Morgunblaðið - 19.06.2010, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.06.2010, Blaðsíða 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010 Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is Tuttugu og eins árs sögu þyrlupallsins í Kol- beinsey er nú lokið, þar sem lítið er eftir af honum annað en boltar sem reknir voru í berg- ið, þegar slegið var upp fyrir pallinum sumarið 1989. Þetta kom í ljós þegar varðskipið Týr fór að Kolbeinsey fyrir skömmu og skipverjar fóru á léttabáti að skoða eyna. Tveir kollar standa upp úr hafinu en þyrlu- pallurinn var áður þar sem skarðið á milli þeirra er núna. Sá austari er 10 sinnum 11 metrar að flatarmáli og sá vestari 10 sinnum 14 metrar. Pallurinn var steyptur á meðan Íslendingar stóðu í stappi við Grænlendinga og Dani um hvernig ákvarða skyldi miðlínuna milli Íslands og Grænlands og um leið mörk efnahags- lögsögu ríkjanna. Áhöfn varðskipsins Óðins og starfsmenn Vita- og hafnamálastofnunar steyptu pallinn og hefur Landhelgisgæslan reglulega fylgst með eynni síðan þá. Samkvæmt Hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna getur efnahagslögsaga ríkja lengst náð 200 sjómílur á haf út frá svokallaðri grunn- línu, sem dregin er á milli útnesja með vissu millibili og þvert á firði og flóa. Ef svo stutt er á milli að þessi svæði skarast þarf að ákvarða miðlínuna og hin norðlæga Kolbeinsey kom Ís- lendingum að góðu í því máli. Þyrlupallurinn var hluti af því að sýna einhver umsvif Íslend- inga á eynni og jafnframt að sýna fram á að henni væri hægt að halda við svo hún væri ekki komin í vota gröf innan skamms tíma. Síðan þá hefur sífellt brotnað úr eynni og hún orðið öldugangi og hafísjökum að bráð. Það hefur hins vegar ekki komið að sök, enda var samið um miðlínuna árið 1997 og var sú niðurstaða endanleg. Samkomulagið fól í sér viðurkenningu á full- um áhrifum Grímseyjar við afmörkunina og hafsvæðið umdeilda vegna Kolbeinseyjar skiptist þannig að Íslendingar fengu 30% í sinn hlut og Grænlendingar 70%. Í skýrslu utanrík- isráðuneytisins um utanríkismál árið 1997 sagði að þetta væri vel viðunandi niðurstaða, enda væri það mat íslenskra stjórnvalda að við hefðum ekki fengið betri niðurstöðu í dóms- máli. Einn helsti hvatamaðurinn að byggingu pallsins á sínum tíma var þáverandi sam- gönguráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, sem enn er Íslendingum vel kunnur fyrir þátttöku sína í stjórnmálum. „Ég beitti mér dálítið í þessu og hafði hreyft þessu máli á Alþingi,“ segir Steingrímur, þegar hann er beðinn um að rifja málið upp. „Það tókst hið ágætasta samstarf og menn unnu þetta saman, með eig- in tækjum.“ Ráðherrann fór með á varðskipinu Ægi, þar sem möl og sement voru með í för og lítil steypuvinnslustöð starfrækt um borð. „Það þurfti talsverða styrkingarvinnu, voru boraðir bergboltar og festingar. Svo fór óhemju miklu meira af steypu í þetta en við héldum í fyrstu, ofan í sprungur í berginu. Síð- an hélt pallurinn toppnum saman og var hæsti punkturinn á eynni síðustu tíu, fimmtán árin,“ bætir Steingrímur við. Hann segir nokkra eft- irsjá að pallinum, en hann hefur séð hann bæði úr lofti og frá sjó síðan hann var byggður. „Það styrkti okkar samningsstöðu að sýna að við kynnum að halda eyjunni við og vakti tals- verða athygli á Grænlandi og í Danmörku. Ég er samt ekki að segja að við hefðum ekki getað náð sömu niðurstöðu án hans.