SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Side 24
E
itt stykki menn-
ingarhús er mikið
mál fyrir bæjar-
félag eins og Ak-
ureyri. Vitað var að Hof yrði
dýrt í byggingu og rekst-
urinn kostar drjúgan skild-
ing, en óvissan var nokkur
um hvernig til tækist í list-
rænu tilliti og hver viðbrögð
fólks við þessu merkilega
húsi yrðu. Í fljótu bragði virðast allir
nokkuð sáttir, og opnun hússins hafi ekki
dregið mátt úr liststarfsemi annar staðar í
bænum eins og ýmsir óttuðust. Jafnvel
þvert á móti.
„Vel á annað hundrað þúsund manns
heimsóttu Hof í vetur og aðsókn á flesta
viðburði var mjög góð; viðtökurnar hafa
satt að segja farið fram úr okkar björtustu
vonum og spám, ekki síst hve húsið hefur
verið vel nýtt undir ýmsar veislur og
móttökur, ráðstefnur og fundi. Hér fer
margt annað fram en stórir tónleikar,“
segir Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hofs.
„Við finnum að húsið hefur haft jákvæð
áhrif á samfélagið í heild, ekki bara
menningarlífið heldur á verslun, þjónustu
og aðra atvinnuuppbyggingu í bænum, og
ekki veitir af. Fjöldi fólks hefur komið í
bæinn, bæði vegna ráðstefna og þess
háttar og líka í kringum tónleikahald.“
Hún hefur eftir hótelhöldurum á KEA
að reyndar hafi heldur dregið úr ráð-
stefnum þar en á móti komi að gestum á
hótelinu hafi fjölgað. „Kakan hefur því
stækkað hraðar en við þorðum að vona.“
Sumir óttuðust að menningarhúsið
hefði slæm áhrif á Listagilið en Valdís Við-
ars, forstöðumaður menningarmiðstöðv-
arinnar þar og framkvæmdstjóri Lista-
sumars, segir Hof bæði hafa hjálpað til og
dregið úr. Á því séu eðlilegar skýringar,
til dæmis hafi Tónlistarskólinn notað
Ketilhúsið mikið áður en sé nú fluttur í
Hof. Tónlist og sviðslistir hafi hreiðrað
um sig þar en sjónlistir muni að sama
skapi eflast í Gilinu. Sérhæfingin aukist.
„Tilkoma Hofs hefur hjálpað til að því
leyti að fólk hér í Gilinu, sem var dálítið
sundrað, hefur unnið saman af meiri
krafti en áður. Strax í haust var ákveðið
að móta skýra framtíðarsýn fyrir Listagil-
ið og skýrsla til bæjaryfirvalda þar um er
tilbúin.“
Valdís segir því mikla bjartsýni ríkjandi
í Listagilinu.
Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri
Akureyrarstofu (menningar-, markaðs-
og ferðamálaskrifstofu Akureyrarbæjar),
segir Hof hafa virkað sem sá segull sem
vonast var til. Hinar ýmsu sýningar hafi
verið mjög vel sóttar, eins og Ingibjörg
benti á, og hann nefnir sérstaklega tvær
stórar ráðstefnur. „Það vegur nokkuð
upp á móti þeim mikla kostnaði sem bær-
inn verður fyrir, sem er um það bil 320
milljónir á ári.“ Húsaleiga (sem bærinn
greiðir í raun sjálfum sér í gegnum Fast-
eignafélag Akureyrarbæjar) er 270 millj-
ónir og bærinn leggur menningarfélaginu
Hofi til 55 milljónir.
Hvort sem menningarhúsið hefði kom-
ið til eða ekki hefði bærinn þurft að greiða
húsaleigu fyrir tónlistarskólann, svo
dæmi sé tekið, en Þórgnýr segir húsið
vissulega stóran bita að kyngja. „Það
þurftu allir að herða ólina og nokkur ár
tekur að aðlagast því að fá svona stórt
verkefni inn í bæjarreksturinn, en það
sama á við um aðra fjárfestingu eins og
þegar nýr skóli er tekinn í notkun. Því má
Ásgeir Jónsson
söngvari Bara-
flokksins brýnir
raustina.
Kristján Jóhannsson söng Hamraborgina á vígsluhátíð Hofs 28. ágúst.
Hingað eiga
allir erindi
Fyrsti starfsvetur menningarhússins Hofs á Ak-
ureyri er liðinn. Þar hefur verið líf í tuskunum og
aðsókn betri en þeir bjartsýnustu þorðu að vona.
Texti og myndir: Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is