SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Blaðsíða 17

SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Blaðsíða 17
19. júní 2011 17 B ragi Þór er fjölskyldumaður en hann er giftur Jóhönnu Frímann. Þau eiga þrjú börn, Bergþór Frí- mann Sverrisson, 20 ára, en hann er fóstursonur Braga, Ernu Ísabellu, 13 ára, og Hinrik Huldar, sem er þriggja ára. Bergþór lenti í því að veikjast skyndilega af geðsjúkdómi þegar hann var ásamt Braga Þór við tökur á Skoppu og Skrítlu-bíómynd- inni í Flórída í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum. „Þetta er geðrof, en greining getur tekið mörg ár,“ segir hann og útskýrir að geðklofi sé ekki rétta orðið. „Þetta var tíma- bundið geðrofsástand sem var spornað við og það hefur endurtekið sig einu sinni síðan þá.“ Hann segir fólk ekki vita mikið um þennan sjúkdóm og segist sjálfur hafa þurft að horf- ast í augu við eigin fordóma. „Þegar þetta kemur fyrir mann kemur í ljós hvað maður hefur sjálfur haft mikla for- dóma. Maður skilur þetta ekki. Það kom mér ofboðslega á óvart hvað ég vissi lítið um þetta. Pabbi hans fékk þetta og ég vissi af því en ekkert meira en það,“ segir Bragi Þór, sem kom inn í líf Bergþórs þegar hann var fimm ára. Hann segir bæði í gríni og alvöru að Englar alheimsins hafi nánast verið það eina sem hann vissi um geðklofa og geðsjúkdóma. „Maður hafði heyrt að þetta væri ættgengt en þegar þetta gerist getur enginn sett þig í stellingar fyrir það. Það er ofboðslega sjokk- erandi að sjá þetta gerast,“ segir hann en áfallið kom á síðasta tökudegi úti í Pensacola. Héldu að það væri ólyfjan í drykknum „Við fórum með hann á sjúkrahús í nágrenn- inu. Við héldum fyrst að einhver hefði lætt lyfjum í drykkinn hans. Það var margt fólk á hótelinu og þar á meðal nokkrir partíglaðir strákar. Við létum taka blóðprufu til að vita hvort það væri eitthvað í blóðinu en svo var ekki. Læknirinn sem var á vakt, sem var reyndar ekki geðlæknir, sagði okkur að það sem honum sýndist vera að gerast væri að þetta væri fyrsta geðrofskastið. Ég kveikti þá strax á því að það væri möguleiki,“ segir hann en Bergþór fékk lyf en fyrir höndum var langt ferðalag til Íslands. Hann útskýrir að ástand stráksins hafi lýst sér þennig að hann hafi fengið miklar ranghugmyndir um allt og alla. „Við flugum frá Pensacola til Atlanta, Atl- anta til New York, og New York til Íslands. Allt starfsfólk myndarinnar lagðist á eitt við að hjálpa til. Við töluðum við hann til að láta hann vita að þetta væri ekki eðlilegt ástand, á fimm mínútna fresti í tvo sólarhringa. Við sáum að við náðum aðeins sambandi við hann inni á milli. Við sögðum við hann: „Þetta er ekki eðlilegt, þú ert á leiðinni heim og við erum að fara til læknis.“ Við gerðum þetta alveg þangað til við vorum komin uppá Landspítala. Við hugsuðum ekki um neitt annað en að koma drengnum heilum heim og undir læknishendur,“ segir Bragi Þór, sem vissi ekki á þessum tímapunkti hvort þetta væru rétt viðbrögð eður ei en fylgdi eigin hugboði. Bergþór fór inn á BUGL (barna- og ung- lingageðdeild Landspítalans). „Þar fengum við ómetanlega hjálp frá starfsfólkinu sem okkur er mjög minnisstæð,“ rifjar hann upp. Þetta fór vel og Bergþór náði góðum bata. „Hann fór á lyf og kom til baka. Hann er bú- inn að standa sig ofboðslega vel í skólanum. Hann fékk annað kast um síðustu jól, fór aft- ur á lyf og náði öllum prófunum núna í vor. Í augum mínum er þessi drengur algjör hetja og ég þreytist aldrei á að segja það,“ segir hann stoltur. „Þetta er strákur í blóma lífsins. Það sem maður vill að gerist er að hann geti haldið áfram að lifa eðlilegu lífi.“ Bragi Þór segir vinahóp Bergþórs hafa ver- ið mikla stoð og styttu í veikindunum. „Þetta var mikið sjokk fyrir hópinn en þau fóru öll með okkur í gegnum þetta, heim- sóttu hann á BUGL og tóku þátt í hópfundum þar sem veikindin voru útskýrð fyrir þeim. Það hefur verið alveg ómetanlegt.“ Skrifa handritið saman Feðgarnir eru búnir að ákveða að gera stutt- mynd um þessa lífsreynslu. „Hann kallar þetta að vera heilabrotinn. Við erum að skrifa hana saman, hún er að mestu byggð á því hvernig hann upplifði þetta. Þetta verður dramatísk stuttmynd sem lýsir strák sem fær geðrof. Þó Bergþór sé búinn að ná bata, sé á lyfjum, þá er minn- ingin um lífsreynsluna svo sterk. Hann hlustar á læknana, tekur lyfin og treystir okkur og læknunum. Hann viðurkennir og skilur að þetta er sjúkdómur en upplifunin er svo raunveruleg. Það er fókus myndarinnar. Við ætlum að kafa ofan í þennan punkt með myndinni sem okkur langar að gera,“ segir hann en þeir ætla að gera hana næsta vetur. Bergþór stefnir sjálfur á að leika aðal- hlutverkið. „Hann langar að leika þetta og ég held að hann geti það. Þegar hann var yngri var hann að leika í auglýsingunum hjá mér. Hann þarf bara að dusta rykið af hæfileik- unum,“ segir Bragi Þór léttur. Hjónin Jóhanna og Bragi Þór á góðri stundu. Feðgarnir í Pensacola í Flórída. Jóhanna Frímann, eiginkona Braga Þórs, ásamt börnunum Bergþóri og Ernu Ísabellu. Bergþór stóri bróðir og Hinrik Huldar litli bróðir. Bergþór úti á Flórída við tökur á kvikmyndinni Skoppa og Skrítla í bíó, skömmu áður en hann veiktist. „Hann kallar þetta að vera heilabrotinn“

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.