SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Blaðsíða 4

SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Blaðsíða 4
4 29. maí 2011 Tveir hafa tilkynnt framboð sitt til að leiða Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn, Agustin Carstens, seðlabankastjóri í Mexikó, og Christine Lagarde. Í stjórn sjóðsins sitja 24 menn og eru þeir fulltrúar 187 aðildarríkja hans. Evrópa á sjö stjórnarmenn, sem fara með 31,5% at- kvæða, og styðja þeir Lagarde. Í Evrópu ríkir sú skoð- un að hin miklu vandræði í álfunni kalli á evrópskan yf- irmann sjóðsins. Gagnrýnendur spyrja hvort yfirmaður hans hefði þá átt að vera frá Argentínu þegar efna- hagsástandið þar kom til kasta sjóðsins. Bandaríkjamenn, sem fara með 16,8% atkvæða, hafa ekki gefið afstöðu sína upp og segjast ekki munu gera það fyrr en umsóknarfresturinn rennur út 10. júní. Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði þó að „óopinberlega“ myndi hún fagna því að kona hreppti stólinn. Hefðin hefur verið sú að Banda- ríkin hafa stutt umsækjanda Evrópu hjá sjóðnum og Evrópa stutt umsækjanda Bandaríkjanna hjá Alþjóða- bankanum. Fulltrúar nýmarkaðsríkjanna Brasilíu, Rússlands, Indlands, Kína og Suður-Afríku hafna því að Evrópa eigi tilkall til embættisins. Þau eru með 15,05% at- kvæða og gætu því tæplega ráðið ferðinni jafnvel þótt þau sameinuðust um umsækjanda. Þessi ríki vilja breyta valdahlutföllum í sjóðnum þannig að þau end- urspegli efnahagslíf heimsins á okkar tímum. Bandaríkjamenn bíða með stuðningsyfirlýsingu Agustin Carstens, seðlabankastjóri Mexikós, er ann- ar þeirra, sem sótt hafa um að veita Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum forstöðu. Reuters C hristine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands, sem í umfjöllun AFP í vik- unni var lýst svo að hún væri „silfurhærð og með silfurtungu“, tilkynnti í vikunni að hún gæfi kost á sér til forustu í Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum. Lagarde nýtur víðtæks stuðnings í Evr- ópu og fékk á miðvikudag stuðningsyfirlýsingu frá Jose Manuel Barroso, framkvæmdastjóra Evrópu- sambandsins, en hin svokölluðu nýmarkaðsríki gagnrýna tilraun Evrópu til að einoka embættið. Lagarde yrði fyrsta kon- an til að leiða sjóðinn. Verði hún fyrir valinu tek- ur hún við af landa sínum, Dominique Strauss-Kahn, sem sagði af sér eftir að hann var handtekinn í New York vegna ásakana um kynferðislega árás á her- bergisþernu í hótelher- bergi. Lagarde er 55 ára gömul. Hún er grænmetisæta og neytir ekki áfengis. Hún er fyrrverandi sunddrottning og var í franska lands- liðinu í samræmdu sundi þegar hún var táningur. Hún nam lög og stjórnmálafræði. Hún fór í starfs- nám hjá bandaríska þingmanninum William Co- hen. Síðar varð Lagarde yfirmaður Baker & McKenszie, einnar af stærstu lögmannsstofum Bandaríkjanna, og fyrir hennar tilstuðlan opnaði stofan útibú í Brussel með áherslu á lög og reglu- verk Evrópusambandsins. Lagarde varð fjármálaráðherra 2007 og fyrst kvenna til að gegna því embætti í Frakklandi. Fyrr í þessum mánuði náði hún þeim áfanga að hafa setið lengur en nokkur annar í ráðherrastólnum. Áður hafði hún verið viðskiptaráðherra og landbún- aðarráðherra. „Madame oui“ Lagarde þykir hafa sýnt að töggur séu í henni. Hún hafi staðið sig vel í viðræðum 20 helstu iðnríkja heims og láti ekki skjóta sér