SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Blaðsíða 6
6 29. maí 2011
og AC Milan frá Ítalíu árið 1994. Talað var
um besta varnarlið í heimi gegn besta sókn-
arliði heims.
Milan undir stjórn Fabios Capellos, núver-
andi landsliðsþjálfara Englands, gat skellt í
lás þegar svo bar undir en skoraði yfirleitt
ekki meira en þurfti til að sigra. Johan Cruyff
þjálfaði Barcelona og skartaði tveimur
marksæknustu mönnum þess tíma, Búlg-
aranum Hristo Stoichkov og Romario hinum
brasilíska. Allt kapp var lagt á sóknarleikinn
á þeim bænum, eins og vera ber.
Spekingar veltu vöngum hver í kapp við
annan hvort Milan næði að verjast og hvort
Barca næði að brjóta múrinn. Á 90 mínútum
í Aþenu fengust svör við þessum spurn-
ingum, og þó ekki. Varnarjaxlarnir frá Milan
komu nefnilega á óvart; sóttu nær látlaust
allan tímann, framherjar Barcelona komu
varla við boltann og fóru heim með skottið á
milli lappanna. Milan vann 4:0. Það er því
ekki nóg að vera sigurstranglegri og talinn
sterkari á pappírunum.
Lið Manchester United og Barcelona eru
bæði þekkt fyrir leiftrandi sóknarleik.
Segja má að leikmenn Barcelona séu
reyndar einungis þekktir fyrir slíka spila-
mennsku því þeim finnst ekki gaman að
verjast – ekki nema þá þannig að vera sjálfir
með boltann, því andstæðingurinn skorar
ekki á meðan. Vissulega eru öflugir varn-
armenn innanborðs í sveit Peps Guardiola
en óhætt er að segja að hin eiginlega varn-
arlína United sé ógnvekjandi og sterkari á
pappírnum.
Margir telja lið Barcelona sigurstrang-
legra í kvöld, jafnvelt þótt Ferguson og hans
menn séu allt að því á heimavelli á Wem-
bley-leikvanginum í London. Barcelona hef-
ur enda sýnt í vetur slík tilþrif að leitun er að
öðru eins. Og telja má líklegt að mættust
liðin í tíu leikjum myndu spænsku snilling-
arnir fagna sigri mun oftar. En þegar aðeins
er um að ræða einn leik getur allt gerst. Það
segir sagan.
Ógleymanlegur er úrslitaleikur Barcelona
Leiftrandi sókn eða leiftrandi vörn
Eiður Smári Guðjohnsen var í herbúðum Barcelona þegar félagið fagnaði síðast sigri í
Meistaradeildinni. Félagið lagði þá Man. Utd í úrslitaleik í Rómarborg vorið 2007.
Reuters
Þ
eir eru sennilega eins ólíkir og hugsast
getur, þjálfarar liðanna sem mætast í úr-
slitaleik Meistaradeildarinnar í knatt-
spyrnu í kvöld. Sitthvað eiga þeir þó
sameiginlegt því báðir eru afburðasnjallir í faginu
og sigursælir.
Sir Alex Ferguson hjá Manchester United verð-
ur sjötugur í haust en Pep Guardiola, þjálfari
Barcelona, er nýorðinn fertugur. Ferguson er ein-
stakur félagsþjálfari og á þeim aldarfjórðungi sem
hann hefur stýrt United hefur liðið unnið um 30
titla.
Barcelona hefur unnið níu titla á þremur leik-
tíðum síðan Guardiola tók við stjórn liðsins, m.a.
orðið spænskur meistari öll árin. Aldrei er að vita
nema Guardiola verði jafn sigursæll og Sir Alex,
því svarar framtíðin ein. Hann hefur að minnsta
kosti tímann fyrir sér, en þó er ómögulegt að spá
því hve lengi hann verður í starfi; Katalóníubúinn
gerir helst ekki nema eins árs samning í senn og
hefur sagst myndu vilja semja til sex mánaða í
hvert skipti ef það væri í boði!
Nýlega gaf Guardiola í skyn að hugsanlega væri
tími hans hjá Barcelona orðinn nógu langur og
síðast í gær gaf hollenska goðsögnin Johan Cruyff,
sem þekkir vel til hjá spænska stóveldinu, þeim
sögusögnum byr undir báða vængi:
„Guardiola hefur unnið af miklum krafti síð-
ustu ár og það kæmi mér ekki á óvart þótt hann
hætti eftir úrslitaleikinn, burtséð frá því hver úr-
slitin verða,“ var haft eftir Cruyff í Gazzetta dello
Sport á Ítalíu. „Ef hann hætti yrði það eingöngu
vegna þess hve erfitt er að þola þá miklu pressu
sem starfinu fylgir í langan tíma. Þess vegna gæti
ég trúað að hann tæki sér árs frí frá þjálfun.“
Ferguson er hins vegar ekki á förum. Annað-
hvort veit hann ekki hvað pressa er eða þrífst á
henni. Hann verður örugglega að fram í rauðan
dauðann, enda lét hann hafa það eftir sér þegar
hann hugðist hætta fyrir tæpum áratug en snerist
hugur, að eiginkonan myndi örugglega ekki þola
að hann yrði of mikið heima.
Ferguson er sérfræðingur í sálfræðihernaði og
hefur ósjaldan fagnað sigri á þeim vettvangi. Hann
hefur yndi af því að munnhöggvast við þjálfara
andstæðinganna – að minnsta kosti opinberlega,
en sögur herma reyndar að flestir séu þeir af-
bragðsvinir gamla mannsins – og ekki leiðist hon-
um heldur að segja dómurum, forkólfum knatt-
spyrnusambanda og fjölmiðlum til syndanna.
Virðist stundum þrífast á því, ekki síður en áður-
nefndri pressu og streitunni sem starfinu fylgir.
Guardiola er rólegri og menn hrökkva við ef
hann æsir sig eða talar í niðrandi tón um and-
stæðing. Þess vegna þótti það fréttnæmt um dag-
inn þegar kollega þeirra Fergusons, Portúgalinn
José Mourinho hjá Real, náði að æsa Katalónann
fyrir seinni undanúrslitaleik spænsku risanna
tveggja í Meistaradeildinni. Á blaðamannafundi
sagði hinn dagfarsprúði Guardiola að „helvítis
maðurinn“ gæti örugglega sigrað í Meistaradeild-
inni ef keppt væri í því að vera fjörugur í fjöl-
miðlum en hann stefndi að því að sigra í hinni
eiginlegu Meistaradeild.
Síðan starði Guardiola í eina sjónvarpsvélina og
sagði ískalt: „Sjáumst á vellinum annað kvöld
klukkan 7.45.“ Og fagnaði sigri kvöldið eftir.
Pep Guardola hefur náð frábærum árangri með lið Barcelona.
Reuters
Nemur ungur,
temur gamall?
Erfitt að spá um hvor fagnar,
ungstirnið eða gamli refurinn
Vikuspegill
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Sir Alex Ferguson hefur verið í ótrúlegri sigurför
með lið Manchester United í langan tíma.
Reuters
Minjagripir af ýmsu tagi eru
vinsælir hjá knattspyrnu-
áhugamönnum. Eins og sjá
má á þessari skemmtilegu
mynd frá æfingu, hefur
Wayne Rooney látið
sérmerkja skó fyrir
úrslitaleikinn gegn
Barca. Einhverjir væru líklega
til í að eignast þessa
dýrgripi... Reuters
WR 28.05.2011