvaða samkeppnisástæður er banka- ráðsformaðurinn að tala? Nei, Gunnar Helgi og Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeft- irlitsins. Þið skuluð ekki láta ykkur dreyma um að reyna að kokka saman eða sitt í hvoru lagi nýtt kaupréttar- og kaupaukakerfi. Þið verðið einfaldlega kveðnir í kútinn með slík áform og það verður íslenska þjóðin sem sér um þann kveðskap. Gamli söng- urinn að hefjast á ný ’ Þið skuluð ekki reyna að kokka saman eða sitt í hvoru lagi nýtt kaup- réttar- og kaup- aukakerfi. Þið verðið einfaldlega kveðnir í kútinn með slík áform Gunnar Helgi Hálfdánarson Gunnar Þ. Andersen 7.00 Starfsfólk Radisson hót- elsins er svo elskulegt að hengja International Herald Tribune á hurðarhúninn hjá mér á hverj- um morgni svo að ég byrja á að fletta blaðinu og les nokkrar greinar áður en ég kveiki á tölv- unni. Skoða póstinn, svara því nauðsynlegasta og framsendi póst á félaga mína í íslenska hópnum. Eitt rúnnstykki og kaffi í morgunmat ásamt ávöxt- um. Verður að nægja fram yfir hádegi og kannski rúmlega það. 9.00 Gert klárt fyrir ferð með starfsfólki RÚV á Esprit- leikvanginn þar sem ætlunin er að fara í tökur vegna innslags um tæknimálin í kringum Euro- vision-keppnina. Kynni Lovísu Árnadóttur frá RÚV fyrir Silje Marie Lien blaðafulltrúa norska hópsins, en Stella Mwangi fulltrúi Noregs verður með æf- ingu í dag og Lovísa ráðgerir að taka við hana viðtal að henni lokinni. 9.20 Leggjum af stað með allt okkar hafurtask í Esprit Arena. Þar sem við höfum gefið þýska aðstoðarfólkinu okkar Denise Manz og Andres Tennstedt sem og rútubílstjóranum frí í dag, förum við með sporvagni nr. 78 sem stoppar rétt hjá hótelinu og ekur beina leið á leikvanginn. Finnum okkur borð til að vinna við í blaðamannahöllinni og merkjum það með íslenska fán- anum. 10.00 Fer af stað ásamt Ragnari Santos upptökustjóra, Jóni Páli Pálssyni tökumanni og Lindu Þórðardóttur aðstoðar- liðsstjóra til að hitta Svein Erik Schmidt aðstoðarhljóðstjóra Eurovision-keppninnar. Hann sýnir okkur vinnuaðstöðuna baksviðs og fyrir utan höllina, sem er lokuð öllum nema tæknistjórum og starfsfólki þeirra. Svein Erik er einstaklega hjálplegur og útskýrir tækja- búnaðinn og hvernig tækniferl- arnir ganga fyrir sig. Hann leiðir okkur um tækniþorpið eins og svæðið þar sem allir upptöku- og útsendingabílarnir eru stað- settir er kallað. Dágóður tími fer í að skoða útsendingabílana, línumiðstöðina, hljóðverin, stjórnstöðina fyrir grafíkina og ljósin og aðra aðstöðu baksviðs. Að þessu loknu lítum við á æf- ingu norska hópsins á sviðinu áður en við förum aftur í blaða- mannahöllina. 12.00 Á óformlegan fund með Jon Ola Sand, sem er yf- irmaður keppninnar, en við kynntumst í Kaupmannahöfn 2001 þegar ég var liðsstjóri ís- lenska hópsins í fyrsta sinn. Þá var hann liðsstjóri norska hóps- ins í fyrsta skipti. Sagði hann mér að verið væri að vinna í þeim breytingum sem við ósk- uðum eftir að gerðar yrðu á lita- samsetningu í ljósagrafík og myndvinnslu fyrir aðra sviðsæf- ingu okkar sem verður á morg- un. 12.42 Hef samband við Hel- en Brodin blaðafulltrúa sænska hópsins til að staðfesta viðtal sem ég var búinn að bóka fyrir Lovísu við sænska söngvarann Erik Saade. Kveð Felix Bergsson sem fer heim á hótel þar sem Sjonni’s Friends munu æfa lagið og fara í gegnum söngsyrpu sem ætlunin er að flytja á blaða- mannafundi eftir sviðsæfinguna á morgun. 