SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Síða 13
25. september 2011 13
Þ
etta segir norskur sálfræðingur, Torkil Berge,
en hann var einn af aðalfyrirlesurum á fjöl-
sóttri ráðstefnu um hugræna atferlismeðferð
sem haldin var í Hörpu í byrjun september.
„Talið er að geðraskanir snerti eina af hverjum þremur
fjölskyldum enda eru þær mjög almennar en um 20-
24% af almenningi glíma við geðraskanir á hverjum
tíma, þar af eru mjög margir sem eru þunglyndir eða
þjást af kvíða. Að hafa atvinnu er mikilvægur hluti af líf-
inu og margir af þeim sem sem greinast með geðraskanir
eða hafa greinst með geðraskanir hafa einhvern tímann
verið í vinnu eða eru í vinnu,“ segir Torkil Berge, sál-
fræðingur við Diakonhjemmet-spítalann í Ósló, en hann
hefur rannsakað tengsl vinnu og geðraskana. „Raskanir
eins og þunglyndi og kvíði hrjá því fólk sem stundar
vinnu. Fáir aðrir súkdómar hafa þó eins mikil áhrif á af-
köst en þar má nefna skort á orku og úthaldi, einbeit-
ingu og minni, fælni við að taka ákvarðanir, starfs-
ánægju og frumkvæði. Þá hefur þunglyndi áhrif á það
hvernig fólk hugsar, hvernig því líður, tengist öðrum og
sjálfu sér. Það er óhætt að segja að þunglyndi ráðist á
fólk.“
Meðferð á vinnustað í stað veikindaleyfis
Þunglyndi er oftast ástæða fjarvista frá vinnu, oftar en
nokkur annar sjúkdómur og kostnaðurinn vegna þess og
minni framleiðni er mikill, iðulega vegna þess að þung-
lyndið er ekki meðhöndlað. Oft er fyrsta úrræðið að
senda fólk í veikindaleyfi sem þjáist af þunglyndi og/eða
kvíða á vinnustað svo það geti hvílt sig og safnað kröft-
um. „Þunglyndi, kvíði sem og aðrar geðraskanir hafa
áhrif á líðan fólks í vinnunni og vinnuafköst. Því er eðli-
legt að það telji þetta fyrsta úrræðið. Rannsóknir hafa
hins vegar sýnt að í sumum stéttum svo sem meðal
kennara, hjúkrunarfræðinga, lækna, lögreglumanna og
lögfræðinga getur stuðningur eins og hugræn atferl-
ismeðferð komið að góðum notum og stutt fólk í
vinnunni í gegnum erfið tímabil í stað þess að taka veik-
indaleyfi. Af einhverjum ástæðum eru geðraskanir al-
gengari hjá fólki í þessum stéttum en um leið hefur það
oft þekkingu og getu til þess að hjálpa sér sjálft fái það til
þess bæra aðstoð og það reynist jafnvel eða betur en að
fara í leyfi. Gallinn við veikindaleyfi er að fólk einangr-
ast oft, það skortir eðlilegan ramma í hversdagslífinu,
finnst erfitt að fara aftur til vinnu og er lengur að ná
eðlilegum vinnuafköstum. Það hefur í raun, nema það
hafi leitað sér meðferðar, ekki fengið neina bót á sjúk-
dómi sínum og hvernig eigi að ráða við hann og fyr-
irbyggja aðra lotu sjúkdómseinkenna eins og hægt er að
af því að vera borgari. Geðheilbrigði snýst ekki bara um
þjónustu við samfélagið, það snýst ekki bara um hvers
fólk þarfnast, heldur snýst það um hvað fólk getur lagt
til samfélagsins. Um það snúast borgararéttindi. Þess
vegna er svo mikilvægt að auka sjálfræði og sjálfstæði
fólks með alvarlegar geðraskanir, svo að það megi taka
meiri þátt í meðferð sinni og í samfélaginu, sem vinir,
nágrannar, neytendur og starfsmenn.“
Torkil dregur ekki dul á að starfsendurhæfing fólks
með alvarlegar geðraskanir sem hafi verið lengi án
vinnu geti verið erfið. „Það gerist ekki allt á einum degi
og slík starfsendurhæfing á sér ofast stað með ákveðnum
stuðningi og í samstarfi við vinnustaðinn. Flestar rann-
sóknir sýna að best er ýta þeim sem er með geðrösk-
unina út í djúpu laugina og kenna honum svo sundtök-
in. Það er valið starf fyrir viðkomandi og svo er tekist á
við hverja hindrun eftir því sem hún kemur upp. Hér
hentar hugræn atferlismeðferð mjög vel.“ Torkil segir að
vinnan gefi fólki sem glímt hefur við geðraskanir yf-
irleitt mikið og auki lífsgæði þess. „Bætt sjálfsmynd og
færri sjúkdómseinkenni eru yfirleitt ánægjulegur fylgi-
fiskur þessarar tegundar af starfstengdri endurhæf-
ingu.“
Hugræn atferlismeðerð virkar
Rannsóknir hafa sýnt að það er hægt að vinna að for-
vörnum á vinnustöðum. „Fræðsla um þunglyndi og
