SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Side 12

SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Side 12
12 29. maí 2011 Mánudagur Sindri Freysson Djöfull er ég feginn að vera ekki gæinn sem þarf að þrífa öskuna af Hörpu! Eiríkur Ingvarsson Það er þá fært til bók- ar, ég er óvenjulegur maður samkvæmt Steingrími J. Hans eig- in orð til almennings „Það hefur orðið mikill eignabruni, ekki samt hjá venjulegu fólki.“ ... Þriðjudagur Auður Jónsdóttir Hér er allt á hvolfi: mann- hæðarhár uppvasks- stafli og álíka stór þvottabingur en ... níu vikna gamall sonur minn brosir ómótstæðilega fallegu brosi og Vetrarsól fékk súp- erdúpergóðan dóm í Der Spiegel svo hver nennir að velta sér upp úr smá drasli? Fimmtudagur Guðný Þórarinsdóttir Fersk og sæl eftir vel- heppnaða veiðiferð. Reyndar var það svo selur sem var veiddur á endanum. Fésbók vikunnar flett Vélin fer ekki ýkja vel í vasa, hálfgerður hlunkur, enda er hún ekki eiginleg vasavél, frekar vél sem maður er með í bakpokanum eða hliðartösku eða hangandi um háls- inn. Gleymum því ekki menn þurftu að koma fyrir 28 mm linsu með víðu sjónarhorni og eins að húsið á henni virðist mjög traust. Hægt að fá vélina bleika, bláa og svarta. Skjárinn á bakinu er 3", bjartur og skýr, en ekki snertiskjár Stafrænar mynda- vélar eru líka staf- rænar vídeóvélar og orðnar býsna góðar sem slíkar. Þessi tekur vídeó með upplausn- inni 1920x1080, þó ekki nema 24 ramma á sekúndu, með stereó hljóm. Ljósnæmi vélarinar er gott og hefur verið aukið með endurbótum á hug- búnaði. Stöðugleikabúnaður auðveldar til muna að taka myndir í lítilli birtu. Margir einblína á myndflögustærðina (mynd- flagan er 12,1 milljón díla), en það er annað sem skiptir meira máli, til að mynda linsan. Linsan í vélinni er þrælfín með 14x aðdrætti í linsunni (ekki stafrænum aðdrætti, enda er það bara plat). Þegar við bætist að ljós- næmi vélarinnar er mjög gott er hún gríðarlega fjölhæf ferða- og heimavél. GPS- tæknin ger- ir kleift að skrá hvenær hver mynd er tekin, en það er líka hægt að nota hana til að skrá ferðalag og síðan flétta saman við Go- ogle Earth, en það eyddi hratt útaf raf- hlöðunni. Sum vefsetur, til að mynda Flickr, bjóða líka upp á að lesa upplýs- ingar úr myndinni og flokka sjálfkrafa. Stærðin skiptir minna máli Undanfarin ár hafa myndavélaframleiðendur helst keppt í myndflögustærð, en smám saman hefur meiri skynsemi komist í umræðuna, meira er lagt í hugbúnað og linsur og svo bæta menn við nýjungum eins og GPS-tækni. Græjur Árni Matthíasson arnim@mbl.is Einu sinni voru allir farsímar á Íslandi frá Nokia. Kannski eru þetta smá ýkj- ur, en Nokia var í það minnsta ráðandi á íslenskum markaði og alltaf með flottustu símana. Síðan missti fyr- irtækið af lestinni, þó enn séu margir að nota Nokia síma. Þeir eru líka fínir sem símar eins og sannast á Nokia X3-02, sem er forvitnilegur blend- ingur af hefðbundnum takkasíma og síma með snertiskjá. Nokia X3-02 fer vel í hendi, hann er þunnur og nettur en skjárinn þó nokk- uð stór. Skipan takka er aðeins öðru- vísi en á flestum Nokia-símum, en maður venst því strax. Skjárinn er snertiskjár og nýtist vel sem slíkur, en óneitanlega er stýrikerfið komið ansi vel til ára sinna og stenst snjall- símastýrikerfum ekki snúning Það er kostur við símann að hann er með innbyggt þráðlaust net, en flestir aðrir tengimöguleikar eru líka til staðar. Rafhlöðuending er fram- úrskarandi eins og vant er í Nokia- símum, en myndavélin er ekki góð. Fínn sími á fínu verði. Nokia X3-02 Forvitnilegur blendingur

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.