SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Síða 2
2 25. september 2011
Við mælum með
Fimmtudagur 29. september
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í Hörpu kl. 19.30. Á efn-
isskrá eru verk eftir Toru Take-
mitsu og Gustav Mahler. Ein-
leikari verður Melkorka
Ólafsdóttir flautuleikari sem er
einn fremsti hljóðfæraleikari Ís-
lands af yngri kynslóðinni. Með
þessum tónleikum tekur Ilan
Volkov formlega við stöðu aðal-
stjórnanda Sinfóníunnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Mahler og Melkorku
13 Þunglyndi og kvíði ...
Með því að veita fólki með geðraskanir stuðning á vinnustað má
halda því í starfi með eðlilegum afköstum.
16 Hrundu fjölmiðlarnir líka?
Fyrirtæki sem áður var talið að stæðu styrkum fótum reyndust vera á
brauðfótum, segir í fréttaskýringu Guðrúnar Hálfdánardóttur.
20 Frelsi að brjótast …
Konur í karlmannsfötum skemmta undir nafninu
Pörupiltar í Þjóðleikhúskjallaranum ásamt Söngdú-
ettinum Viggó og Víóletta.
24 Byrjaði með kjötsúpu
Við Aðalgötuna á Sauðárkróki stendur snoturt
svart hús, sem nefnt hefur verið Maddömukot eft-
ir vöskum hópi.
28 Ófeimin við að
spyrja ...
Hildur Hákonardóttir vefari og rithöfundur ræð-
ir um vefnaðinn og listina og þróunina í verkum
sínum. Einnig berst talið á SÚM og rauðsokkum.
Lesbók
42 Af syndinni sprettur gleðin
Metallica og Lou Reed skyggnast inn í myrkustu kima mannshugans
á nýrri plötu sem kemur út í haust og byggist á Lulu-leikritunum.
44 Meistaraverk eftir Michelangelo
Getur verið að málverk sem um árabil var geymt á bak við sófa sé eftir
Michelangelo? Því heldur forvörðurinn Antonio Forcellino fram í bók.
14
Efnisyfirlit
Forsíðumyndin er af listaverki eftir Huldu Hákon úr bókinni Íslensk listasaga.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Börkur Gunnarsson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson.
Augnablikið
Þ
arna mætast allir á jafnréttisgrundvelli,
einstaklingar sem hafa lifað með for-
dómum samfélagsins gagnvart geð-
sjúkdómum, starfsfólk, vinir og velunn-
arar. Það er haldið stórmót við Hverfisgötu 47 í
húsakynnum Vinjar. Hver leikur er ígrundaður og
meðal þátttakenda leynast skákmeistarar sem hafa
stóran hluta af lífi sínu verið í felum. Það er létt yfir
gestum og þátttakendum skákmótsins en áhyggjur af
framtíð þessa griðarstaðar leyna sér ekki þar sem nú
stendur til að leggja starfsemi Vinjar niður í mars á
næsta ári. Vin er athvarf fyrir fólk með geðraskanir
og hefur verið starfrækt frá árinu 1993. Markmið
Vinjar hefur frá upphafi verið að draga úr félagslegri
einangrun geðfatlaðra og draga úr endurinnlögnum á
geðdeildir. Í Vin móta gestirnir starfsemina í sam-
starfi við starfsfólkið.
Reglubundnir gestir líta á Vin sem sitt annað
heimili og sjá svartnætti eitt vegna komandi aðgerða.
Einn gestur Vinjar sagði m.a.: „Vin gefur tilgang í líf-
inu, lífi þeirra sem skugga ber á vegna alls konar ill-
vígra geðsjúkdóma.“ Það er sárt þegar einstaklingar
sem þurfa að lifa með stöðugum kvíða eru sviptir
þeim eina stað þar sem þeir stöku sinnum geta lagt
kvíðann á hilluna og samsamað sig með öðrum.
Svartur á leik og hernaðaraðgerðir á tvílitum velli
koma andstæðingnum í opna skjöldu. Hvítur verst af
hugkvæmni og á borðinu fyrir framan áhyggjufulla
velunnara Vinjar endurspeglast yfirvofandi aðgerðir.
signy@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Skák og mát í Vin
Fræg er sagan af því þegar Íkarus blessaður flaug á vængjum sem
faðir hans gerði úr vaxi og fjöðrum. Kappinn hirti hins vegar ekki
um aðvaranir og flaug of nálægt sólinni. Fyrir vikið bráðnaði vaxið
og aumingja Íkarus hrapaði til bana. Sennilega hefur ástralski
rugbyleikmaðurinn Adam Ashley-Cooper litið á örlög Íkarusar sem
víti til varnaðar, alltént hélt hann sig nálægt jörðinni þegar hann
flaug inn í endamarkið í leik gegn Bandaríkjunum á HM á Nýja-
Sjálandi á föstudaginn. Ástralía vann leikinn örugglega, 67-5.
Úr myndasafni
Reuters
Íkarus endurborinn?
22.9. - 2.10.
RIFF - Al-
þjóðleg kvik-
myndahátíð í
Reykjavík - er
haldin í áttunda sinn. Hátíðina
sækja tugþúsundir manna ár-
lega til að njóta kvikmynda,
sérviðburða, málþinga, kvik-
myndasmiðja og tónleika. RIFF
vill rækta hið unga og ferska í
kvikmyndagerð.
27.9.
Felix Bergsson
í Salnum kl.
20. Felix syng-
ur á þessum
útgáfu-
tónleikum ástarljóð Páls Ólafs-
sonar en nokkrir af helstu laga-
höfundum þjóðarinnar hafa
samið ný lög við ljóðin. Meðal
lagahöfunda eru Jón Ólafsson og
Magnús Þór Sigmundsson.
38