kvíða ætti að vera sjálfsögð og eins ættu fyrirtæki að
huga að streituvörnum. Það getur verið margt í vinnu-
umhverfinu sem veldur streitu eins og of mikið vinnuá-
lag, óskýrar vinnukröfur, óstjórn eða misræmi í skila-
boðum stjórnenda auk eineltis, kynferðislegrar áreitni
og fleira. En við fyrirbyggjum aldrei alveg þunglyndi og
kvíða eða aðrar geðraskanir á vinnumarkaði og þess
vegna er svo mikilvægt að vinna með þær.“
Torkil bendir á að þrátt fyrir að til séu aðferðir til þess
að styðja fólk á vinnumarkaði sem þjáist á geðröskunum
og koma fólki aftur á vinnumarkaðinn með starfstengdri
þjálfun, þá sé það því miður ekki kostur sem standi öll-
um til boða. „Hugræn atferlismeðferð þyrfti að vera að-
gengilegri og gæti verið brú á milli heilsugæslunnar og
vinnumarkaðarins. Rannsóknir hafa sýnt, að ef fólk
hefði val, þá myndi það kjósa slíka meðferð og hún bæði
virkar og er fyrirbyggjandi. Heilsugæslan er almennt
ekki nægilega upplýst um þennan kost á vinnumarkaði
og í sumum löndum er hann varla til. Fólk á mikið undir
því að vera áfram á vinnumarkaði ekki síður en sam-
félagið, þrátt fyrir að vera greint með geðröskun, og því
er mikilvægt að nýta öll þau úrræði sem eru til.“
Með því að veita fólki
með geðraskanir
stuðning á vinnustað
má halda því í starfi
með eðlilegum afköst-
um. Það er ódýrari
kostur fyrir samfélagið
en að hafna því á
vinnumarkaði.
Texti og mynd: Unnur H. Jóhannsdóttir
„Gallinn við veikindaleyfi er að fólk einangrast oft, það skortir eðlilegan ramma í hversdagslífinu, finnst erfitt að fara aftur til vinnu og er
lengur að ná eðlilegum vinnuafköstum,“ segir Torkil Berge.
’
Staðreyndin er þó sú að at-
vinnustigið er minnst hjá fólki
með geðraskanir sé litið yfir
hóp fólks með skerðingar. Það á því
mjög erfitt með að fá vinnu.
Þunglyndi og kvíði algeng
á vinnumarkaði
gera með sérhæfðri hugrænni atferlismeðferð.“
Torkil bendir á að til þess að hægt verði að styðja fólk
með geðraskanir á vinnustað sínum verði að koma upp
ákveðnu kerfi. „Í Noregi erum við með þrjú verkefni í
gangi. Hið fyrsta er á landsvísu og nefnist „Sjáumst á
morgun“ en þar fá stjórnendur fyrirtækja, mannauðs-
stjórar og stjórnendur verkalýðsfélaga þjálfun sem
byggist á þekkingu og samspili vinnu og geðraskana og
hvernig best sé að bregðast við þegar starfsmaður grein-
ist með geðröskun. Þá hefur verkefni um bætt aðgengi
þeirra sem þjást af algengum geðröskunum að sálfræði-
meðferð verið í gangi í Noregi síðustu ár og loks höfum
við opnað sex miðstöðvar fyrir fólk sem á í erfiðleikum á
vinnustað, en þangað getur það komið og fengið hjálp og
endurhæfingu sem tengist vinnunni með hugrænni at-
ferlismeðferð. Þetta hefur gengið mjög vel og orðið til
þess að margir hafa snúið aftur til vinnu. Það eru því
ýmsar leiðir til þess að halda fólki með geðraskanir í
vinnu og koma því aftur í vinnu, með svo miklu minni
kostnaði fyrir samfélagið og fólkið sjálft en ef það færi á
örorkubætur. En stjórnvöld verða að vilja það og sýna
vilja í verki.“
Vinnumarkaðurinn hefur hafnað fólki með geðraskanir
Eins og áður segir er vinnan eitt af því mikilvægasta í lífi
fólks, fyrir utan fjölskyldu og áhugamál. Flestir með
geðraskanir vilja vinna og það að vinna hefur mjög góð
áhrif á heilsu þeirra að sögn Torkil. „Staðreyndin er þó
sú að atvinnustigið er minnst hjá fólki með geðraskanir
sé litið yfir hóp fólks með skerðingar. Það á mjög erfitt
með að fá vinnu. Það hefur svo aftur áhrif á geðraskanir
og veldur þunglyndi, kvíða og óhamingju eins og er al-
gengt meðal atvinnulausra. Þannig að oft er þetta víta-
hringur. Ef fólk þróar með sér geðröskun er það tvisvar
sinnum líklegra til að missa vinnuna en ef það væri með
nokkra aðra skerðingu.“ Torkil segir að rannsóknir sem
beinast að starfstengdri endurhæfingu fyrir fólk með al-
varlegar geðraskanir sýni að aðeins 5% þeirra sem
greinst hafi með geðklofa hafi reglulega vinnu en meira
en helmingur þeirra vilji vinna. „Að hafa vinnu er hluti