SunnudagsMogginn - 19.06.2011, Síða 43
19. júní 2011 43
Rússneska skáldið Mikhail Lermontov sagði
að skáldskapurinn væri eins og rýtingur
sem nýtist ekki lengur, boðaði fall
keisarastjórnarinnar og einvaldann
sem færi landið ótta og vonleysi, vopnaður stálhnífi.
Þannig voru skáldin áður fyr vopnaðir spámenn, einnig á Íslandi.
Ég dáist að þessum fyrirmyndum okkar
sem höfum gleymt því að minna á hvað það land á skilið
sem flytur inn læpuskaps ódyggðir eins og Bjarni
Thorarensen varaði við í sígildu kvæði sínu, Ísland,
og þessi íslenzki Lermontov segir að slíkt land
ætti að hníga í sjá og hverfa þangað sem það er komið.
Það er ekki úr vegi að hvetja rýtinginn enn og aftur
og minna á þá vellyst og vesöld sem hruninu ollu,
en þó er Ísland enn nafnkunna landið sem lífið oss veitti,
því það átti engan þátt í þeim mannskemmdum
kreppu og ódugnaðs sem við blasir.
Það vorum við sjálf sem hleyptum völskunum
í opið sár þess kveifarskapar sem kallaði
á siðferðisbrest græðginnar.
Og enn standa kerúbar vörð með sveipanda sverði
þar sem bláfjötur Ægis hnígur að klettóttri strönd.
Ljóðið birtist á vefsetri Matthíasar, http://matthiasj.squarespace.com/.
Ísland
Matthías Johannessen
undir forstöðu Dorothée Kirch, og er í
sýningarstjórn Ellen Blumenstein.
Edda Kristín Sigurjónsdóttir, verk-
efnastjóri hjá Kynningarmiðstöð íslenskr-
ar myndlistar, KÍM, segir að markmið
þátttöku í tvíæringnum vera að eiga hlut
að máli í framvindu listasögunnar, „eiga í
samskiptum á því tungumáli, í þessu til-
felli myndlistinni, þar sem líf ein-
staklingsins og samfélag mannanna er til
stöðugrar umfjöllunar og endurskoðunar.
Með þátttökunni eru einnig byggðar brýr
sem tengja íslensku listasenuna við hina
alþjóðlegu samtímalistasenu. Þannig opn-
ast möguleikar fyrir íslenska listamenn á
erlendri grundu og vakinn er áhugi er-
lends fagfólks í myndlist og listáhuga-
manna á íslensku listalífi“.
Hún segir að þátttaka Íslands á Fen-
eyjatvíæringnum sé háð samstöðu margra
aðila, jafnt opinberra aðila og frá atvinnu-
lífinu. „Kynningarmiðstöðin sér um
framkvæmd íslenska skálans í Feneyjum
fyrir hönd mennta- og menningar-
málaráðuneytisins sem einnig greiðir
stærsta hluta verkefnisins. Það er fagn-
aðarefni hve margir einkaaðilar koma að
íslenska skálanum í ár, en meðal þeirra
sem hafa lagt fram fé til verkefnisins eru
VÍB eignastýring Íslandsbanka, Vilhjálmur
Þorsteinsson, Landsvirkjun, CCP og Veit-
ingastaðurinn Jómfrúin. Það er einnig
ánægjulegt að utanríkisráðuneytið,
Reykjavíkurborg og Íslandsstofa styðji við
verkefnið og von Kynningarmiðstöðv-
arinnar að nú verði hægt að horfa til bjart-
ari tíma með sterkt bakland.“
’
Þannig opnast
möguleikar fyrir ís-
lenska listamenn á
erlendri grundu og vakinn
er áhugi erlends fagfólks í
myndlist og listáhuga-
manna á íslensku listalífi.
Neonskúlptúrinn „Il tuo paese non esiste“ („Landið þitt er ekki til“ á Ítölsku) sem er á veggnum framan á íslenska skálanum.
„Gerðu það sjálfur“, málverk sem Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra Íslands í Berlín
málaði sem hluta af verki Libia Castro og Ólafs Ólafssonar í Feneyjum.
Ljósmynd/Lilja Gunnarsdóttir