skelk í bringu. Frammistaða hennar í fjármálakreppunni varð til þess að breska blaðið Financial Times útnefndi hana fjármálaráðherra ársins, þrátt fyrir gagnrýni þess á frönsk stjórnvöld fyrir að vera höll undir ríkisaf- skipti. Lagarde segir að hún sé „sannur Evrópubúi“. Lagarde hefur einnig verið áberandi í evrukrepp- unni og gengið ákveðin til verks til að bjarga evr- unni. Í Der Spiegel er tekið til þess að Angela Mer- kel, kanslari Þýskalands, hafi að margra mati ekki verið nógu ákveðin í stuðningi við evrusvæðið og til dæmis verið treg til að samþykkja hjálp til Grikkja og fyrir vikið fengið viðurnefnið „madame non“. Bætir blaðið við að samkvæmt því ætti Lagarde að fá við- urnefnið „madame oui“. Hún hafi varið milljarðaaðstoð við skuldum hlaðin ríki, mælst til þess að lengt yrði í lánum til Grikkja, hvatt til þess að evrópski björgunarsjóðurinn keypti rík- isskuldabréf og kallað eftir sam- evrópskri stjórn efnahagsmála. Bandarísk stjórnvöld hafa ekki gefið upp afstöðu sína til fram- boðs Lagarde, en vita er að hún nýtur víða stuðnings í banda- rísku efnahagslífi. Nægur stuðningur ætti að vera fyrir hendi til að knýja fram ráðningu hennar. Ýmsir horfa þó til þess að enn stendur yfir rann- sókn á þætti hennar í deilu kaupsýslumannsins Bernard Tapie og bankans Crédit Lyonnais. Tapie taldi að hann hefði verið svikinn þegar hann keypti hlut í bankanum og fór í mál. Töldu ýmsir að hann ætti litla möguleika. Lagarde ákvað hins vegar að málið yrði sett í gerðardóm og Tapie fékk 285 millj- ónir evra í skaðabætur. Henni er gefið að sök að hafa notað embætti sitt til að hjálpa Tapie. 10. júní er gert ráð fyrir að dómarar tilkynni hvort þeir sjái ástæðu til að verða við kröfu saksóknara um að rannsókn verði hafin á málinu. Sama dag rennur umsóknarfresturinn um starfið hjá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum út. Margir eru þeirrar hyggju að Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn megi ekki við frekari áföllum eftir mál Strauss-Kahns og ekki megi til- nefna frambjóðanda, sem hneyksli verði fjötur um fót. Lagarde segist hins vegar vera með hreinan skjöld og hyggst halda framboði sínu til að leiða Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn til streitu hvað sem málinu líður. Hin silfurhærða silfurtunga Christine Lagarde vill leiða Alþjóðagjaldeyrissjóðinn Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands, fylgist með á fundi G8-ríkjanna í París á þriðjudag. Lagarde tilkynnti á miðvikudag að hún sæktist eftir forustu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Reuters Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi yf- irmaður AGS, Timothy Geithner, fjár- málaráðherra Bandaríkjanna, og Christine Lagarde á fundi í höfuðstöðvum AGS í apríl. Reuters Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Þegar Christine Lagarde varð fjármálaráðherra Frakklands 2007 höfðu sjö menn gegnt embættinu a sjö árum. Hún þykir hafa veitt stjórn Nicolas Sarkozys forseta kjölfestu. Kenneth Rogoff, fyrrverandi yfirhagfræðingur Alþjóðagjald- eyrissjóðsins, sagði að Lag- arde væri svo vinsæl á fjár- málafundum að það væri „nánast farið með hana eins og rokkstjörnu“. Farið með hana eins og rokkstjörnu flugfelag.is Netið Þú færð alltaf hagstæðasta verðið á www.flugfelag.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.