SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Qupperneq 38
38 25. september 2011
L
ítil frétt getur orðið stórmál í fyllingu tímans, enda segir
máltækið að mjór sé mikils vísir. Kennaraverkfallið kom sér
vel enda var þá hægt að fá kennara og nokkra verkefnalausa
nemendur til að raða í hillur og sinna fleiri tilfallandi verk-
efnum. Og víst er það svo að margs þarf búið við, þegar opna skal
verslun. Þetta er efnislega haft eftir Jóhannesi Jónssyni kaupmanni í
Morgunblaðinu 12. apríl 1989. Hann hafði þá fáum dögum fyrr opnað
sína fyrstu verslun undir merkjum Bónuss í 400 fermetra húsnæði við
Skútuvog í Reykjavík. „Verslunin gengur ákaflega vel … Móttökur
hafa verið hreint frábærar og við getum ekki annað en verið mjög
ánægðir,“ var haft eftir kaupmanninum sem var kunnur borgari í
Reykjavík eftir að hafa um langt skeið stýrt matvöruverslunum Slát-
urfélags Suðurlands.
Bónus fékk fljúgandi start. Salan varð strax verulega meiri en ráð
var fyrir gert og strax á fyrstu mánuðum í rekstri fyrirtækisins var
opnuð verslun við Faxafen í Reykjavík. Þeim var fjölgað enn frekar íStrikamerkingar voru nýmæli í verslun sem Bónus innleiddi. Jón Ásgeir Jóhannesson var í framlínu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Myndasafnið 23. ágúst 1990
Kennaraverk-
fall kom sér vel
S
arah Jessica Parker er auðvitað best þekkt fyrir hlutverk
sitt í Beðmálum í borginni (Sex and the City) en þar lék
hún rithöfundinn og blaðakonuna Carrie Bradshaw. Þætt-
irnir voru geysivinsælir (á dagskrá á árunum 1998-2004)
og hreppti Parker m.a. fern Golden Globe-verðlaun og tvenn
Emmy-verðlaun.Til viðbótar voru gerðar tvær Beðmála-
kvikmyndir.
Parker er líka hæst launaða leikkona í heimi, ásamt Angelinu Jolie,
en báðar hafa þær um 3,5 milljarða króna í árstekjur samkvæmt For-
bes.com. Mikið af tekjunum kemur frá endursýningum á Beðmál-
unum en Parker var ekki aðeins aðalleikona í þáttunum heldur líka
framleiðandi. Hún halar ennfremur inn tekjur af fleiru en leik en
hún þénar heilmikið á ilmvötnum sínum og alls kyns auglýsinga-
samningum.
Parker fæddist 25. mars árið 1965 og er því 46 ára. Hún er gift leik-
aranum Matthew Broderick. Saman eiga þau þrjú börn, soninn
James Wilkie Broderick, f. 28. október 2002, og tvíburadæturnar
Marion Lorettu Elwell og Tabithu Hodge, f. 22. júní 2009, en þær
komu í heiminn með staðgöngumæðrun.
Móðir í hjáverkum
Nýjasta mynd Parker, sem er sýnd um þessar mundir í íslenskum
bíóhúsum, heitir I Don’t Know How She Does It, bein þýðing: Ég
veit ekki hvernig hún fer að þessu. Myndin er gerð eftir met-
sölubók með sama heiti, eftir Allison Pearson, sem hefur verið
þýdd á íslensku undir nafninu Móðir í hjáverkum.
Parker leikur Kate Reddy, konu sem hefur náð langt í við-
skiptaheiminum, en á jafnframt eiginmann og tvö börn og
lýsir myndin átökunum á milli þess að hugsa um hjóna-
band, börn og vinnu. Myndin hefur ekki fengið góða
dóma og þykir taka heldur yfirborðskennt á vandanum
sem leitin að hinu gullna jafnvægi er.
Parker hefur ferðast um að undanförnu til að kynna
myndina og hefur þurft að svara mörgum spurningum
um jafnvægi milli einkalífs og vinnu af þessu tilefni. Henni er jafnan
stillt upp eins og „ofurkonunni“ í myndinni en hún reynir þó ekki
að ýta undir þessa ímynd.
Sarah Jessica Parker er launahæsta
leikkona í heimi en hún er líka mikil
tískudrottning og þénar vel á sölu
ilmvatna og á auglýsingasamningum.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Sarah Jessica Parker klæddist
þessum síðkjól frá Elie Saab á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í vor.
Hvernig
fer hún
að þessu?
Frægð og furður
Reuters