SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Blaðsíða 8
8 25. september 2011
T
ískusýning Burberry á nýliðinni
tískuviku í London sló alveg í gegn,
bæði fötin og framsetningin. Þeir sem
fylgjast með Burberry á Twitter sáu
fatalínuna á undan ritstjóra bandaríska Vogue,
Önnu Wintour, Kanye West, Philip Green, Si-
ennu Miller og öllum hinum stórstjörnunum
sem sátu í fremstu röð til að fylgjast með vor-
og sumarlínunni 2012. Tískuhúsið sendi mynd-
ir af hverjum einasta alklæðnaði út á sam-
skiptasíðunni Twitter áður en fyrirsæturnar
gengu út á sýningarpallinn. Í kjölfarið varð
Burberry þriðja vinsælasta efnið á síðunni þeg-
ar tískuáhugafólk víðs
vegar um heiminn
bar saman nótur
Bailey vildi „fagna hlutum sem tekur tíma að
gera,“ að sögn Style.com. Handverki af ýmsu
tagi var hampað, fléttum, prenti, hekli, vefnaði
og perlusaumi. Sjálfur lýsti Baily sýningunni
sem „glaðlegri með fortíðarþrá“.
Burberry er eins breskt fyrirtæki og þau
verða og því komu að mörgu leyti indónesísku
og afrísku áhrifin í fötunum á óvart. Bailey
lagði áherslu á að skilaboðin lægju í handverk-
inu en ekki fjölmenningunni. „Ég hef gaman af
þessari mótsögn á milli stafræna heimsins, sem
við hjá Burberry tilheyrum, og heimi tímafreks
handverks þar sem þarf að reiða sig á hæft
fólk,“ sagði hann baksviðs til útskýringar, eins
og greint er frá á vef Guardian. „Báðir heim-
arnir eru hluti af Burberry og í dag langaði mig
til að sameina þá.“
Tíska á
Twitter
Burberry leið-
andi tískuhús í
margmiðlun
Sýningin var á vor- og sumarlínunni 2012. Burberry varð fyrst þekkt fyrir rykfrakka og eru slíkir frakkar í hverri línu.
Vikuspegill
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Listrænn stjórnandi Burberry-
tískuhússins er Christopher Bailey.
Hlutverk listræns stjórnanda þýðir að
hann er ekki aðeins ábyrgur fyrir hönn-
un fatnaðarins og annarra vara frá Bur-
berry heldur hefur hann líka yfirumsjón
með öllu tengdu ímynd fyrirtækisins eins
og auglýsingum og hönnun verslana.
Hann er fæddur árið 1971 í vesturhluta
Jórvíkurskíris á Englandi. Hann er sonur
smiðs og gluggainnstillingahönnaðar fyrir
Marks & Spencer. Hann útskrifaðist frá
Royal College of Art með meistaragráðu
árið 1994 og var árið 2004 sæmdur heið-
ursnafnbót frá háskólanum. Hann var
hönnuður hjá Donnu Karan árin 1994 til
1996 og yfirhönnuður kvenfatnaðar hjá
Gucci í Mílanó árin 1996-2001.
Hann fór til Burberry árið 2001 og hefur
tískuhúsinu vegnað sérlega vel undir hans
stjórn. Burberry hefur hrist af sér gam-
aldags ímynd sína og hefur veltan aukist
úr 79 milljörðum króna í 274 milljarða
króna á tíu árum.
Listrænn stjóri
Burberry
Christopher Bailey hefur stýrt
Burberry örugglega.
sínar. Þetta er í fyrsta skipti sem tískuhúsið
gerir þetta en áður hefur það sýnt beint frá
tískusýningum á vefnum.
Ekki lengur njósnir
Þetta er mikil breyting frá því sem áður var
þegar kringlubúðir þurftu að smygla njósn-
urum inn á tískusýningar til þess að fá ein-
hverja hugmynd um hvað kæmi í búðir frá
stóru tískuhúsunum eftir hálft ár.
Nú sem fyrr var líka sýnt beint frá sýning-
unni á vefsíðu Burberry, á Facebook-síðunni
fyrir 8,4 milljónir aðdáenda, á YouTube fyrir
20.000 áskrifendur og í fleiri en 45 verslunum,
að því er fram kemur á vefsíðunni Mashable-
.com. Ekki var aðeins sýnt beint frá sýningunni
heldur var útsendingin vel framleidd, m.a. með
viðtölum á rauða dreglinum á undan. Stjörn-
urnar sem mættu voru því að mörgu leyti hluti
uppákomunnar frekar en aðeins áhorfendur.
Upplifun úr hjarta samfélagsins
Burberry var búið að dreifa myndum frá
stemningunni baksviðs áður en nokkur fjöl-
miðill hafði einu sinni fengið tækifæri til að
mynda baksviðs, hvað þá miðla myndunum. Til
viðbótar tók ljósmyndarinn Mike Kus fjölmarg-
ar myndir, sem hann setti jafnóðum inn á In-
stagram-reikning Burberry.
Mashable.com ræddi við Christopher Baily,
fatahönnuð og listrænan stjórnanda Burberry,
eftir sýninguna og spurði hann hvort hann teldi
að Burberry næði til fleira fólks með þessum
leiðum heldur en með hefðbundinni fjölmiðla-
umfjöllun. „Vörumerki snýst ekki bara um
vöruna, það snýst líka um upplifun og upplif-
unin verður að koma úr hjarta samfélagsins,“
svaraði hann.
Hann sagði að tilgangurinn með þessari net-
miðlun væri ekki að gefa lítið úr hefðbundinni
fjölmiðlun heldur önnur leið fyrir fólk til að
kynnast vörumerkinu. „Mér finnst gaman að
nota þessar mismunandi leiðir til að hafa sam-
skipti við allskonar fólk víðs vegar að úr heim-
inum og sýna því hvað við erum að gera,“ sagði
hann.
Bailey var spurður að því hvort það væri
akkur fyrir fyrirtækið að staðsetja sig sem
stafrænan frumkvöðul og svaraði því þann-
ig að þetta snerist minnst um það. „Staf-
ræn miðlun og tækni er hluti af lífi fólks í
dag. Við erum 155 ára gamalt fyrirtæki
með ungt starfslið. Það væri skrýtið ef
við gerðum þetta ekki.“
Tölvur og tímafrekt handverk
Nú að fötunum sjálfum. Fólkið á netinu
og tískutímaritunum er sammála, sýn-
ingin var vel heppnuð. Kápa sem er undir afrískum áhrifum.