SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Side 41
25. september 2011 41
LÁRÉTT
1. Ert þú fyrir Óttar eða ójafnar? (8)
4. Ósoðinn líkamshluti gerður úr slíminu. (7)
7. Þrífir með dembum. (6)
8. Verndar fúsar og fíknar í karlmenn. (10)
9. Sauður lauk einhvern veginn við plöntu.
(10)
10. Einni krónu stal bolti í spádómstæki.
(11)
12. Tímabilin í rugli hjá risunum. (7)
14. Fugl fyrir laminn, gói segir mér. (9)
17. Telur Öllu birtast frekar. (4,6)
20. Svimið við að sjá hóp í sundi. (7)
22. Þekkt fær vitnisburð. (7)
25. Hvað er að ske með illa og lítinn koll. (7)
26. Af hverju er baktal að sofa? (7)
28. Huðna úr grjóti sést á himni. (9)
29. Tryggingarstofnunin öll aukin og mikil.
(10)
30. Enn sóaðir og kúgaðir. (7)
31. Herra Örn dragi andann vanburða. (9)
LÓÐRÉTT
1. Sjá þurra mæta til Bandaríkjanna til að
hreinsa upp. (8)
2. Boðun fyrir mann (9)
3. Skítainnræti hjá nirfli. (7)
4. Mikill aldur er berlega hjá manni. (8)
5. Tíu djöflarnir á tímabilinu. (11)
6. Núna kremur einn ennþá tölurnar. (7)
7. Hleypur með föt. (7)
11. Skapvondar klukkur hjá morgunfúlli. (5)
13. Óperan missir töflu en fær sekúndu
frá söngvara (6)
15. Bulla í rugli út af ógeði. (6)
16. Trallaðu einn til að búa til farva. (9)
18. Hei! Matskeið af brotinni pöru er
asnastrik. (10)
19. Læknir, unginn og deyfðin. (8)
20. Nást samningar við fugla núna? (3,7)
21. Kennara læri fyrir eða ekki. (9)
23. Prófar tré. (6)
24. Á her slatta með undirstrikun? (7)
27. Slórar að sögn við að hlæja á netinu. (6)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn í umslagi merktu:
Krossgáta Morgunblaðsins, Há-
degismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn kross-
gátu 25. september rennur út á
hádegi 30. september. Nafn vinn-
ingshafans birtist í blaðinu 2.
október. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning.
Vinningshafi krossgátunnar 18. september er Ei-
ríkur Pálsson, Álftahólum 6, Reykjavík. Hann hlýtur
í verðlaun bókina Bankastræti núll eftir Einar Má
Guðmundsson. Mál & menning gefur út.
Krossgátuverðlaun
Við lok stórmótsins í Linares
1995 lýsti Garrí Kasparov því yfir
að hann væri hættur keppni en
bætti því við að sennilega myndi
hann annað veifið taka þátt í
keppnum með styttri umhugs-
unartíma. Síðan þá hefur ein-
beitt sér að rússneskri pólitík og
í hugum almennings á Vestur-
löndum hefur hann stöðu sem
einn helsti andstæðingur Pútíns
forseta en aldrei náð mikilli lýð-
hylli í Rússlandi og varð að hætta
við þátttöku í forsetaframboði
árið 2007. Hann hefur þegar
eignast marga öfluga andstæð-
inga innan rússneska stjórnkerf-
isins og lítill vafi leikur á því að
þeir gera allt til að halda áhrifum
hans niðri. Þetta kom m.a. fram
þegar eindreginn stuðningur
Kasparovs við framboð Karpovs
til forseta FIDE í fyrra lauk með
því að Ilumzhinov vann öruggan
sigur. Við setningu Ólympíu-
mótsins, sem fór fram jafnhliða
kjörinu, hélt Dmítríj Medvedev
forseti Rússlands ræðu.