“ Ljósmynd/Landhelgisgæslan Árið 1988 Unnið að því að slá upp móti fyrir þyrlupallinn í júlímánuði. Aðgerðin vakti athygli og hafði áhrif á deiluna um það hvar skyldi draga miðlínuna milli Íslands og Grænlands. Ljósmynd/Guðmundur St. Valdimarsson Árið 1999 Skipverjar af varðskipinu Ægi standa á pallinum sem á þessum tíma er hæsti punkt- urinn og byrjað að brotna undan honum. Ótraust berglög eru í eyjunni neðan sjávarborðs. Ljósmynd/Jón Kr. Friðgeirsson Árið 2010 Skipverjar af Tý fóru í Kolbeinsey fyrir skömmu en þar eru nú aðeins tvö sker eftir og pallurinn alfarið horfinn. Með sama áframhaldi verður eyjan horfin innan fárra ára. Niðurbrotinn út- vörður Íslands  Ekkert eftir af þyrlupallinum í Kolbeinsey Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@mbl.is Í dag er kvennadagurinn og fer þá Kvennahlaup ÍSÍ fram, nú í 21. skipti. Yfirskrift hlaupsins í ár er „Konur eru konum bestar“ til að varpa kastljósi á það hverju konur geta áorkað í krafti samstöðu, áræðis og dugnaðar fyrir sam- félagið. Í þetta sinn er kvenna- hlaupið unnið í samstarfi við Kven- félagasamband Íslands sem fagnar 80 ára afmæli sínu í ár. Þúsundir kvenna á öllum aldri hafa starfað undir merkjum Kvenfélaga- sambandsins og vinna eftir mark- miði þess en það er að stuðla að framfaramálum er varða velferð barna, kvenna og heimila í landinu . Jafnframt að efla félagsleg tengsl og samvinnu kvenna og hvetja kon- ur til áhrifa í þjóðfélaginu.. Kvenna- hlaup ÍSÍ er útbreiddasti og fjöl- mennasti íþróttaviðburður sem haldinn er á Íslandi ár hvert. Um 15.000 þúsund konur taka þátt á um 85 stöðum hérlendis og á 16 stöðum erlendis. Þátttakendur geta valið um vegalengdir allt frá 2 km upp í 20 km. Stærsta hlaupið er í Garða- bæ klukkan 14, þar sem þúsundir kvenna koma saman og hlaupa frá Garðatorgi. Þar verður glæsileg dagskrá og munu Ragnheiður Gröndal og Ásdís Ólsen koma fram en einnig verður elsti þátttakandinn heiðraður. Þá verður boðið upp á 3 km hlaup í Viðey kl. 13 og hlaupið á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði klukkan 11 og á Selfossi klukkan 13. Kvennahlaup ÍSÍ er haldið í til- efni kvennadagsins 19. júní en með honum er þess minnst þegar ís- lenskar konur, 40 ára og eldri, fengu kosningarétt. Það gerðist 1915 og eru því í dag 95 ár frá því konur fengu kosningarétt á Íslandi. Síðustu daga hafa nokkur dval- arheimili þjófstartað kvennahlaup- inu og hafa konur af eldri kynslóð- inni þegar lagt sitt af mörkum. Ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði á Hrafnistu í Reykjavík í gær þegar hressar konur þar drifu sig út í góða veðrið og fóru sínar vegalengdir, á sínum hraða og með sínum aðferðum. Eldri kynslóðin tekur þátt í kvennahlaupi ÍSÍ sem haldið er í 21. sinn á kvennadaginn 19. júní Konur eru kon- um bestar Morgunblaðið/Ernir Samstaða Konurnar á Hrafnistu sýndu hvernig konur geta verið konum bestar þegar þær héldu sitt Kvennahlaup.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.