SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Side 31
25. september 2011 31
N
ú er sláturtíðin hafin, þá hugsa ég til
baka þegar ég vann í sláturhúsinu á
Akureyri með skólanum. Það var
stemning sem ég held að sé svipuð og
hjá fiskverkafólki á vertíð. Svo ekki sé minnst á
kartöfluuppskeruvertíð sem ég prófaði einhvern
tímann líka. Þetta er það sem undirstrikar árs-
tíðabundið hráefni, ég velti því fyrir mér hvort
ungt fólk í höfuðborginni tengi nýjar kartöflur við
haustið, ég veit það eftir umræður núna síðsumars
að margir alþingismenn hafa ekki hugmynd um að
lambakjöt er árstíðarvara og lömbum er einungis
slátrað á haustin.
Ég er ekki mikill áhugamaður um útflutning á
kjöti og finnst að við eigum heldur að flytja inn
ferðamenn til að borða lambið hér. Umræðan um
lambakjötsskort í sumar finnst mér mjög skrýtin,
ég lagði mig fram og fór á milli verslana til að velta
þessu fyrir mér, eins hafði ég samband við nokkra
birgja þar sem ég stóð í talsverðum veisluhöldum
og lambakjötið lék þar stórt hlutverk. Ég var í
engum vandræðum að fá það hráefni sem vantaði
og upplifði ekki vöntun. Nema þá kanski í versl-
unum Haga enda held ég að umræðan hafi hafist
þar, líklega út af áhuga þeirra á að flytja inn
lambakjöt með því yfirvarpi að það sé í þágu neit-
enda.
Einhverjir spekingar töluðu um að búið væri að
flytja út alla hryggi og læri en það kom mér
skemmtilega á óvart þegar ég talaði við tvo stóra
kjötbirgja að helsta aukningin í útflutningi þeirra
hafi verið í slögum sem notuð eru í kebab í Bret-
landi, beinum sem flutt eru til Nígeríu og innmat
til Asíu; allt eru þetta afurðir sem við Íslendingar
notum lítið í dag. Íslenskt lambakjöt er einstakt á
heimsvísu og talsvert frábrugðið lambakjöti eins
og flestir aðrir þekkja, bæði aldur, uppeldisskil-
yrði, meðhöndlun, hlutun og eldamennska. Við
eigum að nýta okkur þá sérstöðu að vera eyja og
eiga þessa einstöku náttúruafurð, bera virðingu
fyrir henni og njóta. Það má eflaust endurskoða
styrkjamálin, en ég vil benda á að ýmislegt annað
er styrkt hér á landi sem við viljum ekki missa,
eins og t.d. menning og listir.
Hrósið fær verslunin Víðir í Skeifunni, þar var
full búð af lambakjöti og útsala á súpukjöti, meðan
sumir vældu yfir að ekki væri til lambakjöt í land-
inu. Verslunin fær mig líka til að hugsa til baka,
minnir á gömlu hverfisbúðirnar sem voru um all-
an bæ fyrir norðan og í Vesturbænum sem ég
heimsótti oft þegar ég var hjá ömmu og afa. Vissu-
lega er Melabúðin ennþá til og Guði sé lof fyrir
það. Í Víði geislar ástríða eigenda og starfsmanna í
bjartri og vel verðmerktri búð, þar sem vöruúr-
valið er í senn þjóðlegt og nútímalegt. Fullorðnir
starfsmenn sem leggja metnað sinn í vinnuna og
vilja allt fyrir viðskiptavinina gera með bros á vör.
Ég verð að viðurkenna að mér finnst ekki gaman
að versla, en ég gleymi mér í matvöruverslunum,
þarna er engin tilgerð, ekki verið að reyna að selja
þér sokka eða nærbuxur rétt áður en þú kemur að
kassanum, og það virðist breiður kúnnahópurinn
kunna að meta. Mín hverfisbúð er Fjarðarkaup
sem er líka einstök, en það er frábært að vera bú-
inn að fá Víði í hópinn með „litlu“ kaupmönn-
unum. Ekki skemmir fyrir að nú í vikunni þegar
ég skrapp í búðina tóku á móti mér glæný íslensk
aðalbláber og krækiber um leið og ég var minntur
á sláturtíðina með gullfallegum innmat. Þess
vegna vil ég nota tækifærið og hvetja landsmenn
alla til að taka slátur.
Skrýtin umræða um
skort á lambakjöti
Ég var í engum vandræðum að fá það hráefni sem
vantaði og upplifði ekki vöntun.
Morgunblaðið/Jim Smart
Matarþankar
Friðrik V
A
ð greina er að skilja.
