SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Qupperneq 41
19. júní 2011 41
LÁRÉTT
1. Aumingi stingur ekki aftur krónu. (16)
7. Lögun á kinn hentar sem tónlist. (8)
8. Hvítur er fyrir öll eitur. (9)
9. Í fermetra ferst einn sem er hálfur Kani. (8)
10. Með sorg Mónika sameinast hljóðfæri. (9)
11. Örvera finnst í kaffiteríu á bakvið. (8)
12. Sjá Dabba snúa við fyrir ís frá trúaðri konu.
(7)
15. Skítur kemur til baka í eftirdragi. (4)
16. Stutt er alltaf með skammt upp á kíló. (8)
18. Neitar fat að vera staður við sjó. (11)
21. Gyðja mín er vakandi. (7)
24. Heilagt tréð og áfengi gerir eldunina. (10)
26. Skuld var einhvers konar blaður. (8)
27. Skamm, skaði í hálfgerðu urri yfir stúlkum.
(10)
30. Fimmhundruð og einn skó tek, Ari minn,
handa plötusnúð. (11)
31. Samstilltir keyra þrátt fyrir allt. (7)
32. Vil fá einn töfragrip. (10)
LÓÐRÉTT
1. Fjandi tapar frumefni fyrir víða og ruglaða og
þann sem er að koma að. (9)
2. Stend við raðir hjá upplýstum. (9)
3. Frostskemmd trés gefur bikara. (8)
4. Eggjast okkar menn af líffærum kvenna. (12)
5. Gulnað skott er gott til átu. (7)
6. Ástleitni við sjárvarsíðu við þann sem að
sögn kemst ekki burt. (10)
8. Það sem er til kaups hverfur mikið meira. (7)
13. Sviðinn við vatnsbólið. (8)
14. Sigurvíma er á mörkum þess að sýna bók-
staf. (5)
17. Glöð með skegg? (8)
18. Afhendi að dyrum við lok veraldrar. (9)
19. Tuð dauðra yfir næstum því eins. (8)
20. Fylki kúrekans asnast til að birtast. (6)
22. Sigraði brjálaðar og horaðar. (9)
23. Stubbur geislar yfir því að vera auðmaður. (7)
25. Felubúningurinn sem þú finnur í fórum píla-
grímanna. (6)
28. Fangað og gefið. (5)
29. Af mánudegi er óféti eitt eftir. (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn ásamt úrlausninni í
umslagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum
2, 110 Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu 19. júní
rennur út 23. júní. Nafn vinnings-
hafans birtist í blaðinu 26. júní.
Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinnings-
hafi krossgátunnar 12. júní er Óskar H. Ólafsson,
Dalengi 2, Selfossi. Hann hlýtur í verðlaun bókina
Péturspostillu eftir Pétur Gunnarsson. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Undanfarin ár hefur sigursælasti
skákmaður Íslendinga undir tví-
tugu verið Hjörvar Steinn Grét-
arsson. Furðu treglega hefur
gengið hjá piltinum að krækja
sér í áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli þar sem legið hefur í
augum uppi að styrkleikinn hef-
ur verið til staðar um alllangt
skeið. Hjörvar réð bót á þessu á
dögunum þegar hann tók þátt í
stórmeistaraflokki innan móta-
syrpu sem gengur undir nafninu
„Fyrsti laugardagur“ og er hald-
in í Búdapest allt árið um kring.
Með honum í för voru þeir Daði
Ómarsson, sem tefldi í flokki al-
þjóðlegra meistara, og Eyjamað-
urinn Nökkvi Sverrisson sem
tefldi í flokki FIDE-meistara.
Hjörvar var búinn að ná áfang-
anum eftir sjö umferðir og með
því að vinna tvær síðustu skák-
irnar gegn sterkum stórmeist-
urum gat hann náð áfanga að
stórmeistaratitli. Hann var ná-
lægt því að leggja Levente Vajda
að velli með svörtu í næstsíðustu
umferð og gerði svo jafntefli í
lokaumferðinni. Lokanið-
urstaðan varð 2. sæti í keppni tíu
skákmanna þar sem meðalstigin
voru 2.412 stig en Hjörvar hækk-
aði um elo-20 stig fyr-
irframmistöðuna. Sigurvegari í
þessum flokki var heimamað-
urinn Oliver Mikhof með 6½
vinning. Hjörvar byrjaði illa,
tapaði í fyrstu umferð en fékk
4½ vinning úr næstu fimm skák-
um. Hann var ekki alltaf að
þræða troðnar slóðir eins og eft-
irfarandi skák ber með sér en
greip tækifærið þegar það gafst. Í
fjórðu umferð lagði hann þýskan
skákmann að velli eftir að hafa
sloppið úr smá klandri í byrj-
uninni.
Daniel Sidentorpf – Hjörvar
Steinn Grétarsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 g6 3. c3 Bg7 4. d4
cxd4 5. cxd4 d5 6. exd5 Rf6 7.
Bb5+ Bd7
Algengara er 7. … Rbd7 8. d6!?
exd6 9. De2+ De7 10. Bf4 og hvít-
ur fær aðeins betra endatafl.
8. Bc4 b5 9. Bb3 0-0 10. 0-0
Bf5 11. De2 a6 12. Re5
Gott er einnig 12. Rc3 því eftir
12. … b4 13. Ra4 gengur 13. ….
Rxd5 ekki vegna 14. Bxd5 Dxd5
15. Rb6 og vinnur skiptamun.
12. … Rxd5 13. Rc3 Be6 14. Df3
Rc7 15. d5
Gott var einnig 15. Bxe6 fxe6
16. Dg4 og svarta staðan er erfið.
15. … Bxe5 16. dxe6 fxe6 17.
De4?
Hér var sjálfsagt að eika 17.
Bxe6+! Kh8 18. Hd1! o.s.frv.
17. … Dd4 18. De2?
Enn var best að leika 18.
Bxe6+. Nú er svartur sloppinn.
18. … Rc6 19. Re4 Bg7 20. Hd1
De5 21. f4
Hvítur vill greinilega að
„spila“ kringum e6-peðið en fær
á sig sendingu úr óvæntri átt.
21. … Rd4! 22. De3 Hxf4!
Hvítur á ekki yfir þessu, 23.
Dxf4 strandar vitaskuld á 23. …
Re2+.
23. Rc3 Hff8 24. Dxe5 Bxe5 25.
Bg5 Rxb3 26. axb3 Bd6 27. Hd3
Had8 28. Re4? Bxh2+!
Gerir út um taflið.
29. Kxh2 Hxd3 30. Bxe7 Hf7 31.
Bg5 Hd4 32. Rc3 Hf5 33. Be3 Hb4
34. Rd1 Rd5
– og hvítur gafst upp.
Daði Ómarsson lenti í 10. sæti
af 12 keppendum í sínum fokki
með 4 v. af 11 mögulegum en
Nökkvi Sverrisson bætti sig
verulega, hafnaði í 5. sæti með 6
vinninga og hækkaði um 30 elo-
stig.
Magnús Carlsen
efstur í Rúmeníu
Norðmaðurinn Magnús Carlsen
hefur ekki teflt síðan á Wijk aan
Zee-mótinu í janúar en er nú
sestur að tafli á sterku 6-manna
móti í Medias Rúmeníu. Eftir
fyrri helming þess er hann efstur
með 3½ vinning á undan Karjak-
in sem er með 3 vinninga og Na-
kamura sem er í 3. sæti með 2½
vinning. Ivantsjúk er í 4.-6. sæti
með 2 vinninga.
Hjörvar Steinn tók áfanga í Búdapest
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta