SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Side 26
26 19. júní 2011
S
uðurríkjaskáldsagan svonefnda,
uppfull með kynlega kvisti,
óhugnað, undarlegar, allt að því
yfirnáttúrulegar uppákomur og
yfirvegaða kaldhæðni í mannlífs- og
þjóðfélagsgreiningum sínum, var á
tímabili mikilvægt framlag til banda-
rískra bókmennta, þökk sé höfundum á
borð við William Faulkner, Flannery
O’Connor, Carson McCullers, Eudora
Welty, Thomas Wolfe og Truman Ca-
pote. Viðfangsefni þeirra allra var fram-
ar öðru hægfara hnignun menningar og
þjóðlífs í suðurríkjum Bandaríkjanna í
kjölfar ósigursins í Þrælastríðinu, ekki
síst úrkynjun gamla og gróna suð-
urríkjaaðalsins, og í víðara samhengi
það sem Tennessee Williams, annar
gegn suðurríkjapiltur, kallaði „hugboðið
um ógnina að baki nútímamannlífi“.
Minna hefur farið fyrir þessari tegund
skáldsagnaritunar í Bandaríkjunum
undanfarna áratugi, a.m.k. meðal þeirra
höfunda sem bókmenntaheimurinn læt-
ur mest með. Hins vegar gætir áhrifa
hennar meðal nokkurra höfunda sem
rita það sem kalla mætti skáldsögur um
ofbeldi fremur en glæpasögur, t.a.m.
Stephen King (The Green Mile), Cormac
McCarthy og James Dickey, auk þess
sem skástu blóðsugubókmenntir síðari
ára (Anne Rice) eru gegnsýrðar ekta
suðurríkjahrolli. Enginn þessara höf-
unda hefur þó notið viðlíka hylli gagn-
rýnenda fyrir bækur sínar, bæði þeirra
sem sérhæfa sig í „glæpasögum“ og sér-
fræðinga í fagurbókmenntum, eins og
James Lee Burke. Joyce Carol Oates, sem
sjálf er afkastamikill rithöfundur og
bókmenntagagnrýnandi fyrir bandarísk
stórblöð, hefur lýst því yfir að Burke sé í
sérflokki meðal þeirra sem fjalli um
sakamál, fyrir þá blöndu ljóðrænnar frá-
sagnargáfu og mergjaðra lýsinga á
hömlulausu ofbeldi sem finna megi í
bókum hans. Þessi vinnubrögð hafa
reynst Burke vel; til að mynda telja
margir að skáldsaga hans The Tin Roof
Blowdown (2007) sé áhrifamesta skáld-
verk sem skrifað hefur verið um
ófremdarástandið í New Orleans eftir að
fellibylurinn Katrina lagði borgina í rúst.
Að auki hefur hann hlotið helstu bók-
menntaverðlaun, t.d. Edgar-verðlaun
sakamálahöfunda og Pulitzer fyrir bæk-
ur sínar.
Meingallaður mannvinur
Burke hóf rithöfundarferil sinn um
miðjan sjöunda áratuginn og hefur nú
gefið út rúmlega 30 skáldsögur og smá-
sagnasöfn. Þekktastar bóka hans eru rit-
röðin sem kennd er við Dave Robicheux,
(borið fram „robisjó“), lögreglumann af
Cajun-ættum í smábænum New Iberia í
suðurhluta Louisiana, en átjánda bókin í
þessari röð kom út fyrir ári. Fáar skáld-
sagnapersónur eru jafn mótsagna-
kenndar, og um leið jafn heilsteyptar í
mótsögnum sínum, og Robicheux þessi.
Hann er mörgum kostum búinn, til
dæmis gæddur ríkri réttlætiskennd og
siðferðisvitund, vel lesinn og máli far-
inn. En hann hefur fleiri djöfla að draga
en flestir dauðlegir menn. Faðir hans,
olíuverkamaður á borpalli úti fyrir
ströndum Louisiana, ferst í sprengingu
þegar hann er ungur drengur, í fram-
haldinu verður móðir hans leiksoppur
fjölmargra karlmanna og á endanum
fórnarlamb eins þeirra. Kornungur
hleypst Robicheaux á brott, gengur í
herinn og er sendur til Víetnams. Þaðan
sleppur hann með martraðir og áfeng-
issýki fyrir lífstíð. Um skeið vinnur
hann sem rannsóknarlögreglumaður í
New Orleans, þar sem hann gengur í
fóstbræðralag við annan eftirminnilegan
gallagrip, Cletus Purcel, en hrökklast
þaðan eftir uppljóstranir sem reynast
yfirboðurum hans óþægilegar. Þá er það
sem honum býðst starf sem sveitalögga í
New Iberia, þar sem Robicheaux-
bækurnar gerast að mestu.
Þetta er baksvið þeirra atburða sem
velt er upp í bókunum, og raunar und-
irrót margra þeirra. Gamlar syndir Ro-
bicheux dúkka upp og flækja mál, gaml-
ir fordómar hans sömuleiðis, að
ónefndri meðfæddri andstyggð hans á
þeim sem misbeita valdi sínu í krafti
fjölskyldutengsla, pólitískra áhrifa eða
auðæfa. Í ofanálag setja þunglyndi Ro-
bicheux og óstjórnleg reiðiköst mark sitt
á atburðarásina, og gera hann beinlínis
hættulegan sjálfum sér og öðrum. Ein-
ungis langlundargeð lögreglustjórans í
New Iberia, hinnar samkynhneigðu Hel-
en Soileau, vinátta þeirra Clete Purcels
og umburðarlyndi eiginkvenna hans,
halda Robicheux á réttum kili andlega.
En ofbeldi kallar á meira ofbeldi, fyrsta
eiginkona hans, Anne, er myrt af maf-
íutengdu gengi og þriðja eiginkona hans,
Molly og fósturdóttir þeirra, Alafair, eru
í stöðugri lífshættu vegna þeirra mála
sem Robicheaux tekur að sér, oft í
óþökk samstarfsmanna sinna og þeirra
sem halda um valdatauma í Louisiana.
En eins og margar hetjur Íslend-
Illvirki
í paradís
Í sögum bandaríska rithöfundarins
James Lees Burkes tvinnast saman örlög
tukthúslima, glæpaforingja, vændiskvenna,
eiturlyfjasala og spilltra lögreglu- og
stjórnmálamanna sem allir lifa lífinu
á eins konar tilvistarlegu átakasvæði.
Aðalsteinn Ingólfsson adalart@mmedia.is
Bandaríski rithöfundurinn James Lee Burke.