Morgunblaðið - 19.06.2010, Síða 11
www.seg-
waytours.is
Morgunblaðið/Ernir
Full ferð Blaðamaður á þeysispretti á hjóli í gærmorgun með hnúana vel kreppta um stýrið og hræðsluóp á vör.
að hlaða það. Ef tankurinn er alveg
tómur þarf hjólið átta tíma hleðslu.
Það er hægt að komast um 40 km á
fullhlöðnum tanki og það hleður sig
líka sjálft niður brekkur,“ segir
Bjarni.
Inni í hjólinu er tölva sem mæl-
ir jafnvægið og leitast við að halda
pallinum sem manneskjan stendur
á beinum. „Að stýra því er bara
spurning um örlitla tilfærslu á
þyngdarpunktinum. Það má ekki
hreyfa sig hratt því tækið er mjög
kvikt.
Hjólið er með tvær stillingar,
annars vegar skjaldböku, þá fer það
hægar og nota ég þá stillingu með
börn, unglinga, óvana og þegar ég
er með lítinn flöt. Svo er önnur
hraðari stilling fyrir vanari. Flestir
eru mjög fljótir að ná tökum á
þessu.
Það þarf aðallega að muna að
stíga aldrei fram fyrir tækið, ef þú
gerir það keyrir þú á sjálfan þig,
það verður líka að fara gætilega
þegar farið er af til að bakka ekki á
sig. Annar er þetta eiginlega bara
hæll og tá. Sumir ná þessu strax,
aðrir þurfa kannski tvær mínútur
og svo kemur allt í einu þetta
Segway-bros sem er mjög sér-
stakt,“ segir Bjarni og er beðinn um
nánari útskýringu á brosinu. „Þeg-
ar fólk er komið með svona 70%
færni á hjólinu fer það að hafa svo
gaman af þessu og þá kemur brosið
sem er kallað „Segway-smile“.“
Hjólatúrar um Vestmanna-
eyjar í sumar
Segway-hjól voru upphaflega
aðallega notuð af lögreglunni í Am-
eríku og öryggisþjónustuaðilum
sem þurfa að ferðast um stórar
byggingar. Hjólin eru enn mest not-
uð af þessum aðilum þótt farið sé að
nota þau mikið í túristaferðum.
Eitthvað er um að einstaklingar eigi
svona hjól til einkanota.
„Hjólin eru orðin nokkuð al-
geng og mikið um það erlendis að
svona hjól séu leigð í túra fyrir
ferðamenn enda er þetta umhverf-
isvænt farartæki. Ég veit líka um
einstaklinga sem eiga erfitt með
hreyfingu og ferðast víða á svona
hjóli. Þetta er gott fyrir þá sem geta
ekki labbað mjög langt,“ segir
Bjarni. Hann er sjálfur með tíu hjól
hjá SegVeyjum sem hann mun að-
allega nota í útsýnisferðir í Vest-
mannaeyjum.
„Ég er með leigu- og útsýn-
isferðir í Eyjum og er búinn að fara
út um allt þar á hjólunum. Ég hef
t.d. farið upp á Stórhöfða og upp á
eldfjallið. Það er miklu skemmti-
legra fyrir fólk að upplifa náttúruna
á þessu heldur en að sitja inni í
rútu.
Ég er líka með golfhjól úti í
Eyjum, það er með breiðari dekk og
með grind sem golfsettið leggst á.
Þannig að það er bara að hjóla,
stoppa, slá kúluna og fara aftur á.
Það eru líka til sérstök Segway-
torfæruhjól sem eru mjög vinsæl
erlendis.
Í sumar mun ég líka elta
sólina og fólkið og verð á alls
konar uppákomum kring-
um landið. Þar getur fólk
prófað hjólin, leigt þau í
smátíma. Ég verð einmitt
á Bíladögum á Akureyri nú
um helgina,“ segir Bjarni,
kveður blaðamann og er
rokinn til Akureyrar með
hjólin.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR
auglýsir eftir síðustu umsóknum um styrki úr
sjóðnum árið 2010 vegna ársins 2011.
Þjóðhátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt skipulagsskrá nr. 361
frá 30. september 1977 með áorðnum breytingum, var stofnaður í
tilefni af 1100 ára búsetu á Íslandi 1974.
Tilgangur sjóðsins er:
• að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það
verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta
lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í
arf.
Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög
til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka
önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra
við þau. Á síðasta ári veitti sjóðurinn 65 styrki samtals að fjárhæð
33,9 m.kr.
Þetta er síðasta almenna úthlutun sjóðsins sem verður að fjárhæð
samtals um 34 m.kr. Að henni lokinni lýkur úthlutunum sjóðsins,
sbr. skipulagsskrá.
Umsóknir
Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum
eyðublöðum. Þau má finna á vefsíðu Seðlabanka Íslands
http://www.sedlabanki.is/?PageID=28. Enn fremur má nálgast
eyðublöð í afgreiðslu Seðlabankans, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2010 og er stefnt að
því að úthlutað verði úr sjóðnum 1. desember 2010 með athöfn
í Þjóðmenningarhúsinu. Umsóknir skal senda Þjóðhátíðarsjóði,
Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík.
Nánari upplýsingar eru veittar í símum 569 9628 og 569 9781
eða á netfanginu: thjodhatidarsjodur@sedlabank.is
Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs
Kaffitár hefur kynnt til sögunnar Pelé,
fyrsta íslenska kaffibjórinn. Bjórinn er
bruggaður í Ölvisholti og seldur á
þeim tveimur kaffihúsum Kaffitárs
sem hafa áfengisleyfi, í Leifsstöð og á
Höfðatorgi.
Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri
Kaffitárs, segir bjór og kaffi ekki svo
algenga blöndu en góða. „Kaffibjór
hefur verið að ryðja sér til rúms og
hafa kaffiframleiðendur og lítil brugg-
hús verið að taka sig saman. Í rauninni
er þetta mjög gott saman, bjórinn er
frekar dökkur, svipar til annarra malt-
bjóra en er samt ekkert eins og Guin-
nes eða annar slíkur dökkur bjór. Pelé
kemur frá Ölvisholti og er í grunninn
Móri frá þeim. Kaffið gefur þessu smá
krydd án þess að það sé yfirgnæfandi
kaffibragð, sumir bjórar hafa smá
malt- eða reykjartóna en þessi er með
kaffitón,“ segir Aðalheiður.
- Af hverju ákváðu þið að brugga
kaffibjór?
„Ölvisholt er lítið brugghús og er
oft að gera svona tilraunir. Í fyrra var
hér á landi kaffibarþjónakeppni og þá
var m.a. keppt í að þekkja kaffibjór, þá
gerði Ölvisholt fyrir okkur prufur og
þannig kviknaði hugmyndin.
Þar sem Kaffitár á 20 ára afmæli
núna fannst okkur skemmtilegt að
gera líka viðhafnarútgáfu af kaffibjór í
tilefni þess,“ segir Aðalheiður.
Pelé þýðir gyðja eldfjallanna
Kaffið sem notað er til að gefa Pelé
sitt bragð kemur frá brasilíska fram-
leiðandanum Daterra, en fyrirtækið er
bæði margverðlaunað fyrir gæði fram-
leiðslu sinnar sem og vottað fyrir
sjálfbærni og umhverfisvæna starf-
semi. Fulltrúi frá Daterra er staddur
hér á landi og hélt erindi þegar bjórinn
var kynntur til leiks.
- Hvaðan kemur nafnið á bjórnum?
„Bjórinn heitir Pelé eftir fótbolta-
hetjunni sem er fæddur í sama héraði
og kaffið sem notað er í bjórinn kemur
frá. Auk þess þýðir Pelé gyðja eld-
fjallanna og fannst mér það passa svo
vel við okkur,“ segir Aðalheiður.
