SunnudagsMogginn - 12.06.2011, Side 23
12. júní 2011 23
Ó
hætt er að taka undir þau orð Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálf-
stæðisflokksins, í Sunnudagsmogganum í dag, að ríkisstjórnin hafi ýtt
undir þá tilvistarkreppu sem þjóðin er í með aðgerðum sínum – eða
aðgerðaleysi.
Hann bendir á að brýnasta verkefni stjórnvalda sé að greiða fyrir atvinnusköpun
og taka með trúverðugum hætti á skuldum heimila og fyrirtækja. „Við höfum í hendi
okkar stórkostlegt tækifæri til að koma Íslandi á tiltölulega skömmum tíma úr þess-
ari sjálfheldu. En lykillinn að því liggur ekki í því að umbylta öllu sem hér hefur
verið gert, heldur læra af reynslunni, gera meira af því sem gefið hefur góða raun og
vera áfram opin fyrir nýjum sóknarfærum.“
En ríkisstjórnin er með hugann við annað.
„Hér er alið á því að stjórnarskráin hafi brugðist, síðan rokið yfir í að kosninga-
fyrirkomulagið sé ónýtt, að gjaldmiðillinn gagnist alls ekki, að ganga þurfi í ESB til
að komast af, kollvarpa skipulagi fiskveiða, stöðva orkunýtingaráform og draga úr
iðnaðarframleiðslu. Þegar þessi umræða nær til fólks byrja efasemdirnar að grafa um
sig. Menn vita ekkert hvert á að stefna eða hvar á að byrja.“
Allt bendir til þess, að ríkisstjórnin viti það ekki heldur.
Íslensk tónskáld í öndvegi
Aðalhljómsveitarstjórum Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur oft verið legið á hálsi
fyrir að sýna íslenskri tónlist tómlæti. Ísraelsmaðurinn Ilan Volkov, sem tekinn er
við sprotanum, ætlar augljóslega ekki að falla í þá gryfju. Það kemur skýrt fram í
viðtali við hann í Sunnudagsmogganum í dag. Þegar hann var síðast í viðtali á þess-
um vettvangi í september á síðasta ári var hann ekki sérlega vel að sér í þeim fræð-
um en nú er öldin önnur.
„Síðan í september hef ég legið yfir íslenskri tónlist, bæði á netinu og með aðstoð
Árna Heimis [Ingólfssonar, tónlistarstjóra SÍ] sem sent hefur mér fjölmörg handrit og
geislaplötur. Ég er kominn með prýðilega yfirsýn og fullt af hugmyndum. Það mun
þó taka tíma að hrinda þeim í framkvæmd,“ segir Volkov. „Í mínum huga skiptast
íslensk tónskáld í þrjá flokka: Í fyrsta lagi eru það frumkvöðlarnir, Magnús Blöndal,
Atli Heimir, Þorkell og þeir sem komu fram á eftir Jóni Leifs,“ segir Volkov og talar
um þessa menn eins og gamla skólabræður sína. „Í öðru lagi eru það atkvæðamestu
tónskáldin í dag, Áskell Másson, Haukur Tómasson og fleiri sem komið hafa ár sinni
vel fyrir borð og fengið verk sín flutt af Sinfóníuhljómsveitinni. Loks eru það ungu
tónskáldin sem ég hef mikinn áhuga á að vinna með, svo sem Hugi Guðmundsson,
Einar Torfi Einarsson, Anna Þorvaldsdóttir og fleiri. Þessi þrír hópar munu allir fá
sitt vægi í minni tíð hér en sérstakt áhugamál mitt verður að draga unga fólkið fram
í dagsljósið.“
Þetta eru merk tíðindi, ekki bara fyrir íslensk tónskáld heldur fyrir alla tónelska
Íslendinga. Það er löngu tímabært að Sinfóníuhljómsveit Íslands komi sér upp aðal-
hljómsveitarstjóra sem talar með þessum hætti.
