SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Síða 42

SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Síða 42
42 29. maí 2011 F ræðimenn eru engan veginn sammála um hvaða stefnu beri að fylgja í málfarsefnum. Ég er íhaldssamur á þessu sviði og lét það því fara í taugarnar á mér þegar mál- fræðingur ræddi nýlega um það í útvarp- inu að ekkert væri athugavert við að segja: „Vegna lagningu brautarinnar.“ Þetta væri eðlileg málþróun; kvenkynsorð sem enduðu á -ing hefðu tilhneigingu til að taka u-endingu í eignarfalli eintölu rétt eins og þau gerðu í þolfalli og þágufalli, og við það væri ekkert að athuga. Þannig skildi ég málfræðinginn að minnsta kosti. Mér finnst engin ástæða til að fórna eign- arfallsendingunni þarna. Þvert á móti vil ég gera það að baráttumáli að halda í hana, m.a. með því að fá kennara til að taka mál- ið upp á sína arma undir yfirskriftinni „björgum eignarfallinu“. Þá gæfist líka gott tækifæri til að ræða um tungumálið og beita hugtökum málfræðinnar. Umræðan gæti byrjað svona: Kennarinn: „Jæja, krakkar mínir. Er ekki gata á Akureyri sem heitir Drottn- ingubraut?“ Nemandi: „Nei, kennari, gatan heitir Drottningarbraut.“ Síðan mundi kennarinn taka fleiri dæmi og m.a. sýna fram á að orðið lagning beygðist eins og drottning. Eignarfall ein- tölu væri lagningar eins og drottningar. Í leiðinni gæti kennarinn laumað því að nemendum sínum að forsetningin vegna stýrði eignarfalli – og þannig bætt fleiri málfræðihugtökum inn í umræðuna. Í framhaldi af þessu gæti kennarinn bent á fleiri eignarföll og erfiðari dæmi, ekki síst til að styrkja nemendur sína í að beita hug- tökum. Hann skrifar á töfluna: SKIP- STJÓRI _____________ (AKUREYRIN), og segir um leið: „Setjið rétta beyging- armynd orðsins Akureyrin á strikið. Reynslan hefur kennt mér að einungis örfáir nemendur gera þetta rétt og skrifa: Skipstjóri AKUREYRARINNAR. Allir hinir skrifa: Skipstjóri Akureyrinnar. Hér þarf kennarinn að skýra mál sitt með þol- inmæði – og grípa til hugtaka úr málfræði. Í þetta sinn spyr hann: „Hvernig er eign- arfall eintölu af orðinu Akureyri?“ Nem- andinn svarar: „Akureyrar.“ Kennarinn: „Hárrétt. En hvernig er orðið Akureyri í nefnifalli eintölu með greini?“ Nemand- inn: „Akureyrin auðvitað.“ Kennarinn: „Rétt, en hvernig er þá orðið Akureyri í eignarfalli eintölu með greini?“ Nemand- inn: „Já, nú skil ég: Akureyrar-innar.“ En orðið beiðni beygist ekki eins og Ak- ureyri. Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur ekki áttað sig á því; hann skrifar nefnilega í stöðluðu bréfi: „Vegna beiðnar yðar …“ Eignarfallið er (til) beiðni/(vegna) beiðni eins og t.d. má sjá ef farið er inn á vefsíðu Stofnunar Árna Magnússonar þar sem boðið er upp á beygingu orða (http:// bin.arnastofnun.is/). Niðurstaða mín er semsagt sú að í stað þess að sætta sig stöðugt við „eðlilega þró- un“ málsins eigum við að nýta okkur til- tekin óvissuatriði, já, „erfiðu“ atriðin, og skýra þau með hugtökum málfræðinnar. Þannig þjálfast nemendur í að beita hug- tökum og taka þátt í skemmtilegri rök- ræðu. En kennarinn þarf ævinlega að leitast við að gera þetta að spennandi leik. Hann gæti til dæmis skrifað á töfluna: kýr – q – q – kýr og notað q-táknið til að minna á hvernig orðið kýr er beygt í eintölu. Hug- myndin að þessum leik gæti verið komin frá Ísleifi Gíslasyni (187-1960) kaupmanni á Sauðárkróki, þeim snjalla hagyrðingi sem eitt sinn sagði: Keypti bæði q og s, karlinn held ég ríkur c, sótti h til Haganess, hákarlsbeitur lét í t. Er hægt að hugsa sér betri efnivið í um- ræðu um tunguna og orðaforðann? (Minna má á að s = ess = hross; en hvað merkir orðið há?) Heilbrigð umræða, helst skemmtileg, um móðurmálið hvetur unga sem aldna til að læra meira, lesa meira, skrifa meira, tala betra mál. Ég fór að hugsa um það um daginn þar sem ég fylgdist með munnlegu prófi í ís- lensku í virtri menntatstofnun, hvað það hlyti að vera dýrmætt að geta komið vel fyrir sig orði. Þarna voru nemendur sem töluðu „mannamál“, ræddu eðlilega og skipulega um tiltekna bókmenntatexta sem þeir þurftu að gera skil (m.a. með því að beita hugtökum úr málfræði og stíl- fræði). Á slíkt var unun að hlýða. Svo komu þarna nemendur sem ég veit að eru vel að sér í tilteknum greinum; eiga með öðrum orðum auðvelt með að læra. En þeir reyndust eiga afar erfitt með að koma orðum að því sem þeir vildu sagt hafa. Þeir hikuðu, hikstuðu á orðum og setningum en sögðu ókei, heyrðu, hérna, bara, „þúst“ og þarna. Mig grunar að við, sem höfum fengist við kennslu, höfum ekki alltaf gefið okkur tíma til að þjálfa nem- endur okkar í að tala skipulega um hug- stæð efni. ’ Niðurstaða mín er semsagt sú að í stað þess að sætta sig stöðugt við „eðlilega þró- un“ málsins eigum við að nýta okkur tiltekin óvissu- atriði, já, „erfiðu“ atriðin, og skýra þau með hug- tökum málfræðinnar. Tungutak Baldur Hafstað bhafstad@hi.is „Drottningubraut“ El ín Es th er Málið Belju? Til...? K omið er út hjá Bjarti smá- sagnasafnið Bavíani eftir danska skáldið og rithöfund- inn Naju Marie Aidt. Bókin fékk bókmenntaverðlaun Norð- urlandaráðs árið 2008 og nýlega hlaut Naja Marie heiðursverðlaun Gyldendal fyrir höfundarverk sitt hingað til. Áður hefur hún gefið út átta ljóðasöfn og þrjú smá- sagnasögn auk kvikmyndahandrits og leikrita. Þýðandi Bavíana, Ingunn Ásdís- ardóttir, segir í viðtali að sér hafi fundist erfitt að mörgu leyti að þýða sögurnar þar sem stíll þeirra sé svo einfaldur og blátt áfram, sögurnar séu naktar. Aðspurð segir Naja Marie frásagnarstílinn hafa skipt sig miklu máli þegar hún samdi sögurnar. „Ég er fyrst og fremst ljóðskáld og leitast eftir að gefa lesandanum sama frelsi í prósa og ég geri í ljóðum. Ég vil að lesandinn hafi frelsi til að túlka að vild og ég legg mig fram við að ofgera ekki lýsingum á að- stæðum og persónum í sögunum,“ segir hún. Naja Marie segir viðfangsefni sagn- anna oft sársaukafullt og erfitt og hún hafi ávallt reynt að gæta hlutleysis í frásögn sinni. Hún hafi myndað ákveðna fjarlægð frá persónum sínum á sama tíma og hún stóð þeim nærri. Margar persónur bók- arinnar hagi sér illa og auðvelt hefði verið fyrir hana að dæma þær en það hafi hún alls ekki viljað gera, hún hafi þurft að elska allar þær persónur sem hún skapaði svo hún gæti skrifað um þær. Hún sé ein- faldlega sögumaður og hennar hlutverk að deila sögunum, ekki mynda sér skoðanir. „Þetta gat verið mjög erfitt stund- um,“ segir Naja Marie og bætir við að henni hafi fundist erfiðast að skrifa sög- urnar Torben og Maria og Mýbit. Fyrri sagan er um mæðgin og beitir óham- ingjusöm móðirin son sinn líkamlegu of- beldi en sú seinni er um mann sem fær saklaust mýbit sem endar með spítalavist og dregur hann næstum til dauða. Seinni söguna skrifaði hún á einni nóttu og tóku skrifin mikið á hana. „Þetta var hræðilegt. Ég fór að sofa undir morgun og mér leið eins og ég væri að deyja“ segir Naja Marie. Hún segir alla sögurnar vera uppspuna nema þá síðustu, Mýbit. Þrátt fyrir að vera mjög klassísk smásaga þar sem smáræði verður að stórmáli sem svo endar með nokkurs konar sprengingu sé hún í raun og veru byggð á sannri sögu. Sögurnar spretta upp úr tungumálinu Naja Marie segir að á vissan hátt sé það eins með ljóð og smásögur, hún þurfi að koma því til skila sem hún vilji í knöppum texta og hún nálgist persónur sínar í báð- um tilfellum á svipaðan hátt. „Mér líður alltaf eins og ég stígi inn í líf persóna minna á ákveðnum tímapunkti, fylgi þeim eftir um stund og stígi svo út úr lífi þeirra aftur. Ég ímynda mér því að þær eigi sér líf áður en þær enda í sögunum mínum og einnig að líf þeirra haldi áfram eftir að sögunni lýkur,“ segir hún. Naja Marie segist halda að hún yfirfæri að einhverju leyti aðferðina sem hún notar við ljóðagerð yfir á prósa. Hún leggi til að mynda mikla áherslu á málfar, orðaval og takt í textanum. „Ég get dundað mér við það í margar vikur að færa til eina kommu. Þetta er mjög nördalegt,“ segir Naja Marie og hlær. Hún segir að sér finnist sögurnar oft spretta upp úr tungumálinu og þótt hún ákveði hvaða frásagnarform hún ætli að nota hafi hún nær aldrei fyrirfram ákveðnar hugmyndir um hvað hún ætlar að skrifa. „Ég er kannski með eina setn- ingu, sé eitthvað eða mig dreymir eitthvað og svo fylgi ég því eftir,“ segir hún. Líkaminn mætir heiminum Naja Marie segist nota annan stíl þegar hún skrifar prósa en þegar hún skrifar ljóð og þegar hún byrjaði að skrifa Bavíana hafi hún þurft að finna upp nýja aðferð við að skrifa. „Ég var tvö ár að skrifa fyrstu sög- una í bókinni. Þegar ég ákvað að skrifa smásagnasafnið hafði ég ekki skrifað smá- Getur verið hræðilega erfitt að vera sögumaður Danska skáldið og rithöfundinn Naja Marie Aidt segist fyrst og fremst vera ljóðskáld, en fékk þó bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2008 fyrir smásagnasafnið Bavíana. Díana Rós A. Rivera diana@mbl.is Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.