SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Page 25
25. september 2011 25
sýningu tileinkaða merkum skagfirskum
konum er fallnar eru frá. Karlotta segir að
núna eigi bara eftir að ákveða sýningu
næsta sumars og eru Maddömur byrjaðar
að leggja höfuðið í bleyti.
Ennfremur eru til sölu ýmsir gamlir
munir til styrktar húsinu, sem eins og
áður segir er sífellt verið að endurbæta.
Þær eru nýlega komnar með hitaveitu og
rafmagn. „Þetta er allt annað líf!“
Gamlir hlutir setja líka svip sinn á hús-
ið eins og gömul Rafha-eldavél og forláta
peningakassi sem Maddömunum áskotn-
aðist úr hinni merku Verslun H. Júl-
íussonar.
Til viðbótar verður að nefna ritvélina
sem er gestabók hússins. „Það eru eitt-
hvað um 1800 manns sem kvittuðu í
gestabókina í sumar og það skrifuðu ekk-
ert allir. Það hafa aldrei komið eins
margir til okkar en við höfum heldur
aldrei haft eins mikið opið. Þetta eru jafnt
Íslendingar sem útlendingar. Fólk er
duglegt að koma til okkar. Sumt fólk
hérna í bænum kemur nokkrum sinnum
yfir sumartímann til að skoða, fá kaffi og
spjalla. Þetta er rosalega gaman.“
Gestabókin er í formi þessarar gömlu ritvélar.
Það er margt forvitnilegt að sjá í Maddömukoti.
Maddömurnar eru liðtækar í eldhúsinu og baka og sulta.
Gamlar skólabækur og námsgögn á sýningunni í sumar.
’
Maddömurnar eru líka safn-
arar og síðastliðið sumar var
boðið upp á skemmtilega
sýningu á gömlum skólabókum,
námsgögnum og leikföngum.
Maddömukot er lítið og áhugavert. Stendur við Aðalgötuna á Sauðárkróki við hlið Minjahússins.
Karlotta Sigurðardóttir stendur
vaktina í Maddömukoti en hún er
ein Maddamanna úr Árskóla, sem
hún segir vera heldur betur
skemmtilegan félagsskap.