SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Síða 20

SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Síða 20
20 19. júní 2011 É g hef haft áhuga á ljósmyndun frá því í barnaskóla og eign- aðist á einhverjum tíma agn- arsmáa og ófullkomna myndavél sem ég fann í ljósmynda- vöruverslun efst á Skólavörðustíg. Not- aði hana m.a. til að taka myndir af skólafélögunum. Því miður eru þær myndir flestar glataðar,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson sem fleiri tengja við bókaútgáfu en ljósmyndun. „Um sextán ára aldurinn eignaðist ég þokkalega myndavél og tæki til fram- köllunar og stækkunar á svarthvítum myndum sem ég notaði óspart. Svo hef ég smám saman fikrað mig áfram og keypt fullkomnari myndavélar eftir því sem þekking mín hefur aukist og ljós- myndaáhuginn vaxið. Það voru tíðindi í bókaútgáfu þegar Setberg gaf út mjög vandaða og mikla bók um ljósmyndun á íslensku eftir John Hedgecoe 1982. Þetta var vita- skuld fyrir tíma stafrænnar ljósmynd- unar. Þessa bók las ég ótal oft spjald- anna á milli og hún var hrein gullnáma um öll grundvallaratriði ljósmyndunar. Hún varð grunnurinn að faglegri myndatöku minni. Síðan hef ég lesið aragrúa bóka um efnið, ekki síst eftir stafrænu byltinguna. En það gilda öll sömu grundvallaratriðin hvort heldur notuð er filmu- eða stafræn vél. Það er mikilvægt að kunna skil á grunnatrið- unum í ljósmyndun og framköllun þó unnið sé í stafrænu umhverfi. Það er fátt hættulegra en að skella sér beint í Photoshop og ýta þar á alla mögulega hnappa ef grunnþekkinguna vantar.“ Hvað myndarðu helst? „Ég mynda svo sem allt milli himins og jarðar. Það fer mest eftir því hvar ég er staddur í veröldinni á hvað ég legg áherslu. Á Íslandi er það fyrst og fremst höfundar og landslag og svo eru barna- börnin í miklu uppáhaldi. Ég veit ekki hvað veldur því en ég er mjög upptekinn af fallvaltleika tilver- unnar í ljósmyndun. Þegar ég eignaðist góða filmuvél og framkallaði sjálfur myndaði ég til dæmis talsvert á ösku- haugunum í Gufunesi. Man vel eftir myndum af hestum að éta úrganginn á snæviþöktum haugunum. Yfirgefnar síldarverksmiðjur og fallin mannanna verk draga mig til sín. Svo er ég mikið gefinn fyrir drama og nota skýjafarið óspart til að ná því fram. Erlendis sækist ég eftir að mynda ut- angarðsfólk og þá sem hafa orðið undir í lífsbaráttunni og kjör þeirra. En landslag og dýr skipa alltaf stóran sess líka. Sennilega er eftirminnilegasta ljós- myndarispan frá síðasta ári þegar ég heimsótti gettó með milljónum íbúa í Höfðaborg í Suður-Afríku. Það var mikil reynsla og erfið ljósmyndun. Var þarna einn eftirmiðdag og myndaði eins og ég mögulega gat enda var ég ör- magna eftir ferðina. Lykillinn að því að fá að mynda utangarðsfólk er að ná vinsamlegu sambandi við það svo það forðist ekki vélina. Myndir mega held- ur ekki verða of uppstilltar. Ég vil ná fólki eðlilegu. Iðulega þegar ég er í formlegum myndatökum eins og af höfundum þá tek ég í gríð og erg áður en viðkomandi nær að slaka á og ég veit allan tímann að þetta eru ekki réttu myndirnar. Svo segi ég eftir dálítinn tíma að mynda- tökunni sé lokið og þá slappar mynd- efnið af en þá tek ég vélina fram aftur og segist ætla skjóta nokkrum myndum til viðbótar til gamans. Þá fyrst er ég virkilega að reyna að ná réttu mynd- inni og fyrirsætan orðin slök.“ Fer þetta vel saman við starf for- leggjarans? Táningsstúlka og barn í gettói Höfðaborgar. Brjálaður bavíani rænir túrista í Suður-Afríku. Útigangsmaður á Jamaíka hvílir lúin bein. Stúlkurnar rifu hár sitt í fögnuði Nú um helgina verður opnuð sýning á ljósmynd- um Jóhanns Páls Valdimarssonar, útgáfustjóra JPV-útgáfu, í Safni íslenskrar menningararf- leifðar á Gimli. Fallvaltleiki tilverunnar er Jó- hanni Páli hugleikinn þegar hann mundar vélina. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Borgarfjörður í allri sinni vetrardýrð. Hestur í Amish-byggðum Ameríku.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.