SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Page 15

SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Page 15
8. maí 2011 15 „Þetta er búið að kosta ofboðs- lega mikla peninga. Það eru farnar átta milljónir að því er okkur telst til í lögfræðikostnað og ferðir,“ segir Dagbjört og útskýrir að þau hafi reynt að draga úr kostnaði eins og þau geti. Kærasti hennar og bróðir vinna hjá Icelandair og fá því einhvern afslátt af flugferðum. Svo hafa þau reynt að spara með því að leigja íbúð úti í stað þess að fara á hótel. „Þetta er voðalega dýrt og ég veit ekki hvernig við ætlum að fara að þessu. Ég gekk í öll fyrirtæki á Suðurnesjum,“ segir hún en það bar ekki mikinn árangur. Hún er þakklát fjölskyldu sinni og líka fólkinu á Barnalandi sem hefur stutt hana. „Ég er búin að kynnast mörgu rosalega góðu fólki í kringum þetta,“ segir hún og minnist sérstaklega á Olgu Helga- dóttur sem skipulagði styrktar- tónleika fyrir hana á Nasa árið 2008. Líftryggingin fór í málarekstur „Svo er pabbi búinn að nota allt sitt sparifé í þetta. Líftryggingin frá mömmu fór öll í þetta. Reikning- urinn minn er líka í slæmum mál- um. Ég kom heim með ekkert nema tvær ferðatöskur eftir að hafa verið úti í þrjú ár. Ég átti ekki neitt,“ segir hún. Ljóst er að kostnaðurinn í kring- um ferðalagið og réttarhöldin núna í maí verður umtalsverður. Dag- björt þiggur allan stuðning en hún er með styrktarreikninginn: 0542-14-605040 kt. 160982-4709. Dýr barátta förum fyrir rétt 17., 20. og 24. maí. Ég var að fá algjöra staðfestingu á því að þessu yrði ekki frestað. Hann rak lög- fræðinginn sinn fyrir nokkrum dögum og réð sér nýjan. Við vorum hrædd um að það myndi nægja til þess að hann myndi ná að fresta þessu eina ferðina enn.“ En myndi Dagbjört vera sátt við sam- eiginlegt forræði eða óskar hún þess að fá ein forræði? „Við erum búin að reyna að hann sé með forræði. Hann var með tímabundið forræði á meðan við vorum að fara fyrir rétt. Þá fékk ég ekkert að sjá barnið í heilt ár. Við reyndum sameiginlegt for- ræði, erum búin að reyna það í ár og það hefur ekki heldur gengið upp. Það eina sem er eftir er að ég sé með fullt forræði því persónulega myndi mér aldrei detta það í hug að fara niður á sama plan og hann. Hann heldur að hann sé að hefna sín á mér en hegðun hans bitnar mest á dóttur okkar.“ Við það að gefast upp Dagbjört segir síðustu ár hafa verið erfið. „Það hafa komið tímar sem ég er við það að gefast upp af því að það er svo erfitt að horfa á Caitlin. Ég fæ að tala við hana þrisvar í viku og hún er reið út í mig,“ segir Dagbjört, sem talar við hana í gegnum síma og Skype en það er auðvit- að ekki eins og að vera á staðnum. „Caitlin lendir á milli. Hún er eins og reipi sem verið er að toga á milli. Ég við- urkenni alveg minn þátt í því, ég er að toga í hinn endann en ég er að reyna að gera það eins varlega og ég get. En það er annaðhvort að gera það eða ég fæ ekki að hitta hana fyrr en hún er orðin full- orðin.“ Það var mikið áfall fyrir Dagbjörtu að málinu skyldi ekki hafa lokið með úr- skurðinum í Norður-Dakóta. „Ég hrundi bara. Við áttum ekki von á að þetta væri hægt. Við héldum að núna væri búið að úrskurða og þá væri þetta bara þannig. Það datt engum í hug að honum tækist þetta. Ég var alveg sátt við niðurstöðuna og var að vonast til þess að einn daginn gætum við látið þetta virka og átti ekki von á öðru. Maður er stund- um voðalega barnalegur. Ég átti ekki von á því að nokkur manneskja myndi vilja láta barnið ganga í gegnum eitthvað meira.