12.49 Ólafur Páll Gunn- arsson hringir og spyr hvort ég sé til í að veita stutt útvarps- viðtal eftir 50 sekúndur, sem er auðsótt mál. Að viðtalinu loknu hitti ég nokkra blaðamenn. 14.00 Peter Fenner og Jo- nathan Kernan mæta í blaða- mannahöllina, en þeir eru breskir Eurovision-sérfræð- ingar sem hafa aðstoðað íslenska hópinn á ýmsan hátt í áratug. Við förum yfir málin en síðan sest Peter niður með Hrafnhildi Halldórsdóttur sem verður kynnir í ár og þau fara yfir þær hugmyndir sem hún er búin að setja niður á blað varðandi kynningar. Peter hefur skrásett hjá sér allskyns staðreyndir um keppnina í gegnum tíðina og er ótrúlega vel að sér í fræðunum. 15.30 Peter fer út í höllina til að fylgjast þar með æfingum og Hrafnhildur stingur upp á að við notum tækifærið til að fá okkur matarbita í veitingatjald- inu. Grænmetisvefja og salat er hádegsiverðurinn og orkustigið hækkar umtalsvert. Að þessu loknu förum við Jón Páll upp á svalir Esprit-hallarinnar til að taka yfirlitsmyndir af tækni- þorpinu fyrir væntanlegt sjón- varpsinnslag. 17.00 Fer með Lovísu og Jóni Páli með sporvagninum til að hitta sænska söngvarann á Dorint Hotel Köningsallee þar sem sænska sendinefndin býr. Að viðtalinu loknu höldum við í leigubíl heim á hótel til að losa okkur við myndavélar og annan búnað áður en við förum á veit- ingastaðinn Vapiano sem er stutt frá hótelinu. Þar eru ágæt- ar pitsur og pastaréttir í boði á viðráðanlegu verði. Fæ mér grænmetispitsu sem smakkast vel. Rætt um dagskrá morgun- dagsins sem verður stíf þar sem við þurfum að mæta snemma í höllina til að undirbúa aðra sviðsæfingu og halda blaða- mannafund á eftir henni. Dag- urinn fer í þetta og svo eiga Sjonni’s Friends að troða upp í Euroklúbbnum um kvöldið og einnig í veislu hjá grísku sendi- nefndinni. 21.00 Dagskrá morgun- dagsins liggur fyrir og það þarf að dreifa henni á alla í hópnum og Linda sér um það, en við ræðum um það hvernig málum verði háttað eftir undanúrslitin á þriðjudaginn. Stefnt er að inn- skoti í seinni fréttir, sama hvernig fer. Mikilvægt er að skipuleggja með hvaða hætti það fer fram. Panta þarf gervi- hnattalínu, finna hentugan stað utan við höllina fyrir viðtalið, ganga frá leyfum og öðrum formsatriðum og skipuleggja hvernig viðmælendur komast þangað sem útsendingin fer fram ef af henni verður. 22.00-24.00 Tölvu- póstum svarað og farið yfir at- burði dagsins, rætt við vakt- stjóra í gestamóttöku hótelsins og farið í háttinn rétt eftir mið- nætti. Dagur í lífi Jónatans Garðarssonar liðsstjóra Evróvisjón-hópsins Jónatan í blaðamannahöllinni en verkefni liðsstjórans eru mörg og fjölbreytileg. Ljósmynd/Jón Páll Pálsson Orkustigið hækkar Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.