SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Page 23

SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Page 23
19. júní 2011 23 ekki röng og hún er ekki ný. En hún er samt galin, vegna þess að slík umbylting verður ekki gerð nema með því að breyta „stjórnarskrá“ ESB, sem reyndar gengur undir felunafninu Lissabonsátt- málinn. Sjálfsagt væri ekki útilokað að gera slíka breytingu heimildarlaust og í gegnum bakdyrnar. Annað eins hefur Brussel komist upp með. En það tæki allt of langan tíma og ekki er útilokað að Stjórnlagadómstóll Þýskalands, sem látið hefur draga sig á asnaeyrum lengi, myndi loksins taka á sig rögg. Og svo eru það Sannir Finnar og almenn- ingur um alla Evrópu sem er að hrökkva upp með andfælum og sér að raunveruleikinn er verri en martröðin. Eina færa leiðin Eini kosturinn er sá að leiðtogar Evrópu yrðu einu sinni á undan atburðarásinni. Þeir kyngdu því sem þeir svo lengi hafa tuggið: Evran getur ekki verið þjóðargjaldmiðill fjölmargra ríkja nema þau sættist á að haga sér í samræmi við það, sem eitt ríki. Enn sem komið er hefur Brussel horft á Grikkland, Ír- land og Portúgal sem síamsþríbura. Þeim sem vilja skilja þá að er bent á að það sé einfaldlega ekki hægt. Þótt þeir eigi vissulega að vera í laustengdu sambandi ríkja, séu þeir í raun í sambandsríki. Þótt fæturnir séu sex og eins handleggirnir og höf- uðin virðist þrjú, sé hjartað aðeins eitt. Tikkinu í því sé stjórnað frá Brussel og Frankfurt. En sú óþægilega læknisskoðun sem þjóðirnar hafa geng- ið í gegnum að undanförnu sýnir að þessi anatóm- íska greining stenst ekki. Síamsþríburarnir, jafn- vel fjór- og fimmburarnir, eru enn með hjörtun á sínum stað. Hin sanna lífsvon þeirra allra felst í því að þau fái að slá á ný í þeim takti sem á við þeirra eigin þjóðarlíkama en ekki annarra. Enginn segir að skurðaðgerðin til að skilja þá að verði ekki erfið og heldur ekki að hún sé með öllu hættulaus, en allt er þó betra en óbreytt ástand. Það felur dauð- ann í sér. Notið blíðunnar í Grasagarðinum í Laugardal Morgunblaðið/Ómar eitt hjarta? G eðsjúkdómar gera ekki endilega boð á undan sér – geta stungið sér niður án fyrirvara. Þeir fara heldur ekki í manngreinarálit, spyrja hvorki um stétt, stöðu né aldur. Fróðlegt er að lesa viðtal Ingu Rúnar Sigurðardóttur blaða- manns við Braga Þór Hinriksson kvikmyndaleikstjóra í Sunnudagsmogg- anum í dag en tvítugur fóstursonur hans, Bergþór Frímann Sverrisson, veiktist skyndi- lega af geðsjúkdómi þegar hann var ásamt Braga Þór við tökur á bíómyndinni um Skoppu og Skrítlu í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum. Átakanlegt er að lesa lýsingu Braga Þórs á atburðarásinni frá því þau eiginkona hans, Jóhanna Frímann, gera sér grein fyrir því að eitthvað alvarlegt amar að drengnum þangað til hann fær viðeigandi læknisaðstoð á Ís- landi. Bergþór greindist með geðrof og hefur náð góðum bata með atbeina viðeigandi lyfja. „Í augum mínum er þessi drengur algjör hetja og ég þreytist aldrei á að segja það,“ segir Bragi Þór í viðtalinu. Það þarf hugrekki til að ræða af slíku hispursleysi opinberlega um veikindi af þessu tagi því enda þótt fordómar í garð geðsjúkra hafi minnkað til muna á Íslandi á umliðnum árum eru þeir enn fyrir hendi. Byggja þeir einkum á þekkingar- og skilningsleysi. Þessum for- dómum þarf að eyða í eitt skipti fyrir öll og er saga Bergþórs Frímanns Sverrissonar lóð á vogarskálarnar. Sjálfur notar hann merkilegt orð um veikindi sín, kveðst vera heilabrot- inn. Þess má geta að feðgarnir vinna nú að stuttmynd um reynslu Bergþórs og upplifun hans á veikindunum sem fróðlegt verður að berja augum þegar þar að kemur. Vanlíðan og sjálfseyðing Átröskun er önnur birtingarmynd geðraskana en um þau erfiðu veikindi fjallar Róbert B. Róbertsson blaðamaður í Vikuspegli í blaðinu í dag. Tilefnið er stofnun Vökuróar, samtaka átröskunarsjúklinga hér á landi. Alma Geirdal, formaður samtakanna, dregur líðan þessa fólks vel saman í samtali við Róbert: „Sjúkdómnum fylgir gríðarlega mikið niðurrif, bæði andlegt og líkamlegt,“ segir Alma. „Þetta er svakaleg vanlíðan og sjálfseyðing og sjúk- dómurinn stjórnar manni algjörlega. Sjúkdómurinn tekur frá manni alla skynsemi og löngun til að lifa af því að maður er að raska því sem er eðlilegast í lífi manns. Maturinn er ekki vandamálið, það er vanlíðanin, en maturinn er fíknin, stjórntækið. Hvorki ofáts- né lotugræðgisjúklingar hafa stjórn á sér þegar kemur að mat og lystarstolssjúklingar stýra algjörlega næringarinntöku.“ Átröskun er mein sem vinna þarf gegn af fullum þunga. Hofi sé lof Menningarhúsið Hof á Akureyri fagnar eins árs starfsafmæli um þessar mundir. Fram kemur í grein Skapta Hallgrímssonar blaðamanns, sem vaktað hefur húsið í máli og myndum, að mönnum þyki almennt vel hafa tekist til og Hof virkað sem sá segull sem vonast var til. Ástæða er til að óska Akureyringum og landsmönnum öllum til hamingju með eins árs afmæli Hofs – megi það lengi ylja fólki og ögra. Heilabrotinn „Það er fásinna að flytja inn vist- kerfi.“ Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands. „Það er stundum eins og fólk hafi litlar áhyggjur af mögulegum afleið- ingum slysa eða sjúkdóma, en sé með miklu meiri áhyggjur af því hversu há sjálfsábyrgðin er á kaskótrygg- ingu bílsins.“ Ásgrímur Helgi Einarsson, deildarstjóri söluþjónustu hjá VÍS. „Ég hef ekki oft upplifað það sem þjálfari landsliðsins að það spili jafnvel og það gerði að þessu sinni í ljósi þess hversu sterkur andstæðing- urinn var.“ Guðmundur Þórður Guð- mundsson, landsliðs- þjálfari í hand- bolta, eftir burstið á Austurríkismönnum í Laug- ardalshöll. „Hamingjan vex mjög inn úr eyr- unum og er tré með kirsuberjum.“ Þórunn Erlu Valdimarsdóttir rithöfundur. „Var einhver að tala um pólitík í tengslum við „landsdóms- málið“?“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrver- andi utanríkisráðherra. „Við erum betri en við höfum sýnt hingað til.“ Kolbeinn Sigþórsson, miðherji ís- lenska U21-árs landsliðsins, á EM í Danmörku. „Ég baðst fyrirgefningar á því að ég skyldi bregðast væntingum þeirra kvenna sem til mín leituðu í þessu máli.“ Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, vegna ásakana á hendur forvera sínum, Ólafi Skúlasyni. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.