SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Qupperneq 31

SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Qupperneq 31
19. júní 2011 31 Þ að er vel við hæfi að myndir úr myndaalbúmi sunddrottningarinnar Ragnheiðar Ragnarsdóttur innihaldi nokkrar myndir sem tengjast vatni en þær eru ófáar sundlaugarnar sem hún hefur farið í. „Ég er að undirbúa mig fyrir heimsmeistaramótið sem fer fram í Kína í sumar,“ segir Ragnheiður aðspurð hvernig lífið gangi þessa dagana. Ragnheiður synti á sínum besta tíma á heimsmeistaramótinu í Dubai í desember og ætlar sér enn betur í sumar. „Það er ár í Ólympíuleikana svo ég er ekkert að slaka á núna. Planið er að ná lágmörkum í sumar.“ Ól- ympíuleikarnir fara fram í London á næsta ári og setur Ragn- heiður markið á A-lágmark til að ná inn á leikana. Hún er að íhuga að fara út í haust til að æfa í ár fyrir leikana. Hún er að skoða nokkur félög í nokkrum löndum og segir að margt sé að huga að í sambandi við að flytja út. „Þjálfari, æfingaað- staða og svo að sjálfsögðu kostn- aðurinn. Það er mjög dýrt að ætla að vera úti í heilt ár þannig að ég er að leita mér að styrkjum og stuðningi við það. Ég held hins vegar að það gæti verið mjög gott að komast í gott æfingaum- hverfi hjá toppþjálfara, þá stend- ur ekkert í vegi fyrir því að ætla í úrslit á leikunum,“ segir þessi frábæra en jafnframt önnum kafna sundkona. ingarun@mbl.is Á ferðalagi á Snæfellsnesi. Ragnheiður að stinga sér út í Garda-vatnið á Ítalíu. „Ég ætlaði að taka góða æfingu og synda yfir og til baka en bikiníið hélt ekki svo ég fór bara í sólbað.“ „Ég með litla frænda mínum Degi Orra. Hann er í miklu uppáhaldi.“ „Ég setti 25 sent í þessa vél í Vegas og það byrjaði að gjósa 25 köllum. Ég fékk 100 dollara í klinki,“ segir sundkonan heppna. „Einn af uppáhaldsstöðunum mínum á landinu er Bláa lónið. Þetta var á afmælinu mínu í fyrra. Ég fer mjög reglulega í lónið og slaka á. Það er best.“ „Ekkert að slaka á“ Myndaalbúmið Að þessu sinni er það sund- drottningin Ragnheiður Ragn- arsdóttir, sem opnar myndaal- búmið sitt. Ragnheiður og hund- urinn Rosita, sem hún féll fyrir og fékk að knúsa á þarsíðustu Smáþjóðaleikum. „Þriggja ára af- mælið mitt. Pabbi er þarna með kök- una og flottustu gleraugu í heimi!“ Í sundi á Sauðárkróki sem smástelpa. Í hádegismat á Hótel Búðum á Snæfellsnesi eftir langa göngu með vinum. „Á opnunarhátíðinni á Ólympíuleikunum í Beijing í Kína árið 2008. Með flottari stundum sem ég hef upplifað. Gleymi þessu aldrei,“ segir Ragnheiður.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.