“ Missti móður sína Móðir Dagbjartar, Valgerður Steinunn Sigurvinsdóttir, sá Caitlin þegar hún fæddist í Þýskalandi og þegar hún var skírð þriggja mánaða gömul í Njarðvík- urkirkju en Dagbjört er búsett í Keflavík. „Mamma var með krabbamein og komst aldrei með okkur út því hún var í með- ferð hér. Svo verður hún ofboðslega veik. Ég hringdi í þau út til að reyna að fá þau til að leyfa mömmu að sjá hana í gegnum Skype en það gekk ekki. Þau vildu ekki leyfa henni að heyra í henni og mamma sá hana aldrei aftur,“ segir Dagbjört en móður hennar lést í apríl 2008. „Við vissum alveg að hann kæmi ekki með hana en héldum að hann tæki allavega upp símann og leyfði henni að sjá hana í gegnum tölvuna. Það hefði ekki átt að vera neitt mikið mál fyrir hann.“ Hvernig tilfinning er það að hafa barn- ið sitt í öðru landi? „Það er voða erfitt að lýsa þessu. Suma daga nær maður sér á strik. Þetta hefur verið svo ofboðslega langur tími að þetta verður bara lífið. Svona er þetta bara. Ef ég myndi ekki hugsa um þetta þannig væri ég dottin niður í þunglyndi og myndi ekki gera neitt gagn. Þetta tekur tíma. Ég hugsa þetta alltaf þannig að sama hvernig málið fer verður hún átján ára einn daginn. Hún er ekki dáin. Ég kem til með að hitta hana. Lífið er ekki búið,“ segir hún en þetta er ekki auðvelt. „Svo reynir maður bara að gera sitt besta til að standa í lappirnar, það er ekki alltaf auðvelt. Suma dagana kemst ég varla fram úr rúminu. En ég á líka strák. Hann þarf að komast í skólann, læra heima, borða, bursta tennurnar og fara að sofa.“ Dagbjört er hins vegar ekki í vinnu sem stendur en hún er í endurhæfingu en hún greindist með áfallastreituröskun haustið 2007. „Þá fór ég samt að vinna, hugsaði um soninn þess á milli og mömmu líka. Svo fer mamma en ég reyndi að komast þetta áfram á hnef- anum og loks hrundi ég,“ segir Dagbjört en þetta var um áramótin 2008-9 og á sama tíma var hún að sjálfsögðu að sinna forræðismálinu. Stefnir á nám í hundaþjálfun „Ég náði mér nokkuð vel á strik eftir að úrskurðurinn kom. Þetta var búið og ég er bara orðin frekar hress. Svo kemur stefnan og ég bara brotna saman. Þetta var alltaf áfall ofan á áfall ofan á annað áfall. En ég ætla að vinna mig upp úr þessu.“ Dagbjört á þrjá hunda og hefur mikinn áhuga á öllu sem viðkemur hundum, sérstaklega fimi og þjálfun. „Ég ætla að taka hundaþjálfarann þegar þetta er bú- ið. Ég skuldbind mig ekki í neitt nám eða annað meðan ég stend í þessu. Ég þarf að vera frjáls til að hlaupa út hvenær sem þarf. Það er voða erfitt að gera nokkuð annað en bara þetta, en sem betur fer á ég góða að. Nú sér loks fyrir endann á þessu.“ Stundirnar sem Dagbjört hefur eytt með Caitlin síðustu tvö ár hafa verið dýrmætar. Hún hefur ekki síst gaman af því að fylgjast með systkinunum saman en Sindri Páll er tæpum fimm árum eldri en systir sín. ’ Caitlin lendir á milli. Hún er eins og reipi sem verið er að toga á milli. Ég viðurkenni alveg minn þátt í því, ég er að toga í hinn endann en ég er að reyna að gera það eins varlega og ég get.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.