Stundum er að greina
það sama og að
dæma. Þess vegna
eru foreldrar hræddir við grein-
ingar. Með greiningu óttumst
við foreldrar að barnið verði
stimplað og dæmt óhæft. Það
þarf að umgangast greiningar
með ákveðinni virðingu og
aldrei gleyma öllu hinu sem fell-
ur ekki undir greininguna.
Greining er leið til að skilja
hvers vegna barn á erfitt með
hluti sem öðrum þykir einfalt að
gera. Hún verður þó gagnslaus
nema notuð sé til að koma til
móts við barnið, hjálpa því að
takast á við takmarkanir sínar.
Hin síðari ár hafa gæði grein-
inga aukist mjög mikið. Sam-
hliða þessu hefur áhersla á hefð-
bundna skólagöngu barna
aukist. Þannig verður auðveld-
ara að sjá ef barn sker sig mjög
úr hópnum. Það verður líka erf-
iðara að taka tillit til slíkra barna
þegar ekki er almennilega vitað
hvað angrar og hvernig hægt er
að taka tillit til þess.
Stundum hef ég pirrað mig
stórkostlega á því að nútíma-
samfélagið gefur fólki lítinn
sveigjanleika til að vera öðru-
vísi. Við verðum að passa inní
ákveðna hillu í „Kerfinu“. Sam-
hliða þessu hef ég líka leitt hug-
ann oft að öllu fólkinu sem hefði
fengið greiningu í dag en var
uppi á öðrum tímum. Ég hugsa
til allra óþekku villinganna í
skólanum mínum og ýmissa
fjarskyldra ættingja sem ein-
hvern veginn voru ekki sam-
stiga samferðafólki sínu. Flestir
standa sig bara vel og lifa góðu
lífi. Hins vegar er ég alveg viss
um að möguleikar þessara ein-
staklinga til að vaxa og dafna
hefðu verið mun meiri hefðu
þeir fengið þann stuðning sem í
boði er í skólakerfinu í dag.
Heimur „greininga“ opnaðist
nýlega fyrir mér. Ég er sek um
flesta þá sleggjudóma sem al-
mennir eru um „greind börn“.
Það var ekki fyrr en ég neyddist
til að lesa allt sem ég komst yfir
um ADHD og einhverfu og mál-
þroskaröskun, þunglyndi
barna, lesblindu, kvíða- og
þroskaraskanir að ég fór að
skilja betur út á hvað þetta
gengur allt saman. Það sem
gerðist líka, og mér skilst að sé
algengt, var að ég byrjaði að
greina alla. Afsakið, ættingjar og
vinir en ég hef greint hegðun
ykkar í fortíð og nútíð með nýj-
um „greiningargleraugum“.
Þetta þroskaferli, allur lest-
urinn og sjálfsskoðunin hefur
hjálpað mér að sættast við hug-
takið „greiningu“. Tilgangur
þess er ekki að stimpla það sem
er mér dýrmætast heldur að
skilja. Til að hjálpa þurfum við
að skilja. Þar sem þetta er erfitt
þroskaferli finnst mér mik-
ilvægt að miðla þessu. Því fyrr
sem gripið er inní, þeim mun
meiri árangur næst!
Greining
Móðurhlutverkið
Agnes Ósk Sigmundardóttir
agnesosk@gmail.com
Beyoncé Knowles elskar
myndavélarnar og myndavél-
arnar elska Beyoncé Knowles.
Þetta fór ekki framhjá nokkrum
manni þegar söngkonan ástsæla
kynnti nýtt ilmvatn, sem kennt
er við hana, Beyoncé Pulse, í
verslun Macy’s í New York í
vikunni. Ekki verður annað sagt
en Beyoncé, sem er með barni,
hafi verið í sínu besta formi við
þetta tækifæri en stúlkan hélt
einmitt upp á þrítugsafmæli sitt
fyrr í mánuðinum.
Veröldin
Reuters
Bjart yfir
Beyoncé
Nýtt hefti
Þjóðmál – tímarit um stjórnmál og
menningu – hefur nú komið út í sjö ár undir
ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar.
Þjóðmál koma út fjórum sinnum á ári –
vetur, sumar, vor og haust. Tímaritið fæst
í lausasölu í helstu bókabúðum og nokkrum
stórmörkuðum, en ársáskrift kostar aðeins
4.500 kr.
Hægt er að gerast áskrifandi
á vefsíðunni www.thjodmal.is
eða í síma 698-9140.
www.thjodmal.is Bókafélagið Ugla