SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Side 18

SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Side 18
18 29. maí 2011 É g renndi blint í sjóinn og það var einstök tilfinning að finna flak- ið. Núna langar mig bara að sjá meira og gera meira en maður verður víst að sætta sig við að þetta gerist ekki í einum hvelli eins og í bíómynd- unum. Þetta er vinna sem byggir á þol- inmæði,“ segir Arnar Þór Egilsson, kafari í sérsveit Ríkislögreglustjóra, sem skipu- lagði leitina að póstskipinu Phönix út af Löngufjörum á Snæfellsnesi og fann það ásamt félögum sínum, Eggerti Magn- ússyni og Eiríki Ó. Jónssyni, fyrir tveimur árum. „Við sáum fljótt kýraugu, krana og fleira þegar við fundum flakið. Það fellur ekki á suma hluti þarna niðri,“ heldur Arnar áfram. „Það var hins vegar ekki fyrr en í leiðangri sem farinn var nú í vor að við fórum að sjá persónulega hluti, til dæmis postulín. Fornleifafræðingarnir, sem vinna með okkur, höfðu koparhand- fang, krana og tvö kýraugu með sér upp og verða þeir munir rannsakaðir gaum- gæfilega.“ Arnar segir ákaflega merkilegt að skoða 130 ára gamalt flak, við blasi allskonar hlutir, sem vont sé að átta sig á nú, enda þótt þeir hafi eflaust verið hversdagslegir á sinni tíð. Eitthvað frá grunni Fjölskylda Arnars átti lengi jörð í Mikla- holtshreppi, nálægt strandstað, og þekkir hann því vel til á þessum slóðum. Hann hefur alla tíð verið mikill grúskari og fyrir fimm árum rakst hann á bók um hrepp- inn, þar sem getið er um strandið. Þá fóru hjólin að snúast. „Marga kafara dreymir um að finna sitt eigið flak og ég hugsaði með mér að þarna væri mitt tækifæri komið,“ segir Arnar brosandi. „Kafarar eru alltaf að þróa sína tækni og mig hefur lengi langað að nýta mína þekkingu og reynslu til að prófa eitthvað frá grunni. Verkefnið verður að vera raunhæft og útfrá heimildum um strandið fannst mér Phönix uppfylla þau skilyrði.“ Hvernig fer gufuskip á 130 árum í sjón- um? var fyrsta spurningin sem Arnar þurfti að velta fyrir sér. „Ég vissi að gufu- ketill og skrúfa eyðast ekki auðveldlega upp og mat það því snemma svo að eftir miklu væri að slægjast.“ Hann sökkti sér í gögn til að átta sig betur á staðsetningu flaksins. Miðað er við ýmis kennileiti í heimildum en Arnar þurfti að meta hvar þessi kennileiti væru nú. Slíkt getur hæglega breyst á 130 árum. Reyndust hjónin Trausti Skúlason og Guðríður Kristjánsdóttir á Syðra- Skógarnesi honum mjög hjálpleg í því sambandi. Leitarsvæðið var stórt og mikið af skerjum. Eitt að standa í fjörunni, annað að kafa niður Yfirmenn Arnars voru svo almennilegir að sameina fyrsta leitarleiðangurinn æfingu kafara sérsveitar Ríkislögreglustjóra. Það var árið 2008 og fannst ekkert í þeirri leit. „Hún gaf okkur eigi að síður tilfinningu fyrir svæðinu og hvatti okkur til dáða. Reynslan sem við öfluðum okkur nýttist vel við að skipuleggja næstu leiðangra og afmarka leitarsvæðið. Það er eitt að standa í fjörunni, annað að kafa niður.“ Næsti leiðangur var farinn í apríl 2009. Þá köfuðu Eggert og Eiríkur, ásamt Arnari, og höfðu þeir sónartæki með- ferðis. Eftir dagsleit kom eitthvað fram á sónartækinu og við nánari athugun kom í ljós að það var líkast til skipsskrúfa. „Við gátum ekki verið alveg vissir en við- brögðin voru eigi að síður fölskvalaus. Ég náði myndbandi af Eiríki þegar hann kom úr kafi og hann átti mjög erfitt með að hemja gleði sína,“ segir Arnar hlæjandi. Arnar og félagar vildu vitaskuld fara eftir kúnstarinnar reglum og tóku fyrir vikið ekkert með sér. Merktu staðinn hins vegar vandlega og settu sig í samband við Fornleifavernd ríkisins. Þar á bæ sýndu Ekki verður annað séð en að postulínið varðveitist vel á hafsbotni. Þessu handfangi virðist ekki hafa orðið meint af volkinu. Phönix rís úr djúpinu 1881 strandaði danska póstskipið Phönix út af Löngufjörum á Snæfellsnesi. Skipverjar komust í land en litlu var hægt að bjarga af farminum. Fyrir tveimur árum fann Arnar Þór Egilsson kaf- ari flakið ásamt tveimur félögum sínum og nú er hafin vísindaleg rannsókn á því undir forystu Ragnars Edvardssonar fornleifafræðings. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Arnar Þór Egilsson leggur á ráðin ásamt Eggerti Magnússyni og Eiríki Ó. Jónssyni. Arnar Þór Egilsson kafari er maðurinn á bak við fundinn á flaki póstskipsins Phönix.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.