Eins og áður segir verður bjórinn
aðeins til sölu á tveimur kaffihúsum
Kaffitárs en að sögn Aðalheiðar voru
aðeins gerðar um 1400 flöskur af hon-
um. Hún útilokar þó ekki að hann fari í
framleiðslu og almenna sölu ef vel
verður tekið í hann. „Þetta er
skemmtileg viðbót og hann er alveg
ótrúlega góður á bragðið,“ segir Aðal-
heiður að lokum.
ingveldur@mbl.is
Bjór
Kaffibjór úr brasilískum baunum
Stjórinn Aðalheiður Héðinsdóttir.
Bjórinn Merki Pelé-bjórsins.
Fyrsta Segway-hjólið var kynnt
á markað 3. desember 2001 í
New York í beinni útsendingu í
morgunsjónvarpsþættinum
Good Morning America.
Skapari þessi er Dean Kamen
og er það þekkt undir heitinu
Segway Human Transporter,
eða Segway – mannlegur ferða-
máti. Ekkert líkt Segway-hjólinu
hafði áður verið á markaði að
sögn Kamens.
Í upphafi voru þrjár gerðir af
hjólinu en árið 2006 voru þær
allar teknar af markaði og önn-
ur kynslóð hjólanna kynnt til
sögunnar, Segway i2 og x2. Voru
þau fullkomnari og með þá nýj-
ung að notendur gátu nú beygt
með því að halla stýrinu til
hægri eða vinstri, sem var í takt
við það að beygja sig fram til að
fara áfram og aftur til að fara
afturábak. Notendur
Segway-hjóla mega ekki
vera léttari en 45 kg og
þyngri en 120 kg, og allir
þurfa þeir að hafa hjálm
til öryggis eins og á
venjulegu reiðhjóli.
SegVeyjar er fyrsta
Segway-hjólaleigan á Ís-
landi, stofnuð í Vest-
mannaeyjum í maí 2010
og er fyrirtækið í
eigu Guðrúnar Mary
Ólafsdóttur og
Bjarna Ólafs Guð-
mundssonar.
Kynnt til sög-
unnar 2001
UPPHAFIÐ
Dean
Kamen
„Planið er að stilla
ekki neina vekj-
araklukku og sofa
út. Síðan fæ ég mér
góðan morgunmat
og ætli það verði
ekki hafragrautur og
kaffi. Svo þarf ég að
skoða tölvupóstinn
minn vegna Reykja-
vík Dance festival
sem fer fram 1.-5.
september næstkomandi. Það er allt í
gangi við skipulagningu á því og þarf ég
að svara tölvupósti og kíkja á eitthvert
dót. Eftir það býst ég við að fara og fá
mér kaffi á Kaffismiðjunni með vinkonu
minni sem er í heimsókn frá Ástralíu.
Stóra systir mín á afmæli í dag og ég fer
örugglega í heimsókn til hennar, ekki er
þó um stórafmæli að ræða.
Ef veðrið er gott fer ég örugglega í
sund, sit aðeins í heitu pottunum og fer
í gufu í Laugardalslauginni.
Seinnipartinn er ég að hugsa um að
bjóða vinum mínum í grill, borða góðan
mat með góðum vinum. Á grillinu lendir
líklega kjúklingur og gott salat verður
gert með, mér finnst mjög gaman að
elda og bjóða fólki í mat, gefa gott að
borða.
Svo langar mig að fara að sjá Rómeó
og Júlíu hjá Vesturporti en þá sýningu
hef ég aldrei séð en er búin að vera á
leiðinni lengi. Ég læt örugglega verða af
því þessa helgi.
Líklega endar dagurinn á því að ég
kíki út á lífið með góðum vinum og
dansa kannski fram á nótt.
Dagarnir mínir eru misjafnir, aldrei
eins, og ég veit ekki hvort ég get sagt
þennan dag eitthvað hefðbundinn. En ef
ég hef tækifæri til finnst mér mjög gam-
an að heimsækja fjölskyldu og vini, eyða
tíma með góðu fólki og svo finnst mér
alltaf æðislegt að fara í sund.“
Steinunn Ketilsdóttir dansari og tvöfaldur
Grímuverðlaunahafi
Hvað ætlar þú að gera í dag?
Finnst gaman
að gefa gott að
borða
Steinunn
Ketilsdóttir
Daglegt líf 11