SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Síða 22

SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Síða 22
22 8. maí 2011 S chengensamningurinn, kenndur við bæ í Lúxemborg, er umgjörð um vegabréfa- lausa för innan ríkja Evrópusambandsins. Ríki sambandsins verða að gerast aðilar að því samkomulagi til að gerast þátttakendur, en þátttaka er ekki óhjákvæmileg fyrir ríki innan ESB. Að auki geta EES-ríki einnig gerst þátttak- endur. Ekki hafa öll ríki viljað verða aðilar að Schengen og reynt hefur verið að tefja inngöngu annarra ríkja ESB sem vilja þó inn. Kostir eyríkisins fara forgörðum í Schengen Til að mynda Bretland hefur aldrei ljáð máls á því að gerast aðili að Schengen. Hafa yfirvöld þar á bæ beinlínis sagt að þau vilji ekki láta lokaorðið í sinni landamæravörslu í hendur ríkja eins og Grikklands og Ítalíu sem aldrei hafa verið fær um að sjá sómasamlega um sín landamæri sjálf. Ekki eru svo sem efni til að taka afstöðu til þess sjón- armiðs, þótt það komi ekki endilega á óvart. En Bretar hafa margoft sagt að fyrir eyríki, eins og þeirra, sé beinlínis fáránlegt að gerast aðili að Schengen, enda sé ávinningurinn af slíku sam- starfi ekki augljós en annmarkarnir séu það á hinn bóginn. Ísland ákvað að verða aðili að Schengensamstarfinu. Það er þó mála sannast að miklar efasemdir voru um þá ákvörðun innan þá- verandi ríkisstjórnar. Þau ráðuneyti, sem tengd- ust málinu mest, utanríkisráðuneyti og dóms- málaráðuneyti, sóttu það fast. Megin-röksemd- irnar voru þær að þar sem önnur Norðurlönd ætluðu flest eða öll að gerast þátttakendur í Schengen þá myndi hið vegabréfalausa samband innan Norðurlanda brátt verða úr sögunni, nema Ísland yrði jafnframt innanborðs. Og hið norræna vegabréfasamband hefði mikið gildi, þó ekki síst tilfinningalegt. Á daginn kom að hið norræna vegabréfasamband var raunar ekki lengur það sem sýndist. Enginn fær afhent sætiskort á al- þjóðlegum brottfararflugvelli nema að sýna sitt vegabréf. Einnig þar sem för er að nafninu til frjáls, þarf að sýna vegabréf til að sanna að við- komandi ferðalangur sé hluti ríkis sem er aðili að hinu vegabréfalausa samstarfi og þurfi því ekki að bera vegabréf. Samstarf lögregluyfirvalda Því var einnig haldið fram að með inngöngu í Schengen fengi Ísland aðild að víðtæku samstarfi lögregluyfirvalda, sem það fengi ekki að fullu ella. Sjálfsagt var þessi ávinningur nokkur en senni- lega einnig orðum aukinn. En segja má að náið samstarf Schengenríkja sé ef til vill einkum nauð- synlegt vegna hins stórbætta aðgengis að lönd- unum sem óæskilegustu persónur fjölmargra ríkja fengu með Schengen-aðildinni. Íslensk lögreglu- yfirvöld horfðu lengi vel tortryggnum augum á þátttöku landsins í Schengen, svo sem vænta mátti. En hinn pólitíski þrýstingur var mikill og smám saman mildaðist afstaða þeirra og þeir vildu frekar berast með en berjast á móti. Feikna- legum fjármunum var varið til breytinga á Leifs- stöð vegna aðskilnaðar farþega á milli Schengen- landa og annarra landa. Ein afleiðing þess varð að Íslendingar sem komu heim, t.d. frá Bretlandi eða Bandaríkjunum, urðu nú að sýna vegabréf við komu til ættjarðarinnar, eftir að þjóðin var komin inn í hið vegabréfalausa samband. Flóttamannabylgja frá Norður-Afríku Eftir að upplausn og óeirðir blossuðu upp í norð- anverðri Afríku á þessu ári hefur reynt mjög á Schengen-samstarfið. Flóttamenn komu í tug- þúsundatali til Ítalíu sem bað um aðstoð Evrópu- sambandsins, því landið réð ekki eitt við þær að- stæður sem upp voru komnar. Í Brussel varð fátt um svör á meðan búrókratastóðið þar velti vandamálinu fram og til baka. Ítalir ákváðu að gjalda Brussel rauðan belg fyrir gráan. Þeir gáfu flóttamönnunum bráðabirgðaskráningu á Ítalíu og henni fylgdi frjáls för innan Schengen. Í pakk- ann laumuðu þeir lestarmiða sem gilti fyrir ferð til landa fyrir norðan Ítalíu en ekki til baka. Þegar Frakkar sáu hvaða leik grannar þeirra voru að leika þá lokuðu þeir landamærum sínum í ofboði á þennan hóp, þótt sú aðgerð væri skýrt brot á ákvæðum Schengen-sáttmálans. En þar sem Frakkland er eitt af stórríkjunum í ESB tilkynnti Brussel að aðgerðir Frakka væru hugsanlega og ef til vill og líklega og loks alls ekki brot á Schengen! En sjálfir vita Frakkar betur. Þess vegna áttu þeir Nicolas Sarkozy forseti og Silvio Berlusconi for- sætisráðherra skyndifund í Róm og skrifuðu að honum loknum saman bréf til Brussel. Þar kröfð- ust leiðtogarnir tveir þess að Schengensáttmál- anum yrði þegar breytt svo að einstök ríki mættu víkja frá honum þegar óvenjulegar aðstæður hefðu skapast, eins og sú sem fólst í flótta- mannabylgjunni frá Norður-Afríku. Með því er- indi var í raun viðurkennt að viðbrögð Frakka við bragði Berlusconis hefðu stangast á við Scheng- ensáttmálann, þótt Brussel hefði reynt að úr- Reykjavíkurbréf 06.05.11 Skoða þarf kosti og galla Schengen

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.