Hvert á að stefna?
„Það er mín skoðun að þetta laga-
frumvarp eigi sér fáa líka í flokki
óvandaðra lagafrumvarpa á sviði ís-
lenskrar fiskveiðistjórnar.“
Helgi Áss Grétarsson, sérfræðingur í fisk-
veiðistjórnunarkerfinu við Lagastofnun Háskóla Ís-
lands, um minna frumvarp sjávarútvegsráðherra.
„Ég legg til að stjórnlagaráð [ ] setji
inn í stjórnarskrána að það sé bann-
að að sitja á Alþingi nema eiga ekki
börn.“
Péur Blöndal flissandi í ræðustóli Alþingis eftir
miðnætti. Fundað er stíft og haft var á orði að það
væri ekki fjölskylduvænn vinnustaður.
„Þetta getur ekki verið satt.“
Séra Vigfús Þór Árnason um tillögur velferð-
arráðs Reykjavíkur um að kirkjunni verði bann-
að að auglýsa félagsstarf sitt í skólum.
„Þetta er pólitísk atlaga.
Fyrstu pólitísku réttarhöldin í
Íslandssögunni verða stað-
reynd.“
Geir H. Haarde, fv. forsætisráðherra,
sem kom fyrir landsdóm í vikunni.
„Kirkjan hefur að okkar mati
brugðist [ ] með því að taka ekki við
þessum einstaklingum og fjalla um
mál þeirra af sanngirni og virðingu
og með faglegum og vönduðum
hætti.“
Róber Spanó, formaður rannsóknarnefndar kirkju-
þings, um viðbrögð við ásökunum um kynferð-
isbrot Ólafs Skúlasonar biskups.
„Rökin minntu mig einna helst á
Erich von Däniken, sem ég las fyrir
40 árum, og sannanir hans fyrir
því að guðirnir hefðu verið
geimfarar.“
Gunnar Smári Egilsson, formaður
SÁÁ, um útskýringar geðlæknis á
ADHD, athyglisbresti með of-
virkni.
„Sorglega fávís.“
Ellen Calom, fram-
kvæmdastjóri ADHD-
samtakanna, um
málflutning Gunn-
ars Smára.
Ummæli vikunnar
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Stofnað 1913
Útgefandi: Óskar Magnússon
Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal
Niðurstaða ESA
Hin fréttin var um „niðurstöðu ESA“ varðandi
innstæðutryggingar. Niðurstaðan sú varð í full-
komnu samræmi við opinberar hótanir forseta
ESA-nefndarinnar, sem fylgdi hótunum sínum
eftir með því að gefa til kynna að hann hefði
EFTA-dómstólinn í vasanum, eftir því sem skilja
mátti af orðum hans.
Íslensk yfirvöld brugðust fullkomlega gæslu
síns málstaðar með því að láta þessa ótrúlegu
framgöngu liggja kyrra þá og einnig þegar þau
þóttust þó loks vera tekin að gæta hagsmuna
landsins. Ekki hefur heldur verið upplýst
hvernig íslenski fulltrúinn í ESA-nefndinni, sem
Össur Skarphéðinsson skipaði til verks, hefur
gengið fram og hvort hann hafi mótmælt hinni
fráleitu framgöngu forseta nefndarinnar. En rétt
eins og skuldabréfaútgáfan var ekki eins mikil
frétt og einhver kynni að hafa ætlað í ljósi
þriggja mánaða gamalla ummæla í Reykjavík-
urbréfi, þá er ESA-fréttin það enn síður í ljósi
orða forseta nefndarinnar.
Einhver var að furða sig á því að ekkert tillit
hefði verið tekið til sjónarmiða Íslands, en for-
leikurinn hefði mátt undirbúa þá sömu ræki-
lega, svo það myndi ekki flögra að þeim að það
yrði gert.
Ísjakar og fuglalíf
við Grænland.
Morgunblaðið/RAX