SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Síða 6
6 25. september 2011
M
ig langar að ávarpa MacPhail-
fjölskylduna,“ sagði Troy Davis og
lyfti höfðinu upp af bekknum, þar
sem hann var ólaður niður. Heyra
mátti saumnál detta í aftökuklefanum í fangelsinu
í Jackson, Georgíu. Davis var við það að vera tek-
inn af lífi fyrir morðið á lögreglumanninum Mark
MacPhail og bað um að beina sínum hinstu orðum
að fjölskyldu fórnarlambsins. „Ég ber ekki ábyrgð
á því sem gerðist þetta kvöld,“ hélt hann áfram og
horfði á gestina. „Ég var ekki með byssu. Það var
ekki ég sem myrti föður ykkar, son og bróður.“
Að því búnu bað Davis, sem var 42 ára, sína eig-
in fjölskyldu að bugast ekki og Guð almáttugan að
sjá aumur á ræfils fólkinu sem fékk það hlutverk
að sprauta eitrinu í æðar hans. Fáeinum mínútum
síðar var hann allur.
Tuttugu ár eru liðin síðan Davis var dæmdur til
dauða fyrir morðið á MacPhail en aftöku hans,
sem upphaflega átti að fara fram árið 2007, var
frestað í þrígang. Raunar var henni frestað í fjórða
sinn síðastliðið miðvikudagskvöld um fjórar
klukkustundir meðan hæstiréttur Bandaríkjanna
yfirfór málið í síðasta skipti. Niðurstaðan var sú
sama og áður, dauðadómnum skyldi fylgt fram.
Réðu fordómar í garð blökkumanna för?
Aftaka Davis hefur vakið reiði langt út fyrir raðir
andstæðinga dauðarefsingar enda eru áhöld um
sekt hans. Lögmaður hans, Thomas Ruffin, hefur
talað um réttarmorð og fullyrt að fordómar hafi
ráðið för en Davis var blökkumaður.
„Á þessum morgni eru 48,4% fanga á dauða-
deild í Georgíu svartir karlmenn,“ sagði hann við
fjölmiðla eftir aftökuna. „Samt eru þeir ekki nema
15% íbúa ríkisins.“
Tildrög málsins eru þau að kvöld eitt í ágúst
1989 hafði Mark MacPhail, lögreglumaður á auka-
vakt sem öryggisvörður, afskipti af manni sem var
að ganga í skrokk á umrenningi í Savannah,
Georgíu. Þeim viðskiptum lauk með því að
MacPhail var skotinn til bana. Fjórum dögum síð-
ar var Troy Davis handtekinn, grunaður um
verknaðinn. Hann neitaði strax sök.
Saksóknari byggði mál sitt að mestu á fram-
burði níu vitna sem báru fyrir dómi að þau hefðu
séð Davis skjóta MacPhail. Engin áþreifanleg
sönnunargögn voru lögð fram við réttarhaldið og
morðvopnið hefur aldrei fundist. Sjálfur bar Davis
að hann hefði séð eitt vitnanna, Sylvester „Redd“
Coles, berja umrenninginn umrætt kvöld, en hann
hefði verið farinn af vettvangi þegar skotárásin fór
fram. Kviðdómur hunsaði orð Davis og dæmdi
hann sekan. Dauðadómur var upp kveðinn.
Fátt gerist nú í málinu fyrr en dagblað í Atlanta
birtir árið 2003 frásögn þess efnis að sjö af vitn-
unum níu, sem sögðust hafa séð Davis skjóta
MacPhail, hafi dregið framburð sinn til baka.
Munu sum vitnanna hafa sagt að lögregla hafi beitt
þau þrýstingi til að benda á Davis. Önnur vitni
létu svo ummælt að þau hefðu heyrt Sylvester
„Redd“ Coles stæra sig af morðinu.
Þrátt fyrir þetta fékkst mál Davis ekki tekið upp
að nýju enda þótt aftökunni væri frestað í rúm
fjögur ár. Mikil mótmælaalda gekk yfir dagana
fyrir aftökuna og lögðust málsmetandi menn á
borð við Jimmy Carter, fyrrverandi forseta, á ár-
arnar. „Þegar ekki liggja fyrir óyggjandi sannanir
fyrir sekt manns á vitaskuld ekki að taka hann af
lífi,“ sagði hann. Allt kom fyrir ekki.
Ekki ég sem myrti
son ykkar og föður
Troy Davis tekinn af lífi þrátt
fyrir takmarkaðar sannanir
Of mikill efi. Mótmælandi í Georgíu biður Davis griða á aftökudeginum.
Reuters
Ekki voru allir á bandi Davis. Þessi maður heiðrar
minningu lögreglumannsins Marks MacPhails.
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Fjölskylda Marks MacPhails
fagnaði aftöku Davis. „Hann
var búinn að fá endalaus
tækifæri. Þessu hlaut að
ljúka,“ sagði Anneliese
MacPhail, móðir fórnarlambs-
ins, við AP-fréttastofuna.
Blaðamaður sem var við-
staddur bar að sumir fjöl-
skyldumeðlima hefðu gengið
brosandi út að aftöku lokinni.
Sumir gengu
brosandi út
Hinn líflátni fangi, Troy Davis.
Stuðningsmenn Davis fagna eftir að aftökunni var frestað á mið-
vikudagskvöldið. Það var skammgóður vermir.
„Mitt í fjölmiðlafárinu og bar-
áttuvökunum hættir mönnum til
að missa sjónar á manninum sjálf-
um, þeim er var á dauðadeildinni.
Troy Davis var fjölskyldumaður og
í kvöld syrgir fjölskyldan hann,“
sagði lögmaðurinn Jason Ewart,
sem aðstoðaði við baráttu Davis
fyrir náðun.
Martina Correia, systir Davis,
stóð vaktina fyrir utan fangelsið
síðustu dagana fyrir aftökuna um-
vafin vinum og velunnurum. Áður
hafði hún heitið því að berjast fyrir
afnámi dauðarefsingar í Banda-
ríkjunum. „Barátta bróður míns
hlýtur að verða öðrum hvatning.
Skilaboð hans eru einföld: Þið
getið lagst niður og gefist upp
eða risið upp á afturfæturna og
barist.“
Troy Davis var skilnaðarbarn og
ólst upp með fjórum yngri syst-
kinum, sem kunnugir segja hann
hafa reynst vel. Hann flosnaði
ungur upp úr námi og átti við aga-
vandamál að stríða, mætti til að
mynda illa í vinnu. Ári fyrir morðið
á MacPhail var Davis sektaður
fyrir vopnaburð. Hann var aðeins
21 árs gamall þegar hann var
hnepptur í gæsluvarðhald grun-
aður um morðið.
„Í kvöld syrgir fjölskyldan hann“
Martina Correia, systir Troys Davis, mótmælir fyrir utan fangelsið í
Georgíu. Hún berst fyrir afnámi dauðarefsingar í Bandaríkjunum.
Reuters