SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Síða 11
25. september 2011 11
Skar og skarkali | 7
Þorgrímur Kári Snævarr
Þ
að er ákveðin nostalgía
fólgin í áhugamáli Þrastar
Þórs Höskuldssonar en
hann hefur undanfarin þrjú
ár safnað saman kúluspilum og spila-
kössum. „Elsta kúluspilið mitt er frá
árinu 1977 og þegar maður kveikir á
því er eins og maður sé að setja gufu-
vél í gang, það koma hin undarleg-
ustu hljóð og smellir.“
Þröstur er bæði með sveinspróf í
rafeindavirkjun og að auki er hann
lærður tölvunarfræðingur. Menntun
hans nýtist honum því vel í þessu
sérkennilega áhuga-
máli. „Þetta byrjaði
allt á einum Star Wars
kassa. Hann var bil-
aður og ég taldi mig
hljóta að geta gert við
hann. Ég sló til,
keypti kassann og
eyddi næstu vikunum
í að koma honum í
stand.“
Þröstur á 15 kúlu-
spilakassa og 15 spila-
kassa með skjám,
flesta af kössunum má rekja til varn-
arliðsins. Ástandið á kössunum er af-
ar misjafnt þó að flestir þarfnist ein-
hvers konar lagfæringa og umbóta
enda segir Þröstur það vera það
skemmtilegasta við áhugamálið, að
koma kössunum í gang aftur. „Ég
spilaði voða lítið kassana hér í gamla
daga. Ég hef í rauninni miklu meira
gaman af því að gera við þetta en
spila. Þannig að það er eiginlega svo-
lítið þannig að ef að ég er að spila er
ég alltaf að leita að einhverju til að
laga.“
Ekki góð viðskiptahugmynd
að opna spilakassasal
En hvers vegna að gera upp gömul,
plássfrek leikföng? „Gamli skólinn
heillar mig rosalega mikið. Ég hef
verið að gera upp gömul húsgögn og
gamlan bíl. Þetta er síðan eitt það
skemmtilegasta sem ég hef komist í.
Þetta er það tímabil sem er skemmti-
legt fyrir rafeindavirkja. Maður getur
rakið sig í gegnum allt og það er
meira gaman að því en nýja dótinu.
Ef það bilar þá er það í flestum til-
vikum ónýtt og maður hendir því
bara. Þessa gömlu kassa er hægt að
endurlífga alveg endalaust. Það virð-
ist alla vega vera svolítið sterkt í
þessu ef það er hægt að spila á hvern
kassa allt að 120.000 sinnum og jafn-
vel oftar.“
Þröstur segir spilakassamenn-
inguna vera fyr-
irferðamikla í Banda-
ríkjunum og að hún sé
að smita út frá sér til
Evrópu. „Það eru alls
konar furðufuglar sem
hafa áhuga á þessu,“
segir Þröstur og hlær.
Þröstur starfar sem
tölvunarfræðingur hjá
Calidris og starfsmenn
þar njóta góðs af
áhugamáli hans en tvö
af kúluspilum hans eru
inni á kaffistofunni svo starfsmenn-
irnir geti leikið sér í matartímanum.
Þröstur hefur einstaka sinnum opnað
bílskúrinn og leyft nágrönnum sín-
um að taka í nokkur spil. „Kannski
verð ég vinsælasti pabbinn í hverf-
inu.“ Þröstur hefur lagt töluverðar
fjárhæðir í þetta áhugamál sitt og
hefur því hugleitt að leigja kassana út
til að ná upp í kostnaðinn. Þegar
Þröstur er inntur eftir því hvort að
hann ætli ekki bara að opna spila-
kassasal hlær hann og segir, „Það er
ekki viðskiptahugmynd sem ég stefni
í að láta verða að veruleika.“ Þröstur
segist vera orðinn svolítið saddur á
kössunum í bili en stenst samt ekki
freistinguna og auglýsir hér eftir
fleiri kössum þar sem hann segir
mestu vinnuna fólgna í því að nálgast
þá og safna þeim saman.
signy@mbl.is
Þegar vinir Þrastar koma til hans í póker sækjast þeir gjarnan eftir því að tapa til að
komast í kúluspilin hans, enda ekki hægt að ganga lengur að þeim vísum í Leik-
tækjasalnum Fredda.
Morgunblaðið/Eggert
Vinsælasti pabb-
inn í hverfinu
Flestir tengja kúluspil og spilakassa við átt-
unda og níunda áratuginn. Þröstur Þór hef-
ur aftur á móti tekið þessa spilakassamenn-
ingu með sér inn í nútíðina
’
Þannig að
það er eig-
inlega svo-
lítið þannig að ef
að ég er að spila
er ég alltaf að
leita að einhverju
til að laga.“