Í skákheiminum hefur Kasp-
arovs verið sárt saknað, viður-
eignir hans voru alltaf þrungnar
magnaðri spennu. Þessu fengu
Frakkar að kynnast á dögunum
þegar Kasparov háði hraðskák-
einvígi við sterkasta stórmeist-
ara Frakka, Vachier-Lagrave.
Einvígið sem fram fór í Clichy
vakti geysilega athygli í Frakk-
landi. Þeir tefldu tvær skákir og
Kasparov vann, 1 ½ - ½. Þrátt
fyrir stuttan umhugsunartíma
voru gæði skákanna ótrúlega
mikil:
1. skák:
Garrí Kasparov Vachier-
Lagrave
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Rc6
4. 0-0 Bd7 5. c3 Rf6 6. He1 a6 7.
Bf1 Bg4 8. h3 Bxf3 9. Dxf3 g6 10.
d3 Bg7 11. Be3 Rd7 12. Rd2 0-0
13. Dd1 Hc814. f4 e5 15. f5 gxf5
16. exf5 d5 17. g4 e4 18. Bf4 Rde5
19. dxe4 d4 20. g5
Kasparov hefur alltaf verið
hrifinn af framsæknum peðum.
20. … He8 21. Dh5 dxc3 22.
bxc3 Rd3 23. Bxd3 Dxd3 24. f6
Bf8 25. Df3 c4 26. Dxd3 cxd3 27.
e5 Rd8 28. Re4 Re6 29. Be3 Hed8
30. Had1 Hd5 31. Bd4 Rxd4 32.
cxd4 Hxd4 33. Kf2 He8 34. Rg3
Hd5 35. h4
Valdar g5-peðið.
35. … Bb4 36. He4 Bc3 37. Rf5
Kf8 38. Re7 Hd4 39. Kf3
Annar álitlegur kostur var 39.
Hxd4 Bxd4+ 40. Kf3 og d3-peðið
fellur.
39. … Hed8 40. Hxd4 Hxd4 41.
Rf5 Hd5 42. Re3! Hd4 43. Rf5
Hd5 44. Re3 Hd4 45. Hc1 Ba5 46.
Hc8+ Bd8 47. h5 Ke8 48. e6
Eins og einhver benti á vinnur
48. g6 hxg6 49. hxg6 fxg6 50. e6
Hd6 51. Rf5 því 51. … Hxd5 er
svarað eð 52. Rg7+ o.s.frv.
48. … d2 49. e7 d1D+ 50. Rxd1
Hxd1 51. h6!?
51. Fg6 vann einnig.
51. … Hd6 52. Kg2 Hd2+ 53.
Kf3 Hd6 54. Ke2 He6+ 55. Kd3
Hd6+ 56. Ke4 b5 57. g6 fxg6 58.
exd8D+ Hxd8 59. f7+
og svartur gafst upp.
EM barna og unglinga
Á Evrópumóti barna og ung-
linga sem lauk í Albena í Búlg-
aríu sl. mánudag náði Vignir
Vatnar Stefánsson bestum ár-
angri íslensku keppendaanna,
hlaut 5 ½ v. af 9 mögulegum og
varð í 19. sæti af 85 keppendum.
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
hlaut 4 vinninga af 9 mögu-
legum í flokki stúlkna 18 ára og
yngri og Dagur Ragnarsson hlaut
3 ½ v af 9 mögulegum í flokki
pilta 14 ára og yngri. Dagur og
Vignir Vatnar hækkuðu báðir á
stigum en Jóhanna lækkaði lít-
illega.
Hellir og Bolvíkingar á EM
taflfélaga
Evrópumót taflfélaga, ein
sterkasta flokkakeppni sem um
getur, hefst um helgina í Ro-
goska Slatina í Slóveníu. Tafl-
félag Bolungarvíkur og Hellir
senda sveitir á mótið sem skart-
ar mörgum af sterkustu skák-
mönnum heims.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Kasparov er enn geysiöflugur
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta