SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Blaðsíða 24
24 25. september 2011
F
élagsskapurinn Maddömm-
urnar, hópur starfsfólks úr Ár-
skóla á Sauðárkróki, ákvað að
gefa kreppunni langt nef og gera
eitthvað uppbyggilegt fyrir bæinn sinn.
Útkoman varð Maddömukot, skemmti-
legt lítið hús við Aðalgötuna, sem er ekk-
ert venjulegt handverkshús heldur eitt-
hvað miklu meira.
„Ástæðan fyrir því að við ákváðum að
gera eitthvað var að við vorum svo leiðar
á þessu krepputali. Það var svo leiðinlegt
að koma í kaffi og það var ekki talað um
neitt annað en kreppu. Fólk verður bara
leitt á að hlusta á svona tal. Þá sagði ein-
hver: Getum við ekki gert eitthvað fyrir
bæjarbúa?“ segir Karlotta Sigurðardóttir,
ein af þessum rösku Maddömum.
„Þetta byrjaði á því að við buðum bæj-
arbúum upp á kjötsúpu,“ segir hún en þá
buðu þær upp á súpuna í Minjahúsinu en
voru með jólamarkað í litlu húsi við hlið-
ina á því, sem gengur undir nafninu
Maddömukot í dag. Þetta var fyrir jólin
2008.
Árlegur jólamarkaður
„Þetta var fyrstu helgina í aðventu en
síðan hafa málin þróast áfram. Við feng-
um húsið til afnota en eigum það ekki,“
segir Karlotta en núna er kjötsúpan orðin
að hefð og verður bæjarbúum og gestum
boðið upp á súpu fyrsta í aðventu í ár líkt
og síðustu ár. Sama dag verður enn-
fremur opnaður jólamarkaður Madda-
manna, sem verður á laugardögum til
jóla.
Maddömurnar eru þegar búnar að
skapa sér fleiri hefðir. „Það eru haldnir
lummudagar árlega hérna í Skagafirð-
inum, við tökum þátt og steikjum lumm-
ur og bjóðum bæjarbúum upp á kaffi,“
segir hún en svo má ekki gleyma að í
Maddömukoti er haldin sýning á hverju
sumri.
Lokað er í Maddömukoti þar til við
upphaf aðventu enda framkvæmdir í
vændum. „Við erum að fara að vinna í því
að loka suðurhliðinni fyrir veturinn því
hún er svolítið götótt,“ segir Karlotta en
Maddömurnar hafa staðið í heilmiklum
framkvæmdum í þágu hússins frá því
þær fengu það til afnota.
„Við erum búnar að skipta um þak á
húsinu og einangra þakið innan frá. Það
var stjörnubjart þarna inni!“
Hún segir að ekki sé vitað mikið um
sögu hússins. „En það sem við vitum er
að þarna voru saltaðar nautshúðir og ég
veit líka dæmi um það að þarna var búið á
efri hæðinni. Tengdamamma mín sagði
mér það en hún kom þarna sjálf sem
krakki,“ segir hún en eftir opnun Mad-
dömukots fór fólk sem kom við að segja
þeim hitt og þetta um húsið. „Þarna var
saltaður fiskur og fyrsta vínbúðin á
Króknum.“
Margt óvænt hefur komið í ljós þegar
unnið hefur verið að því að gera húsið
upp. „Gluggarnir á framhliðinni eru
gluggar sem við fundum þegar við tókum
forskalninguna frá innan á,“ segir hún en
utan frá voru þetta gervigluggar.
Réttara sagt þá var annar glugginn
svona en hjá hinum gerviglugganum var
ekkert undir en þá færðu þær glugga af
suðurhliðinni á nýjan stað.
„Við erum mikið fyrir að gera þetta
sjálfar en auðvitað getum við ekki gert
allt. Við höfum verið með einn karlmann
með okkur sem er kallaður Maddömu-
sonurinn. Hann hjálpaði okkur meðal
annars að setja bita undir gólfið á efri
hæðinni til að lyfta loftinu,“ segir hún og
bætir við að það hafi verið mikill munur
enda hafi það verið sigið.
Karlotta hefur greinilega ástríðu fyrir
því að varðveita þetta gamla hús. „Það er
búið að fjarlægja mörg hús, sem manni
finnst í dag að hefði aldrei átt að taka,“
segir hún en Maddömurnar hafa safnað
saman myndum af þessum gömlu hús-
um.
Þetta gamla hús setur sannarlega svip
sinn á bæinn og eftir því er tekið þó það
sé ekki stórt.
„Við tökum eftir því að fólk er farið að
frétta af þessu húsi,“ segir Karlotta en
það er sannarlega hægt að mæla með
heimsókn í Maddömukot.
Lokaður hópur með einkennisklæðnað
Maddömurnar eru 22 talsins. „Enginn
utan skólans kemst inn,“ segir Karlotta
sem er sjálf matráður í skóladagvistun
Árskóla og sér þar um mat fyrir 85
manns.
Þær eiga sér sérstakan klæðnað. „Við
þæfðum okkur vesti úr ull og erum með
skotthúfur sem eru handsaumaðar af
okkur sjálfum úr leðri og fiskroði.“
Í Maddömukoti eru aðeins til sölu
vörur eftir Maddömunar en Karlotta seg-
ir að það sé um helmingurinn sem gerir
eitthvað í höndunum. Sjálf gerir hún
vörur úr leðri og roði. Ennfremur er heil-
mikið prjónahandverk til sölu, þæfðar
vörur, veski og fleira. „Við erum alltaf að
reyna að finna eitthvað nýtt að gera.“
Þær baka líka rúgbrauð og gera sultur.
Svo má ekki gleyma því að gestum kots-
ins er gefið kaffi úr dýrindisbollum og ef
vel liggur á Maddömunum er boðið upp á
vöfflur eða pönnukökur.
Sýning á hverju sumri
Stemningin í húsinu er vissulega einstök,
þetta er eins og að vera boðið heim til
einhvers sem býr í gömlu húsi á safni.
Maddömurnar eru nefnilega líka safnarar
og síðastliðið sumar var boðið upp á
skemmtilega sýningu á gömlum skóla-
bókum, námsgögnum og leikföngum og
var sýningin styrkt af Menningarsjóði
Norðurlands vestra.
Fyrsta sumarið voru þær með sýningu
á myndum af gömlu fólki í bænum og
gömlum húsum og sumarið eftir með
Byrjaði með
kjötsúpu
Við Aðalgötuna á Sauðárkróki í Skagafirði
stendur snoturt svart hús, sem nefnt hefur verið
Maddömukot eftir vöskum hópi, sem þar rekur
einstaka verslun og samkomustað.
Texti og myndir: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Kassinn var gjöf frá Verslun H. Júlíussonar. Pokarnir eru
skemmtilegir, gerðir úr eintökum af héraðsblaðinu Feyki.
Maddömurnar leggja sig fram við að bjóða uppá fjölbreytt handverk til
sölu í kotinu. Hér er eitt dæmi um úrvalið.
Ýmsir gamlir munir eru líka til sölu á staðnum. Ágóði af sölu
þessara hluta rennur til enduruppbyggingar hússins.