SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Blaðsíða 12
12 25. september 2011
Þriðjudagur
Friðgeir Einarsson
Horfumst í augu
við raunveruleikann:
Launamunur
kynjanna er satanísk
górilla sem ræðst á hvítvoðunga.
Fimmtudagur
Óttar M. Norðfjörð
Frankfurter í Frank-
furt. Check. Hvert
leiðir þetta eig-
inlega…?
Eyrún Magnúsdóttir
Í tilefni af brjósta-
gjafaviku: Vonandi
halda íslenskar kon-
ur áfram að gefa
brjóst á almanna-
færi, brjóstagjöf á að sjást sem
víðast. Ég gaf mínum gaur hiklaust
brjóst hvar sem er og sprautaði
meira að segja brjóstamjólk út á
grautinn hans á kaffihúsi. Man
ekki til þess að neinn hafi kippt
sér upp við það …
Gerður Kristný
Runnarnir við Suðurgötuna eru
orðnir Þjóðarbókhlöðurauðir og
laufin á trjánum eru strætógul.
Reykjavík er fallegasti staður á Ís-
landi.
Fésbók
vikunnar flett
Síminn sem lýst er hér til hliðar er
með Android-stýrikerfi. Lítið fer fyrir
Windows fyrir snjallsíma, þótt nokkrir
framleiðendur séu að framleiða slíka
síma. Skammt er í að Android verði í
helmingi snjallsíma, en Symbian kem-
ur næst Android hvað varðar út-
breiðslu, skammt þar undan er síma-
stýrikerfi Apple og RIM, sem er í
Blackberry, er fjórða útbreiddasta
stýrikerfið. Önnur kerfi koma þar á
eftir með litla útbreiðslu, til að mynda
Bada, sem leysa mun RIM af hólmi,
og Microsoft Windows Phone, með
um 2% útbreiðslu. Það á væntanlega
eftir að breytast því þótt næsti snjall-
sími Nokia, N9, verði með MeeGo-
stýrikerfi þá skiptir Nokia yfir í Wind-
ows Phone eftir það og fróðlegt verð-
ur að sjá framhaldið.
Síminn er ekki stór um sig, aðeins 9,2
v 5,3 cm á hæð og breidd, en það er
þykkt í honum; hann er 1,8 cm að
þykkt, ekki síst til að koma lyklaborð-
inu fyrir. Hann er líka þungur, 136 g,
en fer vel í hendi. Síminn sem ég
prófaði var hvítur, en hægt er að
fá hann svartan, bleikan og blá-
grænan.
Lykaborðið
er nátt-
úrlega ansi
lítið, nema
hvað, en það
er þrælfínt
þegar maður hefur
vanist því og svörun er
mjög góð. Það er svo gam-
an hvernig lyklaborð og skjár
vinna saman. Dæmi: Til að gera
broddstafi heldur maður niðri viðkom-
andi hnappi og þá birtast broddstafir
á skjánum og eru valdir þar.
Skjárinn er mjög góður, frábær reyndar, og
einkar gott að horfa á vídeó á honum, til að
mynda, þó hann sé lítill. Myndavélin er fín,
tekur 5 M díla myndir og 720p HD vídeó og
hugbúnaður með vélinni er ríkulegur.
Hljómur í símanum í honum er góður
fyrir tónlist (og vídeó) eins og
búast má við af Sony.
Það kemur á óvart hvað síminn er sprækur,
keyrir vel ýmis smáforrit og hentugt að nota
hann fyrir Facebook, músíkspilun, YouTube og
AngryBirds og aðra smáleiki, svo dæmi séu tekin. Í
honum er GHz-örgjörvi og öflugur grafík-örgjörvi líka,
sem gerir gæfumuninn. Niðurstaðan: Fínn Android-
sími á fínu verði.
Ekki bara skjárinn
Flestir snjallsímar byggjast á því að skjárinn sé notaður eingöngu þó margir
sakni þess að hafa ekki lyklaborð, enda nær maður þannig meiri hraða og ná-
kvæmni með fullri virðingu fyrir snertiskjánum. Í nýjum síma frá Sony Er-
icsson, Xperia Mini Pro, er bæði lyklaborð og snertiskjár í nettum pakka.
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Hvað með Windows?
Android leggur
undir sig heiminn